Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1982, Blaðsíða 39
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FIMMTUDAGUR1. JULI1982.
Utvarp
Sjónvarp
DAGLEGT MÁL—útvarp kl. 19.35:
„Mikið hlustað
á þáttinn”
— segir Ólafur Oddsson
Utvarp
Fimmtudagur
t.júlí
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 Hljóð úr horni. Umsjón: Hjalti
Jón Sveinsson.
15.10 „Laufblað eftir Nostra” eftir
J.R.R. Tolkien. Ásgeir R. Heiga-
son les fyrri hluta þýöingar sinnar.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Lagið mitt. Helga Þ. Stephen-
sen kynnir óskalög bama.
17.00 Síðdegistónleikar. a.
Akademíski forleikurinn op. 80 eft-
ir Brahms. Operuhljómsveitin í
París leikur; Pierre Dervaux
stjómar. b. Sinfónía nr. 5 í e-moll
op. 64 eftir Tsjaikovsky. Fil-
harmóníuhljómsveitin í Berlin
leikur; Herbert von Karajan stj.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mái. Olafur Oddsson
sérumþáttinn.
19.40 Á vettvangi.
20.05 Hamrahlíðarkórinn syngur ís-
lensk lög. Þorgerður Ingólfsdóttir
stj.
20.30 Leikrit: „Tónaspil” eftir Peter
Shaffer. Þýðandi: Kristín
Magnús. Leikstjóri: Herdís
Þorvaldsdóttir. Leikendur: Ámi
Blandon, Bjami Ingvarsson og
Tinna Gunnlaugsdóttir.
21.35 „Vöruflutningalest 480 kíló-
metra löng”. Séra Vigfús Þór
Árnason á Siglufirði flytur
synoduserindi.
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Ekki af brauði einu saman”.
Jón R. Hjálmarsson ræðir við
Emil Ásgeirsson í Gröf í Hruna-
mannahreppi um búskap, leiklist
og söfnun muna og minja.
23.00 Kvöldnótur. Jón Öm Marinós-
sonkynnirtónlist.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
A dagskrá útvarpsins í kvöld klukk-
an 19.35 er þátturinn daglegt mál. DV
símaði til Olafs Oddssonar, umsjónar-
manns þáttarins. Olafur sagði að
þátturinn í kvöld f jallaði um nýyrði og
þá einkum skipulagða nýyrðamyndun.
Auk þess yrði bréfum svarað. Að sögn
Olafs berast mörg bréf til þáttarins
bæði af landsbyggðinni og úr Reykja-
vík. Einnig heimsækja áhugasamir
menn umsjónarmann þáttarins í þeim
tilgangi að spyrjast fyrir eða benda á
athyglisverð orð og orðasambönd.
Olafur kvaðst hafa tekið eftir að mikið
væri hiustað á þáttinn enda væri hann
á dagskrá á ákjósanlegum tíma. Fólk
hlustaði gjarnan á þáttinn við upp-
vaskið á kvöldin eöa jafnvel á leið til
vinnu.
Athygli vekur hve stuttur þátturinn
er. Við spurðum Olaf hvort ekki mætti
veita Daglegu máli meiri tíma í dag-
skrá útvarps: Hann sagði að það ylli
sér erfiðleikum hversu þátturinn væri
stuttur. Utvarpsmenn gengu hart á
eftir því að ekki mætti fara fram úr
þeim 5 mínútum sem þættinum væri
úthlutaö. Að auki mætti benda á það að
það tæki töluveröan tíma aö semja
þáttinn, einmitt vegna þess hve stuttur
hann væri.
Því næst vikum við að öðru og
spurðum Olaf um álit hans á málfari
dagbiaða. „Það er ekki mjög mikið
um slæmar villur,” sagði hann „en því
Imeira um duldar slettur og hráar þýð-
ingar úr erlendum málum. Oft og
tiðum má sjá þýddar greinar í blöðum
þar sem notazt er við íslenzk orð en
setningarbygging hins erlenda máls
sem þýtt er úr er látin halda sér.”
