Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Blaðsíða 36
NYJA AGFAFILMAN ÓTRÚLEGA SKÖRP OG NÆM FYRIR LITUM ÓDÝRARI FILMA SEM FÆST ALLS STAÐAR Stjóm SVR: Vill hafna öllumkaup tilboðum f Ikarus 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 AUGLÝSINGAR SÍDUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR SKRIFSTOFA AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11 27022 LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1982 Fær Hólmavíkurtogarinn milljónir í gjöf? Framkvæmdastofnun plöguð af nauðgurum” — stjórnmálamenn og sjávarútvegsráðherra beita stofnunina þrýstingi til að lána í vonlausar f járfestingar Á fundi stjórnar Strætisvagna Reykjavíkur í gær var fjallað um kauptilboðin sem bárust i Ikarus strætisvagnana en borgarráð hafði vísað tilboðunum til stjómarinnar til umsagnar. Stjórn Strætisvagnanna mat öll tilboðin óaðgengileg og taldi að hafna bæri þeim öllum. Hins vegar segir einnig í umsögninni að Ikarus- yagnamir henti SVR illa samkvæmt þeirri reynslu sem fengist hefur af þeim í akstri þann tíma sem þeir hafa verið í notkun. Borgarráð mun fjalla um sölu Ikarus vagnanna á fundi sínum næstkomandi þriðjudag. -ÓEF. Farmenn enn Fjármögnun Hólmavíkurtogar- ans, sem nú er í smíðum, hefur verið með nokkuð óvenjulegum hætti. Skuttogarinn, sem er í eigu Hólma- drangs hf. á Hólmavik, verður að lik- indum sjósettur um næstu áramót og þykir sýnt að smíðaverð hans verði á bilinu 80 til 100 milljónir króna. Yrði hann þar með dýrasti togari sem smíðaður hefur verið innanlands og sá togari sem minnstar líkur eru til að gæti staðið undir sér. Samkvæmt útreikningum sem Þjóöhagsstofnun gerði fyrr á árinu þyrfti nýr togari að veiða hátt í 20 þúsund tonn til að standa undir sér og er þá fjármagnskostnaður þyngsti bagginn. Meðaltogarinn fisk- ar hins vegar ekki nema 3700 tonn og hámarksafli togara er um 6000 tonn. Hólmavíkurtogarinn er því fyrir- framdæmdurtil gjaldþrots. Frá því var greint í DV sl. miðviku- dag og Byggðasjóður Framkvæmda- stofnunar hefði ákveðið að veita 15% af smíðaverði togarans að láni en það er 5% hærra hlutfall en sjóðurinn veitir vanalega til skipakaupa. I stjórn Framkvæmdastofnunar hefur hins vegar verið rætt um að gefa út- gerðarfélaginu þessa umframfjár- veitingu frekar en að lána hana. ,,Það er margfalt ódýrara að gefa þessa fjárhæð en lána þegar um er að ræða f járfestingu í svona vitlaus- um hlutum og vitað er að lántakend- ur geta aldrei greitt til baka,” sagði einn heimildarmanna DV. Sagöi hann að stjórn Framkvæmdastofn- unar hefði verið beitt miklum þrýst- rngi til að veita aukið lán til Hólma- víkurtogarans, bæði frá stjómmála- mönnum og sjávarútvegsráðherra. Ástæðan fyrir því að tillagan um styrk í stað lánveitingar hefði ekki enn verið samþykkt sagði hann vera þá að þama væri um aö ræða slæmt fordæmi. „Framkvæmdastofnun er plöguö af alls konar nauðgurum sem hafa önnur sjónarmið að leiðarljósi en arðsemissjónarmið og það gerir þessa stofnun ákaflega undarlega samansetta. Stjómarmenn vissu að það var aldrei ætlunin að greiöa þetta fé og því létu menn undan þrýstingi ráðherra og pólitíkusa því með þessari tillögu er verið að gera grín að þessu heimskulega kerfi,” sagði heimildarmaöur blaðsins. Eggert Haukdal, stjórnarformað- ur