Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Page 36
36 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FIMMTUDAGUR1. JPLl 1982. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið f ö EMÉOtlTE^ LOTre, £.H«.tí»TtÞ»M 06 \LlR.STCM IWEO t=AM6tO PULLT i AF ?aiOAA- 1 \^^vG»006HaP J WtXi Mxmu , . ..." . >'mWL WS EzÉjgjm ACD JgSgg m ■ * 118^? ROKKAÐ GEGN RAK- ETTUM REAGANS Ungt fólk í Danmörku safnar liði og mótmæ/ir vígbúnaðarkapphlaupinu. Fyrsta ameriska vetnissprengjan sprengd. Og allir muna Hirósima. „Friðarhreyfingarnar eru fínar og ekkert út á þær að setja, en veruleiki okkar er annar en þeirra sem að þessum friðarhreyfingum standa. Við erum atvinnulaus, húsnæðislaus og þaö er orðið erfitt að afla sér menntunar.” Þetta segir hópur ungs fólks sem segist hafa ólíkar pólitískar skoðanir (ólíkanháralit) og misjafnlega stóra fætur. Það sem þau eiga og hafa sameiginlegt er óttinn viö kjamorku- styrjöld. Þess vegna héldu þessir ungu Danir þann 5. júní sl. rokkhátíð gegn rakettumEeagans. Á þeirri hátíð komu fram m.a. Jomfru Anna Band, Adds, Sods og Köbenhavns Fredsband. Friður er nauðsyn „Ástæðan fyrir því aö við stöndum í þessu er friður, grundvöllur alls í heiminum er friöur, allt líf byggist á því,” segir Lotta, ung stúlka sem hafði nægan tíma til þess aö vinna aö undirbúningi þessarar rokkhátíðar vegna þess að hún er atvinnulaus. „Viö fáum hvergi atvinnu, okkur vantar húsnæd og það sem meira er, við getum alltaf vænzt þess að verða drepin í þessum mannfjandsam- lega heimi sem eyðir ógrynni fjár í manndrápstæki. Og það hræðilega við þetta allt saman er að ungu fólki finnst þaö ekkert geta til þess að spyrna á móti þessari þróun. Ef við missum trúna á okkur sjálf — trúna á að við getum breytt heimin- um. Hverjir breyta honum þá? Nærtækasta dæmiö er stríðiö á milli Argentínu og Englands. Alveg fáránlegt stríö. Hver hefði trúað því að shkt gæti átt sér stað? Þetta stríð var fáránlegt og heimskulegt. Þess vegna er ekkert sem bendir til þess að ráöamenn hagi sér skynsamlegar héríEvrópu.” „Þeir segja að þeir vilji vemda friðinn með því að auka vígbúnað þjóðanna,” segir Kirsten sem einnig er atvinnulaus. „En ég hef aldrei skilið aö til væri eitthvað sem nefnd- ist vopnaður friður. Vopnin eru fyrst og fremst til þess að nota þau. Eg vil ekki sitja lengur ein heima dauð- skelfd yfir þessu ástandi. Þess vegna er rokkhátíðin og friðarhreyfingar nauðsynlegar til þess aö vekja athygli mannaá þessummálum.” Stöðvið vopna- framieiðsluna „Það sem við viljum er að öll verkalýðsfélög verði virk í barátt- unni fyrir friði,” segir Benedikta sem er iðnnemi, en hefur enga von um atvinnu er námi lýkur. „Mitt stéttarfélag styrkir friðar- hreyfingarnar, en það sem vantar er ahnenn þátttaka fólks í þessum hreyfingum. Hugsið ykkur ef öll verkalýðsfélög segðu: „Okkar meðlimir vilja ekki og ætla ekki að smiða vopn. Viö viljum aðra og nyt- samlegri framleiðslu.” Því verka- lýðsfélög eru geysilega sterkt afl og geta haft mikil völd bara ef þau standa saman. Vitið þið hvaö kostar að smíða öll þessi vopn, sem smíðuð eru í heimin- um? Kostnaðurinn við að búa til eina herflugvél er svo mikill að hann