Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Blaðsíða 2
2
„Finnst ég vera
heima á íslandi”
— segir Islandsvinurinn Jack Pearson í spjalli við DV
,,Strákar, ég var rétt í þessu aö hafa
samband viö Bob Paisley hjá Liver-
pool og hann segir aö þaö sé allt í lagi
aö við kikjum á æfinguna hjá þeim á
morgun.” Eitthvaö á þessa leið hefur
Islandsvinurinn Jack Pearson, sem
býr í bítlaborginni Liverpool, sagt viö
læknanema er farið hafa til borg-
arinnar á sumrin undanfarin ár til að
stunda nám í skurðlækningum. Og
þessa dagana er Jackeinmitt staddur
hérálandi.
Þegar viö röbbuöum viö hann leyndi
sér ekki áhuginn á Islandi og
Islendingum, enda er maöurinn ótrú-
lega fróður um landið. Þaö er lika
athyglisvert hvaö hann notar mikiö af
íslenskum orðum þegar hann talar við
tslendinga.
Hann hefur komiö til Islands síöast-
liöin fjögur haust og jafnan dvaliö í
þrjár vikur í hvert skipti. Hann hefur
ferðast mikiö um landiö og þykir mikið
til þess koma. „Landiö ykkar er mjög
fallegt og þaö er meö ólíkindum hve
loftið er tært. Og aö skoöa fjöllin, þegar
snjóað hefur litilega í topp þeirra, er
ótrúlega tignarleg sjón. Ég var nýlega
á Þingvöllum og er ég stóð viö lygnt
vatniö og leit yfir þaö sagöi ég viö sjálf-
anmig: „Þettaerlsland.”
íslendingar
ekki snobbaðir
En þaö er fleira en fallegt landslag
sem Jack heillast af hér á Islandi. Þaö
er landinn sjálfur. ,,Það er
einkennandi hvað fólk er lítið snobbað
hér. I Englandi er þetta allt ööruvísi.
Ég get nefnt þér dæmi um þetta. Ég
var á gangi í Austurstræti um daginn
og hitti þar strák í bókabúö. Hann
talaöi mjög góöa ensku. Þegar við
höfðum rætt alllengi saman kom í ljós
að hann var sendiherrasonur og haföi
búiö í Englandi en hann kom því ekki
inn í samræðurnar. Þaö var ekki fyrr
en ég spuröi hann hvers vegna ensku-
kunnáttan væri svona góö aö hann
sagöi frá þessu. I Englandi heföu menn
fyrir lifandi löngu veriö búnir aö koma
þessu inn í samræðumar. Og þetta
einkennir ykkur Islendinga ásamt
einlægninni. Þá viröist mér engin
stéttaskipting vera hérlendis, sem er
mjöggott.”
Læknanemar í
Liverpool
I rabbi okkar Jacks var áberandi
hve marga vini hann á hér á landi. Og í
sjálfu sér kemur það ekki á óvart því
maðurinn er skemmtilegur og kann
mikið af sögum. Þaö var líka
einkennandi hvaö hann bar íslensku
nöfnin vel fram. Og hann virðist
þekkja hvem einasta læknanema með
nafni. „Grímur, Sæli, Rikki, María,
Binni, Siggi Hektors og mörg fleiri
nöfn nefndi hann er ég spuröi um
læknanemana.
Hann hefur ásamt fleiri rotary-
félögum séð um aö taka á móti lækna-
nemum sem koma til Liverpool og það
hefur hann gert frá því 1972. Hann
hefur einnig skipuiagt ýmsar feröir
fyrir þá í borginni og verið þeim innan
handar við að heimsækja sjúkrahús í
Liverpool og sjá lækna við störf í
krufningum.
Jack er fyrrverandi forseti í
rotaryklúbbi í Liverpool. Þá gegnir
hann trúnaöarstörfum á sviði mennta-
og húsnæðismála. Hann sagði aö hann
heföi fariö á nokkra fundi hjá rotary-
klúbbum hér, farið til félaga í Kefla-
vík, Akranesi, Garöinum og Reykja-
vík, og hann hefði haft mikla ánægju af
þessum fundum.
En skyldi Island vera eina landiö
sem hann hefur heimsótt? „Nei, ekki
er þaö nú, ég hef ferðast mjög víða,
fariö til Evrópu, Asíu og Suður-
Ameríku, en ég á kunningja í löndum
eins og Thailandi, Argentínu og
Brasilíu, svo einhverséu nefnd.”
