Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Blaðsíða 40
Álitfiskifræðinga; Erfittað vinna upp aflabrestinn „Það er rétt að við teljum aö erfitt verði að vinna upp þann aflabrest sem orðinn er. Og veldur þar mestu lítil veiði í maí,” sagöi Jón Jónsson, forstjóri Hafrannsókmstofnunar- innar, í samtaii við D V. Samkvæmt upplýsingum DV hafa fiskifræðingar lagt fram skýrslu aö beiðni Steingríms Hermannssonar sjávarútvegsráðherra um aflahorfur á árinu. I henni kemur fram sú skoð- un fiskifræöinga að litlar líkur séu á að aflabresturinn verði unninn upp seinnihluta ársins. Jón sagði ennfremur að ekki væri, að svo stöddu, hægt aö fullyrða neitt um ástand fiskistofnanna. Að lokinni sumarvertíð yrði gerð nánari rann- sókn á ástandinu. „Sjórinn hefur verið kaldur og æti fyrir fiskinn lítið. Af þessum sökum hefur orðið breyting á hegðun þorsksins. Hann heldur sig ekki í torfum en togveiðar byggjast á þvi. Þannig getur afli iínubáta verið ágætur, þó að lítið fáist í trollið. Loðnustofninn er mjög langt niðri að okkar mati og hefur það mikið áhrif á þorskinn. Sjómönnum virðist bera saman um að fiskurinn sé horaður nú. Þetta eru helztu fiskifræðilegu skýringamar sem hægt er að byggja á nú. En væntanlega skýrast málin betur í haust,” sagði Jón. Hann sagði einnig að athyglisvert væri að forstjóri hafrannsóknar- stofnunarinnar í Murmansk, sem staddur er hér á landi, héldi fram svipuðum sjónarmiðum. En rúss- nes) ir togarar hafa átt við svipuð vandamál að etja og við. -GSG Þúsundir laxaseiða drápust „Þetta var mikil óheppni,” sagði Gisli Snæbjömsson, einn eigenda Laxeldisstöðvarinnar á Drengjaholti við Patreksfjörð, er DV ræddi við hann .4300 laxaseiði drápust í stöðinni sl. þriðjudag. „Þeir í hreppsvinnunni voru að vinna að breytingum á vatnsleiðslum og létu ekki vita að loka ætti fyrir vatnið fyrr en of seint.” Finnbogi Magnússon, annar eigandi stöðvarinnar, vissi af lokun- inni og lét volgt vatn úr tilraunabor- holu renna í kerin. Framkvæmdir töfðust og er dróst að opna fýrir kalda vatnið hitnaði vatnið of mikiö í kerjunum og varð súrefnissnauðara. Um þriðjungur seiðanna drapst. Lauslega reiknað mun verðmæti þeirra vera 12 til 13 þúsund krónur. Gísli sagði að laxeldisstöðin væri ekki tryggð fyrir þessu tjóni. Það væri undir hreppnum komið hvort þeir fengju einhverjar skaðabætur. Ekki væri farið að tala um að kveðja tii lögfræðing vegna málsins. Um 2000 seiðum var sleppt úr stöðinni sl. mánudag og stóð til að sleppa af- ganginum nú í vikunni. Þeun seiðum sem eftir iifðu var sleppt í Holtsá og Móruífyrradag. ás Atkvæði greidd um samningana Fundir um samningana verða í flestum verkalýðsfélögum innan ASI I dag eða á morgun. Dagsbrún verður með fund í dag klukkan 16.30. 72-manna nefnd ASI samþykkti samningana samhljóöa á fundi í gær. Sambandsstjóm Vinnuveitendasam- bandsins samþykkti samningana með 30 atkvæðum gegn 8, einn sat hjá. Aðildarfélög VSÍ þurfa einnig að samþykkja samningana. -KMU. Vinnuslys Maður missti þrjár tær í vinnuslysi við Vagnhöfða í gærkvöldi. Maðurinn var að hreinsa steypusíló og fór með fótinnofaníþað. DS Alþýðubandalagið tekurtillögum „stormsveitarinnar,T dræmt: 300 milljónir í útgerðarstyrki? Hugmyndir „stormsveitar” Steiti- gríms Hemannssonar sjávarútvegs- ráðherra um hvemig leysa skuli vanda útgerðarinnar hafa hlotið litl- ar undirtektir hjá alþýðubandalags- mönnum í ríkisstjórninni. Málið hef- ur farið í frekari athugun. Stjórn- málamenn telja að dráttur geti orðið á að það fái nokkra afgreiðslu. Sumir þeirra álíta að það geti dregizt í margar vikur. Sú hugmynd sem talin er mest áberandi í þvi sem starfshópur Stein- gríms