myndi duga til þess að greiða öllum iðnnemum í Danmörku laun í eitt ár. Það er alltaf verið að auka hernaðar- útgjöldin á meðan sultarólin er hert á öðrum sviöum.” Lífslöngun „Það er lifslöngunin sem rekur mann til þess að vinna að friði,” segir Lotta, „og það er nauðsynlegt aö ungt fólk taki virkan þátt í starf- seminni. Því þegarmaður er kominn á byggingaraldurinn er erfitt að finna tima til þess aö gera annaö en að snapa víxla og taka lán. Þá fer allt energíið í það hjá þessu liði og ef unga fólkið gerir ekkert i friðar- málum gerir það enginn. Hinar heföbundnu friðarhreyf- ingar gagnrýna okkur kannski fjTÍr það að við nefnum þetta rokkhátíö. En við tökum friöarmáiefni jafn alvarlega og þær. Við notum bara okkar eigin aðferð til að koma málstaðnumá framfæri.” „Auðvitað skiptir vinnan fyrir friöi mestu máli. En góður starfsandi er líka nauðsynlegur og við skemmtum okkur konunglega við undirbúning- inn,”segirChristian. Þetta er ungt fólk en alveg ótrú- lega raunsætt. Ef allir í heiminum hugsuðu eins og þau þá væru örugg- lega öðruvísi umhorfs í veröldinni. EG þýddi úr Ekstra Bladet. SOF Ej__ MEIR Comsat Angels koma! — Gagnrýnendur lofa Eng/ana. Hljómsveitin Comsat Angles þykir með al-efnilegustu sveitum Breta um þessar mundir. Hana skipa þeir Kevin Bacon, 23 ára bassaleikari, Stephen Fellows, 27 ára gítarleikari, og söngv- ari Mick Glaisher 27 ára trommuleik- ari og Andy Peake, 26 ára hljómborðs- leikari. „Comsat Angels eru dæmi um hlýöni egósins og sigur sameiginlegs vilja,” segir gagnrýnandi New Musical Ex- press um þá félaga. Hann bætir við .. ” úr myrkviði psychedeliska-blúsins kemur yndisleg blanda af ró og ákefð, virðuleika og ofsa.”..”..þeir sjá ljósiö í anda undirganganna sem leiða til dómsdags.” Um nýjustu plötu þeirra félaga Sleep no more (Sof ei meir), titillinn er trúlega vísun í Makbeö) sem kom út fyrir tæpu ári, segir Record Mirror: ,,Sof ei meir, Comsat- arnir hafa myrt svefninn með því að gefa út plötu sem ber höfuð og herðar yfir allt sem hljóðritað hefur verið á þessu ári...” Gagnrýnandinn hælir Comsat Angels á hvert reipi og þá sér í lagi trommuleik Mik Glaisher og texta- gerö Steve Fellows. Gefur Reeord Mirror plötunni sína hæstu einkunn eða 5 stjömur. Blaöiö Sounds er á samamáli: 5 stjörnurþarlíka. Melody Maker segir: „1 stuttu máli, Comsatarnir hafa getið af sér meist- araverk. Sleep no more er tilfinninga- leg sprengja sem ristir í gegnum hör- undið og sker h jartað í tætlur ’ ’ Sleep no more er önnur stór plata hljómsveitarinnar. Hin heitir Waiting for a miracle. (Beöið eftir krafta- verki). Gagnrýnandi Record Mirror segir um þá nýjustu: Kraftaverkiö er komið. Þeir hafa einnig gefið út nokkr- ar litlar plötur og 12 tommu plötur. Sviösljós minnist vart að hafa séð nokkra plötu eins mikið lofaða og það einróma lof, — eins og Sleep no more. Það ættu að vera hæg heimatökin fyrir lesendur að athuga hvort brezkir gagn- rýnendur hafa rétt fyrir sér, því að Comsat Angles spila fyrir höfuðborg- arbúaínæstuviku. -ANDIA KRIMPEN % IJSSEL )S KINDERDIJK 4 & BAUDUIN DORDRECHT ŒR^PAPENDRECHT B .V. ÍLÁRBEÖ TW-Ubv _

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.