Olafur benti á að málfar væri ákaf-
lega viðkvæmt meðal Islendinga og
sízt af öllu vildi hann ráðast á einstaka
greinarhöfunda fyrir slæmt málfar.
Hann kvaðst telja sjálfsagt aö segja
mönnum til en ástæðulaust að ráðast á
fólk. Málfar væri ákaflega viðkvæmt
enda snar þáttur í persónuleika hvers
manns. Varhugavert væri að ráðast á
menn vegna málfars sem þeir hefðu
e.t.v. í arf frá afa og ömmu. Þeir hefðu
lært það af forfeðrum sínum og svo
koil af kolli.
Um skiptar skoðanir á íslenzku máli
sagði Olafur og vitnaði í Grettlu máli
sínu til stuðnings. „Þar tíðkast nú hin
breiðu spjót.”
Sumir eru á móti öllum afskiptum
af daglegu máli manna og telja að
málið eigi að þróast án íhlutunar. Aðr-
ir vilja mikil afskipti af málþróun en
flestir eru einhvers staðar þarna á
milli.
I þættinum í kvöld verða nýyrði á
dagskrá. Olafur sagði aö góð nýyrði
væru betri en iatnesk og grísk orð sem
tekin væru úr öðrum nýmálum. Á hinn
bóginn ætti að hafa hugfast að ekki
væri nægilegt að þýða einungis erlendu
orðin í texta. Það væri varhugavert að
lærðir menn notuðu oft og tíðum svaka-
legan stíl, langar setningar þar sem
einungis orðin væru þýdd. Setninga-
bygging hins erlenda máls héldi sér og
eignarfallssamsetningar væru óþarf-
lega algengar. Olafur lagði áherzlu á
að í þýðingum bæri að þýða megin-
hugsun setninga en ekki að þýða
einungis hvert orð fyrir sig, án þess að
aðlaga setningarnar íslenzku máli.
Við spurðum Olaf að lokum að því
hvort málfar lærðra manna á Islandi
væri verra en alþýöumanna. Hann
svaraði því til að ef lærðir menn tækju
sig ekki á í málvöndun gæti svo farið
að þeir töluðu sérmál sem alþýða
manna skildi ekki. Það væri vissulega
háskaleg þróun ef menntamenn fjar-
lægðust svo eðlilegt málfar að enginn
venjulegur maður gæti skilið þá.
Olafur ráðlagði mönnum, og þá sér-
staklega menntamönnum sem verið
hefðu langdvölum erlendis, að lesa
þjóðsögurnar, það hefði áður fyrr
reynzt mörgum mætum manni heilia-
drjúgt.
ÁS.
Fimmtudagsleikrit kl. 20.30:
Föstudagur
2. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Tónleikar. Þulur veiur og
kynnir.
7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur
Olafs Oddssonar frá kvöldinu áð-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð:
Magöalena Sigurþórsdóttir talar.
8.15 Veöurfregnir. Forustugr.
dagbl. (Utdr.).Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Halla” eftir Guðrúnu Kristínu
Magnúsdóttur. Höfundurles (4).
9.20 Tónleikar. Tilkynningar. Tón-
leikar
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Morguntónleikar. a. Michala
Petri og St. Martin-in-the Fields
hljómsveitin leika konserta fyrir
blokkflautu og kammersveit eftir
Antonio Vivaldi. b. Hljómsveit
Dalibors Brázda leikur nokkur lög.
11.00 „Mér eru fornu minnin kær”.
Steinunn S. Sigurðardóttir les úr
frásögnum Kristínar Sigfúsdóttur
skáidkonu.
11.30 Létt tónlist. Jim Reeves, Perry
Como o.fl. syngia.
12.00 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
Á frívaktinni. Sigrún Sigurðardótt-
ir kynnir óskaiög sjómanna.
