Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Side 13
PV. jLAUGARDAGUR 25; SEPTEMBER1982.
.13
Sjoppur
Sjoppur
Sjoppur
Það þykir vist okki lengur tiltökumál aö sjá svo unga og saklausa stúlku
sem þessa til vinstri handleika vindling. En óneitanlega er manni samt
brugðiðl
orðin að mér áðan. — Þetta er geðsleg-
asta hnáta og ég held því spjalli minu
áfram við hana og umræðuefnið lýtur
enn að strákapörum. Ég nánast hvísla
þeirri spurningu aö henni hvort strák-
amir hafi nokkurn tíma fariö ófrjálsri
hendi um varning sjoppunnar?
Sniffið er
búið að vera
„ Já, já, þeir eru alltaf að reyna það.
Ein hvort þeim tekst það án þess að upp
komist veit ég ekki.”
— Eru þeir að gera þetta til þess að
ganga í augun á ykkur stúlkunum?
„Já, ætli það ekki. Þeir gera þetta til
aö upphefja sjálfa sig og vonast til að
við stelpumar lítum upp til þeirra eftir
á. En við erum ekki svo heimskar. ’ ’
— Hvemig er það, nú var töluvert
um það að unglingar sniffuðu á siöasta
skólaári. Er eitthvað um það ennþá?
„Nei, það er alveg hætt. Eg veit að
minnsta kosti ekki um einn einasta
sem er ennþá í þessu. Þaö vom vissu-1
lega margir sem prófuðu þetta á sinum
tíma, en svo fengu flestir leið á þessu,
og þá datt sjarminn af þessu. Nú eru
unglingar lika miklu betur upplýstir
um skaösemi sniffsins en þegar þaö
byrjaði. Það vita núna allir aö þetta er
stórhættulegt, og því er sem er, að eng-
inn þorir orðið að leggja út í þaö.”
Algleymi
dagsins að Ijúka
— Nú er komin nokkur ókyrrð í
hópinn. Greinilegt er að því algleymi,
dagsins — löngu frímínútunum — er
senn að ljúka. Krakkamir taka aö tín-
ast út úr sjoppunni, en selja aö sjálf-
sögðu glerin sín fyrst og fá eitthvaö
góðgæti fyrir andvirðið til að japla á
þegar aftur er snúið til alvöru lífsins.
Einn strákanna í hópnum hnippir í
okkur DV menn og segir biöjandi
röddu: „Hvemig er það, getiði ekki
skroppið með okkur yfir í skóla og
fengið að taka nokkrar myndir inni i
stofunni hjá okkur. Það er nefnilega
stærðfræði í næsta tíma og ef þið kæm-
uð þá fengjum við örugglega frí?”
— En vitanlega er okkur ekki stætt á
að tmfla skólahald. Bón drengsins er
því synjað og hann röltir álútur í hópi
félaga sinna niður regnblautan stíginn
á vit mengja og algebru.
-SER.
Afsvip teipunnar á þessari myndmá alH eins ráða að hún sjái mjög eftirþvi að
hafa innbyrt svo óhollan vökvaj sem gosdrykkur er, eða hvað?
Ef nemendur verða uppvisir að reykingum i sjoppu þeirri er við heim-
sóttum i Hólagarði i Breiðholti er þeim umsvifalaust visað á dyr. Hér sést
einn örlagasonurinn úti i kuldanum.
— Er sá í mútunum sleppir þessum
orðum, sé ég hvar hinn dregur upp úr
vasa sínum filteraðan vindling og er að
búa sig undir að kveikja í honum þegar
égspyr:
Hvað er aðsjá til þín strákur, ertu
byrjaður að reykja og enn þetta ung-
ur? — Honum verður greinilega nokk-
uð hverft við þessa áleitnu spumingu
og hóstar nokkuö. Þegar hann hefur
svo náð sér verður honum að orði:
„Tja, þetta gera flestir sem á annað
borð mæta hingað í sjoppuna. Það er á
stöðum sem þessum sem maður
lærir aðreykja.”
— Þú segir að læra að reykja. Er það
einhver lærdómur?
Lærdómur og
ekki lærdómur
„Lærdómur og ekki lærdómur. Það
er alla vega mun þægilegra að ánetjast
sígarettunum en kennsluskræðun-
um.”
— Og hvað eru unglingar gamlir nú
til dags er þeir byrja að fikta við vindl-
inga?
„Ætli flestir byrji ekki innan ferm-
ingar. Ég hugsa það. Annars er þetta
misjafnt. En það er vist að mjög marg-
ir eru þegar byrjaðir að reykja þegar
þeir koxnast í áttunda bekk. Að
minnsta kosti allir sem hafa stundaö
sjoppumar að ráði.”
— Og hvað fær unglinga til aö hefja
reykingar?
„Já, hversvegna eru sígarettur yfir-
leitt framleiddar?”
— Það er góð spurning já! — En
svona til að forðast rökræður: Hvað
eyðið þið miklu héma í sjoppunni?
„Við eyðum venjulegast öllum þeim
peningum sem við eigum þegar við
komum héma á morgnana. Og virðist
þá litlu skipta hvað við eigum mikiö
hverjusinni.”
— Þið hafið þá ágæt f járráð?
Ef foreldrarnir
eru þá vaknaðir
„ Ja, það f er dáldiö eftir því hvemig
skapi foreldrar okkar eru á morgnana
þegar við biðjum þá um
monníng”...,,ef þeir eru þá vaknaöir,”
bætir sá í mútunum við — og hann
hefur orðið áfram: „Annars býst ég
við að maður eyði þetta fimmtíu til
hundrað kalli í sjoppuna á hverjum
morgni, ef maðurá þá einhvem aur.”
— Þegar hér er komiö sögu er
sjopputurninn í Hólagarði orðinn al-
gjörlega úttroðinn af unglingum. Og
þeir fáu fermetrar, sem sjoppan er,
gjMTiýttir. Það eru pústrar og stimping-
ar milli manna: ,,Æ, já það brjótast
alitaf út nokkur gauralæti í þessum
strákfígúrum þegar mikið er um aö
vera héma,” segir stúlkan er hvíslaöi
BRÁTT ER ALLRA VEÐRA VON VERTU UNDIR ÞAÐ BÚINN
Mótorþvottur 7 Skipt um bensínsíu í blöndungi
.2 Rafgeymasambönd hreinsuð $ Viftureim athuguð
Mæling á rafgeymi og hleðslu 9 Kælikerfi þrýstiprófað
2 , Loftsía athuguð i j Frostþol mælt
i Skipt um platínur Mótorstilling
& Skipt um kerti Öll Ijós yfirfarin og aðalljós stillt
i IHemlar reyndir
Verð:
4 strokka vél kr. 730.
6 strokka vél kr. 918.
8 strokka vél kr. 1.041.
Auk vinnu er eftirtalið efni innifalið í verði:
Kerti, platínur, frostvari og bensínsía
Gæöaeftirlit meö gæðavörum.
^VÉLADEILD
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
Höföabakka9085539