nefnir er að um 300 milljónir króna verði greiddar úr rikissjóði til styrktar útgeröinni. Ekki mun vera lagt til hvernig ríkissjóður eigi að afla tekna til að mæta þessum út- gjöldum. Aðrar leiðir sem taldar era koma til greina er hækkun fiskverðs, sem mætt verði með gengisfellingu og að einhverju leyti með endurgreiðslu á „uppsöfnuðum söluskatti” til fisk- vinnslunnar. -HH. Kopavogur: BRUNIÍGÖMLU HMBURHÚSI Eldur kom upp í gömlu timburhúsi að Kársnes- I ið er ekki talið ónýtt. Enginn hefur búið í húsinu um braut 23 í Kópavogi í nótt. Húsið var gamalt timbur- nokkurn tíma þannig að menn grunar óneitanlega að hús á einni hæð með risi. Skemmdist það nokkuð af kveikt hafi verið í því. eldinum en slökkvistarfgekk það fljótt og vel aö hús- | JÓNAS HARALDSSON FRETTASTJÓRIDV Slökkviliðið að störfum við Kársnes- braut 23 í nótt. DV-mynd S. Sæmundur Guðvinsson, sem verið hefur fréttastjóri DV frá upphafi, lætur nú af starfi og óskar blaðið hon- um velfamaðar á ný jum vettvangi. I stað Sæmundar hefur verið ráð- inn fréttastjóri Jónas Haraldsson, sem verið hefur aðstoðarfréttastjóri frá upphafi. Ráðgert er að tveir menn annist fréttastjóm DV en hinn hefur ekki verið ráðinn enn. J ónas Haraldsson er 29 ára, félags- fræðingur að mennt, kvæntur Hall- dóru Teitsdóttur og eiga þau þrjú Sæmundur Guðvinsson, til vinstri býður eftirmann sinp, Jónas Haraldsson, velkominn til starfa sem fréttastjóra DV. DV-myndÞórir frjálst, úháð dagblað FIMMTUDAGUR1. JÚLÍ1982. Yfirvinnu- banni af létt íEyjum Verkalýðsfélag Vestmannaeyja og verkakvennafélagiö Snót í Eyjum af- léttu í gærkvöldi yfirvinnubanni því sem í gildi hefur verið hjá félögunum að undanförnu. Bann þetta tók fyrst gildi 14. júní sl. en 21. júní var því frest- að þar eð svo virtist sem samningar væra að takast milli ASI og VSI. Bannið var síðan aftur sett á sl. mánu- dag, þann 28. júní. Á laugardag verður haldinn fundur í verkalýðsfélagi Vestmannaeyja um nýgerða kjarasamninga en að sögn Jóns Kjartanssonar, formanns félags- ins, er alveg óvíst hvort samningarnir verða samþykktir. „Mér finnst þetta ekki góðir samningar en það er kannski ekki við meiru að búast þegar samstaöa er ekki meiri en raun ber vitni,” sagði Jón Kjartansson, for- maður verkalýðsfélags Vestmanna- eyja. Á morgun, föstudag, hefjast síðan sérkjaraviðræður vinnuveitenda og verkalýðsfélaganna í Eyjum. -SA. Þýzki eggja- safnarinn dæmdur Þýzki líffræðingurinn og eggjasafn- arinn, sem tekinn var um borö í Smyrli á dögunum með tugi eggja í farangr- inum, hefur verið dæmdur. Hlaut hann 30 þúsund króna sekt, eggin 69 voru gerð upptæk og honum gert að greiða allan málskostnað. Hefur hann greitt það sem upp var sett og fór af landi brott á þriðjudag með Smyrli. -KÞ. Brotiztinnhjá Rafveitunni Brotizt var inn í félagsheimili Raf- veitunnar við Elliðaár í nótt. Uppgötv- aðist innbrotið um klukkan sjö í morgun. Rannsóknarlögregla fór þá þegar á staöinn. Ekki lá fyrir þegar blaðiö fór í prentun hvort einhverju hefði verið stolið eða skemmdir unnar. ______________________-DS. Hraðskák á Lækjartorgi Utiskákmót verður á Lækjartorgi næstkomandi mánudag. Þrjátíu sterk- ustu skákmenn landsins tefla í nafni fyrirtækja á mótinu, sem er styrktar- mót fyrir væntanlega för landsliðsins tilEngiands. Mótið hefst klukkan 15:30. Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími er sjö mínútur á mann. Áætlað er að mótinu verði lokið um klukkan átján. Jón L. Ámason mun tefla í nafni DagblaðsinsogVísis. -KMU. LOKI Útgerðarstyrkirnir eru ekki nema svo sem sex ódýrir Þórshafnartogarar. Hvað er það milli vina?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.