15.10 „Laufbiað eftir Nostra” eftir
J.R.R. Tolkien. Asgeir R. Helga-
son les seinni hluta þýðingar sinn-
ar.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Litil barnatiminn. „Börnin sér
leika”. Heiðdís Norðfjörð stjómar
barnatíma á Akureyri. Steindór
Steindórsson frá Hlöðum segir frá
leikjum sinum að skeljum og
kuöungum í æsku. Laufey Arna-
dóttir les söguna „Fífill og
hunangsfluga” eftir Jónas
Hallgrímsson.
TONASPIL EFTIR
PETER SHAFFER
einn virtasta höfund samtímans
Það má með sanni segja að leikritið í
kvöld sé með því athyglisverðasta sem
rekið hafi á f jörur leiklistarunnenda í
langan tíma. Ekki veitir af að útvarpiö
standi sig vel því það er eina stofnunin
sem heldur uppi merki leiklistar-
gyðjunnar í júlimánuði.
Leikritið sem flutt verður í kvöld
heitir Tónaspil og er eftir brezka
leikritahöfundinn PeterShaffer.
Leikstjóri. leiksins er Herdís
Þorvaldsdóttir en þýðinguna gerði
Kristín Magnúss. Leikendur eru Ámi
Blandon, Bjarni Ingvarsson og Tinna
Gunnlaugsdóttir.
Efni Tónaspils er í stuttu máli: Bob
býr í leiguherbergi í Lundúnum. Hann
hefur boðiö stúlku í kvöldmat og Ted
vinur hans kemur til að matreiða fyrir
þau. Ted er veraldarvanur, ekki sízt
þegar kvennamál eru annars vegar og
er alltaf tilbúinn að gefa góð ráð og
leiðbeiningar.
Höfundur leikritsins er íslenzkum
leiklistarunnendum aö góðu kunnur.
Peter Shaffer er talinn einn alfremsti
leikritahöfundur samtímans. Hann
fæddist í Liverpool 1926 og var hann
ekki einn á ferð því tvíburabróður á
hann sem einnig er vel metinn leikrita-
höfundur. Shaffer skrifaði upphaflega
sjónvarpsleikrit en sneri sér siðan að
sviðsleikritum. Tónaspil sem heitir á
frummálinu Private ear samdi Shaffer
árið 1962. Sama ár skrifaði hann
Einkaspæjarann sem útvarpið flutti
1978. Af öðrum verkum Shaffers má
nefna Royal Hunt of the Sun, Svarta
Kómedíu (sýnt í Iðnó 73—74) og síöast
en ekki sízt leikritin Equus og
Amadeus. Það má segja að Peter
Shaffer hafi skipaö sér í hóp mestu
leikritahöfunda samtímans með fyrra
verkinu, enda var það hvarvetna valið
leikrit ársins er það kom fram. Margir
munu minnast sýningar Leikfélags
Reykjavíkur á verkinu og kvikmyndar
sem gerð var eftir verkinu meö
Richard Burton og Peter Frith í aðal-
hlutverkum. Shaffer sannaði svo
Peter Shaffer: Forvitnilegt lelkrit
undir stjórn Herdisar Þorvaldsdóttur
með efniiegum leikurum.
styrkleika sinn með leikritinu
Amadeus sem farið hefur sigurför um
heiminn undanfarin tvö ár. Það gekk í
Þjóðieikhúsinu i vetur viö góðan
orðstír.
Enda þótt verkið sem leikið veröur í
kvöld sé ekki meðal þekktustu verka
Shaffers er ekki að efa að mæla má
með leikritinu en þaö tekur klukku-
stundíflutningi. -ÁS.
\J\\S
Video-sport sf.
MIÐBÆ
OPIÐIJULIKL. 13—23ALLADAGA.
