Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Síða 7
DV. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER1982. JÆIA. VK> VITUM AÐ NISSAN FRAMLEIÐIR DATSUN BÍLA, EN HVER ER ÞAÐ ÞÁ SEM FRAMLEIDIR NISSAN BÍLA? Líklega hefur þú, lesandi góður, heyrt eða séð áður að Datsun bílar eru framleiddir af Nissan. Það hefur komið ýmsum óvart og e.t.v. líka þér, að Datsun bílar eru ekki framleiddir af Datsun.Nú,í þetta skipti ætlum við að segja þér dálítið, sem þú hefur sennilega ekki heyrt áður. Við hjá Nissan ætlum að fara að framleiða Nissan bíla. Það gerum við auðvitað ekki gagngert til þess að rugla þig í ríminu, heldur vegna þess að okkur finnst að okkar bílar eigi að bera okkar nafn. Þetta breytir auðvitað engu fyrir ykkur, sem akið á bílunum frá okkur.Þið fáið áfram sömu gæði, sömu sparneytni, sömu háþróuðu tæknina í bílum ykkar, sömu frábæru nýtingu bæði farþega- og farangursrýmis og sama straumlínulagaða útlitið, sem þið hafið vanist hjá Datsun. Þessi atriði o.fl. hafa gert kaup á Datsun bílum bestu bílakaupin í dag. Nafnbreytingin skiptir ekki svo miklu máli. Þegar öllu er á botninn hvolft þá hafið þið alltaf ekið á Nissan bílum. Þeir hétu að vísu annað en það var líka allt og sumt. Þið getið þess vegna haftsömu tröllatrú á Nissan bílum og þið höfðuð á Datsun bílunum.Þeir komufrá mjög traustu fyrirtæki, sem er eitt af þremur stærstu bílaframleiðendum heims, þ.e.a.s. Nissan. INGVAR HELGASON HF. SÝNINGARSALURINN V/RAUÐAGERÐI—REYKJAVÍK, SÍMI 91-33560. DATSUN - fullkomnun NISSAN (ækninnar. THF. NAME OF QU.MITY NISSAN NISSAN MOTOR CO. LTD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.