Er Reykjavík
Camp David?
Þegar viö ræddum viö Jack haföi
hann veriö í Menntaskólanum í
Reykjavík fyrr um morguninn, en
Guðni Guömundsson fékk hann til aö
koma þangað og rabba viö nokkra
nemendur í enskutíma. Og síöar um
daginn var hann á leiö upp á Land-
spítala, þar sem hann ætlaði aö ræða
við nokkra lækna um nýmaveiki. Þess
má geta aö hann hefur fengist talsvert
viö mál sem snúa að nýmarannsókn-
um í Liverpool. Auk þess ætlaöi hann
aö heilsa upp á nokkra lækna sem
höföu verið í Liverpool á sinum tíma.
Greiniiega var í nógu að snúast hjá
honum hér á Islandi. „Ég heyröi um
daginn aö Reykjavík væri kölluð af
gárungunum borg Davíös. Af hverju
ekki aö kalla hana bara Camp David,”
sagði Jack brosandi.
Hann er á Ieiö heim til Englands á
næstu dögum, en, eins og hann sagöi aö
lokum: „Annars finnst mér ég vera
heima hér á Islandi. ”
HÚSGAGNASÝNING
á morgun — sunnudag — kl. 2—5.
Þessi ítölsku barokksófasett loksins komin.
Opid laugardag kl. 9—12.
Trésmiðjan
•••«
•••'
Dúnahúsinu
Síöumúla 23
Sími 39700
•••
ro.ir qrmc»»rJretf?^ wr' t. fc ’ '>'r» r ■ r T
DV. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER1982.
Jack Pearson frá Liverpool. Hann hefur veriö islenskum læknanemum er
komið hafa til Liverpool é sumrin til náms i krufningum mjög innan
handar. Þekking hans á íslandi og íslendingum er einnig með ólíkindum.
DV-mynd. Einar Ólason.
Nýtt orgel vígt í
Aðventkirkjunni
Nýtt< rafeindaorgel verður vígt í
Aðventkirkjunni í kvöld, laugardaginn
25. sept., kl. 20.
Orgelleikarar veröa Guöni
Guömundsson organisti Bústaöa-
kirkju, sem er sérfræðingur um raf-
einda- og pípuorgel, Jónína
Guömundsdóttir, Oddný Þorsteins-
dóttir og dr. Helgi Heiöar. Karlakór
Reykjavíkur og Samkór aöventsafnað-
anna á Islandi munu syngja ásamt
einsöngvurunum Önnu Johnsen, Reyni
Guösteinssyni, Áma Hólm og Ólafi
Olafssyni. Dr. Helgi Heiöar leikur á
fiölu.
Nýja rafeindaorgeliö í Aöventkirkj-
unni gaf dr. Helgi Heiöar til minningar
um fööur sinn, Salómon Heiöar, sem
um áraraðir var organleikari kirkj-
unnar. Sjálfur var dr. Helgi Heiöar
organleikari i kirkjunni i nokkur ár.
Salómon Heiöar var einnig sönglaga-
Búast má vlð harðri keppni og metaregni i kvartmilukeppninm.
Salómon Heiðar organisti.
smiöur og veröa nokkur sönglaga hans
flutt við þetta tadtifæri. -gb.
Kvartmílukeppni
Kvartmíluklúbburinn heldur í dag
fjóröu kvartmílukeppni sina á sumrinu
sem gefur stig til Islandsmeistara-
titils. Veröur keppnin aö vanda haldin
á kvartmílubrautinni viö Straumsvík.
Búist er við miklum fjölda keppenda,
m.a. að minnsta kosti einum frá Akur-
eyri á hinum víöfræga Hemi
Challenger. 1 sumar hefur Benedikt
Eyjólfsson veriö einráöur í SA-flokki
og sett nýtt Islandsmet í hverri keppni
en hætt er viö að sigur hans veröi ekki
eins auðveldur í þetta sinn því vitað er
um a.m.k. þr já aöra SA-bíla sem munu
ætla sér aö mæta í keppnina og hefur
enginn þeirra keppt áöur. Allir þessir
bílar eru geysiöflugir og má því búast
við haröri keppni og metaregni.