HÁALEITISBRAUT
58—60 2. HÆÐ
OPIÐMÁNUD.TILFÖSTUD.FRÁ13—23. g J A/)l
LAUGAEDAGA OG SUNNUDAGA KL. 13-23. cö D*TmU U \
Ath. Vorum aöfá nýja jilmusendingu
!39
Veðurspá
Austlæg átt sunnanlands og skúr-
ar en úrkomulaust annars staðar.
Veðrið
hérogþar
Klukkan 6 í morgun: Akureyri
léttskýjaö 10, Bergen skýjað 10,
Helsinki þokumóða 13, Kaup-
mannahöfn aiskýjað 13, Osló ai-
skýjað 13, Reykjavík rigning 10,
Stokkhólmur súld á síðustu klukku-
stund 11, Þórshöfn súld 9.
Klukkan 18 í gær: Aþena heiðríkt
26, Berlín skýjað 16, Chicagó
skýjað 21, Feneyjar heiðríkt 24,
Frankfurt léttskýjað 21, Nuuk létt-
skýjað 10, London skýjað 19, Las
Palmas léttskýjað 24, Mallorka
heiðskírt 26, Montreal léttskýjað
21, New York skýjað 24, París létt-
skýjað 21, Róm heiöríkt 24, Malaga
heiðskírt 25, Vín skýjað 18,
Winnipeg léttskýjað22.
Tungart
Sagtvar: Þeirfóruinní
sitthvort húsiö.
Etétt væri: Þeir fóru inn
sitt húsið hvor.
Leiðréttum börn sem
flaska á þessu!
Gengið
■
GENGISSKRÁNING NR. 113
30. JÚNÍ1982KL. 09.15
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sola
Bandaríkjadollar 1143Q 11,462 12,608
Sterlingspund 19,917 19,973 21,970
1 Kanadadollar 8,850 8,875 9,762
1 Dönskkróna 1,3492 1,3530 1,4883
1 Norsk króna 1,8406 1,8457 2,0302
1 Sœnskkróna 1,8765 1,8818 2,0699
1 Finnskt mark 2,4185 2,4253 2,6678
1 Franskur franki 1,6827 1,6874 1,8561
1 Belg.franki 0,2454 0,2461 0,2707
1 Svissn. franki 5,4578 5,4731 6,0204
1 Hollenzk florina 4 2196 4,2314 4,6545
1 V-Þýzktmark 4,6682 4,6812 5,1493
1 ftölsk Hra 0,00829 0,00831 0,00914
1 Austurr. Sch. 0,6624 0,6643 0,7307
1 Portug. Escudó 0, 372 0,1376 0,1513
1 Spánskur peseti q iq28 0,1031 0,1134
1 Japansktyen 0,04486 0,4499 0,04948
1 irsktpund 16,079 16,124 17,736
SDR (sórstök 12,4426 12,4774
dráttarróttindi)
22/06
Sfmavarl vegna ganglsskránlngar 22190.
Tol/gengi íjúní
Bandarikjadoilar Kaup USD 110,370 ,Sala 10,832
Steiiingspund GBP18.606 19,443
Kanadadollar CAD 8,468 8,723
Dönsk króna DKK 1,2942 1,3642
Norsk króna NOK 1,7236 1,8028
Sænsk króna SEKÍ 1,7761 2,3754 1,7728 0,2448
Finnskt tnark FIM: 2,2766
Franskur franki FRFl 1,6838
Belgtokur franski BEC 0,2335
Svisan. franki CHF 5,3152 5,4371
Holl. Gyllini NLG 3,9580 4,1774
Vestur-þýzkt mark DEM 4,3969 4,6281
ftölsk lira ITL 0,00794 0,00836
Austurr. Sch. ATS 0,6245 0,6583
Portúg. escudo PTE 0,1468 0,1523
'Spánskur peseti ESP 0,0996 0,1039 0,04448
Japansktyen JPY 0,04376
irskt pund IEP 15,184 16,015
SDR. (Sérstök 11,8292 V?'1®8/
dráttarróttindi) 26/03