Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER1982. 21 Sýningarsalurinn i verksmidjubyggingunni„K 18" áðuren sýningin varsett upp. útsjónarsemi og þá listrænu hæfi- leika sem bera ættu uppi sýningu af þessu tagi. Tók hann einnig til ráös að setja sig í samband viö mynd- smiði sem lagt höfðu stund á sköpun í föst efni, jám, stein, við o.s.frv. og fór fram á að þeir gerðu verk í mjúk efni sérstaklega fyrir þessa sýningu. Gaf það góöan árangur. Stakkur sniðinn eftir vexti Allan þennan tíma átti samstarfs- hópurinn í mesta basli með fjár- mögnun og varð einnig að búa við tortryggni þeirra documenta-manna sem héldu að verið væri að vega að sínu fyrirtæki. Eftir mikið japl og fuður tókst el Attar að skrapa saman 300.000 mörk (smb. 10 millj. til docu- menta) og sýningin gekk upp, með því að allir listamennirnir gáf u vinnu sina. Verksmiðjubygginguna K 18 fékk hópurinn til afnota strax í upphafi og þegar sýningin virtist ætla að verða að möguleika, afréðu menn að taka fyllsta tillit til aðstæðna í þessum gömlu skemmum, nota þær til að byggja sýninguna upp, en ekki draga hana niður. Þátttakendur voru því hvattir til að sníða verk sín í sam- ræmi við skilyrði í K 18: bitana, mis- fellur á skítugu gólfinu, litbrigöin í hlöðnum veggjunum o.s.frv., og enn- fremur var ákveðið að skipta sölum ekki niður í bása, heldur búa til sam- fellt „landslag” úr öllum verkum á staðnum. ÖHmjúkefni Eg sá ekki betur en el Attar og félögum hans hefði heppnast þetta áætlunarverk sitt. Sýningin er afar lífleg, gneistandi af hugviti og átök- um við hin ýmsu efni sem þar eru notuð. Verk svífa um loftin, liggja á gólfi, hlykkjast eftir veggjum eða kúra í hornum. Menn höfðu auðsjá- anlega gefið sér eins víðar forsendur og þeir mögulegast gátu þegar þeir hugsuðu um .^Tijúk efni”. Þarna eru t.d. klæði sem notuð voru í gjörninga á opnun, þrykk af mannsbúkum á lérefti, tjöld, þar sem seiður var framinn öðru hvoru, fyrir utan verk sem flokkast mundu sem einhvers konar bræðingur skúlptúrs og textíl- verka. Talsvert bar á áhrifum Evu Hesse, Josephs Beuys og Claes Old- enburg myndlistarmegin, en pólska listakonan Magdalena Abaka- nowicsz sýndist sterkuráhrifavaldur í verkum þeirra sem virtust hafa fengið þjálfun sína innan textíllista. Oneitanlega bar meir á tilrauna- starfsemi en endanlegum niðurstöð- um á þessari sýningu, en á henni virtist samt rík ja einhugur, hún virk- aöi á áhorfandann sem heild og aö því leyti greip hún hann fastari tök- um en hin stefnulausa documenta. E1 Attar og félagar hans hafa þegar fengiö rós í hnappagatið þar sem 15.000 manns höföu sótt sýninguna þegar aðeins helmingur sýningar- tímans var liðinn og nokkrar erlend- ar liststofnanir höfðu lýst yfir áhuga á annarri sýningu af þessu tagi. Hafi menn áhuga á að skoða documenta sýninguna og ..Stoffvechsel”, þá lýkur þeim báðum um næstu mánaðamót. AI Patricia Hickmann — Bækur soldánsins, verk gert úrgörnum og málm- þræði. Haldin verður kartmílukeppni á brautinni við Straumsvík laugardaginn 25. septem- ber kl. 15. Keppendur mæti kl. 12. ATHUGIÐ AÐ MARGIR NÝIR BÍLAR MUNU MÆTA í KEPPNINA. BMW 520 árg. 1980 Renault 14TL árg. 1978 1 BMW 518 árg. 1980 Renault 14TL árg. 1977 BMW 518 árg. 1977 Renault 12TS árg. 1978 I BMW 323i árg. 1981 Renault 12 station árg. 1979 BMW 320 árg. 1980 Renault 12TL árg. 1977 BMW 316 árg. 1980 Renault 5TL árg. 1973 BMW 320 árg. 1981 Renault4 Van árg. 1977 BMW 320 autom. árg. 1980 Renault 4 Van árg. 1978 Renault 20TL árg. 1978 Rcnault 4TL árg. 1980 Renault 20TL árg. 1977 rtDim Renault 18TS árg. 1980 UHItt Renault 18TL árg. 1979 laugardaga k/. 1—6. | KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 1 Á 1 E 1 c < i c 1 Kennsla hefst , í byrjun október 1 lyrjendaflokkar: Tvisvar í viku fjj ;ramhaldsflokkar: Tvisvar— jrisvar í viku. 1 )pnir flokkar: Einu sinni í viku. 1 Vöalkennarar: Sigríöur Ármann ' >g Ásta Björnsdóttir. Innritun í síma: 72154. V BRLLETSKÓLI 5IGRÍÐRR RRfYlRnn SKÚLACÖTll 32-34 ÓOO Unglingaheim ili ríkisins 10 ára Iþví tilefni verdum við með opið hús að Kópavogshraut 17 sunnudaginn 26. septemher milli kl. 13 og 17. Veitt verðurkaffi og starf heimilisins kynnt. Allir velkomnir, velunnarar og vandamenn. Heimilisfólk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.