Framkvæmdastofnunar, vildi ekkert um máliö segja er DV bar þaðundirhannígær. ÖEF á fundi Fundur undirmanna á farskipum og fulltrúa skipafélaganna stóð enn yfir í gærkvöldi þegar blaðið fór í prentun. Deiluaðilar hittust hjá sáttasemjara klukkan 9 í gær- morgun og um sjöleytið höfðu lín- umar ekki skýrst þannig að hægt væri að segja aö horfur væru á sam- komulagi. Aðeins þrjú kaupskip vom í höfn þegar verkfall undirmanna á far- skipum gekk i gildi á hádegi í þær. -ÖEF. Sól sunnan- lands og vest- an en kalt Ibúar suðvesturhorns landsins munu njóta sólar um helgina, rætist spá Veðurstofunnar. Gert er ráö fyrir áframhaldandi austan- og norðaustanátt á landinu og svipuðu hitastigi og verið hefur. Það veröur því fremursvalt. Á Norður- og Austurlandi er spáð skýjuðu og einhverri rigningu. Á Suður- og Vesturlandi er gert ráð fyrir þurru veðri og léttský juðu. -KMU. Vörubíllinn henti f ólks- bflnum út fyrirveginn — nýjar slysamerk- ingar lögreglu Vömbíll ók á kyrrstæðan fólksbíl á Reykjanesbraut í gær. Sprungið hafði á fólksbílnum og hafði hann þvi veriö skilinn eftir mannlaus. Bíllinn hentist út fyrir veg. Á myndinni má sjá lögregluþjóna líma miða á staur viö bílinn. Það er nýmæli og verða rauðir miðar limdir á slysastaði og bláir þar sem harðir árekstrar verða. DV-myndS. Enn errættum gervigras á Laugardalsvöllinn: „Iðjagrænn grasvöllur við hlið skautasvells” Bandarískur maöur, Ed Miller að nafni, hefur dvalið hér á landi undan- fama daga, og kynnt gervigras á iþróttavelli. Hélt hann fund í gær með forráðamönnum knattspymu- félaga á Reykjavíkursvæðinu. Margoft hefur verið rætt um að setja gervigras á Laugardalsvöllinn. Grasflöt þessa aðalíþróttaleikvangs landsins hefur í mörg ár verið frammámönnum í íþrótta- hreyfingunni og umsjónarmönnum vallarins hinn mesti höfuðverkur. Hefur leikvangurinn af þeim sökum nýst minna fyrir knattspyrnuleiki en margur hefur kosið. 1 sumar var völlurinn nær ekkert notaöur fyrr en undir lok keppnistímabilsins. Er hann þó i afar slæmu ástandi eftir sumarið. „Ástand vallarins er ekki gott, það er óhætt að segja,” sagði Baldur Jónsson vallarstjóri. „Veturinn framundan er ekkert, gleðiefni. Engin grasspretta hefur verið í á annan mánuö. Við treystiun bara á guð og lukkuna og vonuin að vorið verði gott,” sagði Baldur. Baldur kynntist fyrir þremur ár- um gervigrasi í Osló. „Osló var á kafi í snjó. Allt í einu komum við að iðjagrænum grasvelli, upphituðum. Ungir og gamlir léku sér þar viö hliðina á skautasvelli. Það var alveg sérstök upplif un að sjá þetta.” Það er því ekki nema von að Baldur sé farinn að líta hýrum aug- um til gervigrassins. Hann hefur þegar átt viðræður við Bandaríkja- manninn sem hér er staddur. En mörg ljón eru í veginum. „Gervigrasið eitt kostar tíu milljónir,” segir Baldur. En fjár- málin eru ekki eina hindrunin. „Knattspymusamband Evrópu, UEFA, vill ekki viðurkenna leiki á gervigrasi. Það setur okkur stólinn fyrir dyrnar. Alþjóða knattspyrnu- sambandið hefur hins vegar viður- kennt það. Um leið og Knattspymusamband Islands samþykkti gervigras myndu hlutimir breytast. Þá yrði allt annað viðhorf. En vegna afstöðu UEFA hefur KSI ekki talið rétt að setja gervigras á völlinn,” sagði Baldur. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.