Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Qupperneq 22
22 DV. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER1982. DV-myndir: Einar Oiason. Það liggur við að sveiflan verði eygð á þessari mynd. — Nýja kompaniið lifs i œfingaplóssi sínu. „TOFF 4» T VR A.ST A VI» JASSIW!" Einhver sérstæðasta hljómskífa þessa árs barst verslunum í síöustu viku. Ovenjuleg er hún í tvennum skilningi. I fyrsta lagi er hér um hreina jass-plötu aö ræöa og flytjendur eru menn af yngri kantinum er svingað hafa saman um tveggja ára skeið. I ööru lagi geymir platan nær eingöngu frumsamið efni eftir meðlimi bandsins, sem telja verður heldur sjaldgæft þar eð hér er á ferðinni fyrsta plata svotil nýrrar jass-grúppu. Landsmönnum gefst þannig tækifæri til að hlýöa á splunkunýtt íslenskt efni úr jassheiminum sem er nokkuð sem ekki hefur gefist á hverjum degi til þessa. Afkvæmið sækir skím sína í íslenska þjóöfélagiö, Kvölda tekur. Og flytjendur eru vitanlega jass- geggjaramir í Nýja kompaniinu, sem telst vera eina starfandi jass-hljóm- sveit okkar af yngri kynslóöínni. Svifið upp á sjöttu hæð Uppi á sjöttu hæð einhvers hússins við Klapparstíg var ákveðið að blaða- maöur hitti Kompanísmeðlimi í viðtali. Þar býr bassaleikari gengisins Tómas R. Einarsson húsvörður með meiru — og síðastliðið miðvikudagskvöld stefndi vísifingur minn á einn dyra- bjölluhnappinn viö þetta tiltekna hús. Eftir hringingu leið nokkur stund, uns Sveinbjöm gítaristi Baldvinsson birtist handan huröar. Hann lóðsaði mig síðan aö lyftu hússins, og þaðan var svifið upp á sjöttu hæð. Hurðum skellt í dyrastafi, heilsast með virkt- um, kaffi hellt í bolla — og ekki síst var plötu bandsins, Kvölda tekur, komið fyrir á grammófóninum. Eftir að hún tók að snúast og fyrstu tónamir stigu fram í stofu Tómasar, var ekki undan ööru komist en að fresta viðtalinu í svo sem fimmtán mínútur, sakir þeirrar gæöasveiflu er liðaöistumaUanærstadda.p>etta hreif mann vissulega — og kólna tók í kaffi- bollunum. Með kassagítar og kontrabassa En svo var ekki eftir neinu að bíða. Fyrsta spumingin var reidd fram. Hvað dró þessa fimmmenninga samaní jassband? „Þannig var að viö Sveinbjöm spúuðum saman í Diabolus in Musica í Kaupmannahöfn sumarið áttatíu og voram þann tíma jafnan að gutla í jassi meö kassagítar og kontrabassa að vopni,” segir Tómas og Sveinbjöm heldur því fram aö þetta samspil hafi þeir fílað ofboðslega og út úr því hafi komið margir góðir hlutir. „Við vorum ákveðnir í að hverfa aftur til Fróns þá um haustið, og við þá tUhugsun fæddist sú hugmynd að stofna tU grúppu heima sem að einhverju leyti myndi einbeita sér að jassi. Við vissum af ágætum trommara íslenskum sem um þetta leyti var búsettur í Köben og höfðum við haft spurnir af því að hann væri einnig í Islandshugleiöingum. Þegar tU kom reyndist þetta vera pilturinn Sigurður Valgeirsson — og það er ekkert að orðlengja framhaldið, hann er jú hér meðal okkar,” segja Tómas og JóhannG. Jóhannsson Sveinbjörn I. Baldvinsson. Sveinbjörn, og Siggi kinkar koUi og veitir jáyrði sitt fyrirþessu. Vomm hver úr sinni áttinni Frændi Tómasar, Sigurbjöm Einarsson, sem spUaði með okkur fyrstu mánuðina kom því tU leiðar að Jóhann G. Jóhanns píanisti gekk tU liðs við bandið. Siggi Flosa kom svo tU sögunnar eftir tveggja mán- aða starf grúppunnar, eða í aðventunni ár- iö nítján hundruð og áttatíu.” — Hvemig hljómuðu svo fyrstu tónar Nýja kompanísins ? „Það ber að taka það fram áöur en þessu er svaraö að hér var kominn nokkuð ósamstæður hópur. Við voram hver úr sinni áttinni — og áttum hver okkar eigin tónlistarfortíð. Til aö byrja með var það því nokkuð á reUíi hvaða tónlistarstefnu bandið ætti að taka, þó svo að aUir væram við miklir jassistar. En það var samt dálítið opið í kring- um þetta fyrst um sinn. I byrjun var tU dæmis rætt um að spUa einhvers konar jass, en flétta svo jafn- framt öðrum stefnum inn í prógrammið. Spumingin var eiginlega sú, hversu mikið rúm hinn hreini jass átti að taka í tónlistarflutningi okkar.’ ’ Jassinn er skemmtilegastur — En s vo hefur j assinn orðið ofan á ? ,,Já, hann yfirtók aUa aðra draumóra mjög snemma — og varð aUsráðandi í tónUstarflutningi okkar.r Okkur varð ljóst að jassinn var skemmtilegastur. Svo þótti okkur hann líka vera dáUtiö ögrandi. Okkur þótti nokkuð töff að ætla að takast á við hann. Þaö kom Uka til aö enginn okkar gat sungið, þannig að rokkið með alla sina áherslu á söng var nær óhugsanlegt. Ef einhver okkar væri búinn þeim hæfUeikum að syngja, þá gæti vel hugsast að við værum í rokkinu núna, hverveit. .. ” — Oghvaðþá? „ Já, ætU við værum þá ekki bara að spila undurljúfa dægurtónlist inni á kontór hjá félaga Brésnev! ” Getum allt eins samið þetta sjálfir — Ekki svo vitlaus hugmynd, já. En svo horfið sé aftur aö alvöranni. Hvers konar jass leiddist Nýja kompaníið inn á eftir að ákveðið var að jassinn skyldí verða í fyrirrúmi? „Við byrjuðum þetta af mikiHi hóg- værð, fóram okkur hægt — og eins og sagt er, spUuðum minna af kappi en forsjá. Til að byrja með tókum við mestan part fýrir lög eftir yngri sem eldri jassista utan úr heimi. Þegar á leið varð okkur ljóst að við gátum aUt eins samið jassinn sjálfir, og því urðu okkar eigin lög æ meira dóminerandi í spilinu eftir þvi sem lengra leið og við náðum betur tU hver annars. Auövitaö leggjum við mismunandi áherslu á jassstefnur—og lög okkar virtust því viö fyrstu áheym koma svona nokkuð úr sinni áttinni hvert. En það kom samt ekki í veg fyrir það aö við gætum hlýtt á lög hver annars án verulegra óþæginda. Nýja kompanísheimur Eftir að við spiluðum þessa tilbúninga okkar svo meira, þá varð smám saman nokkurs konar Nýja kompanís-keimur af þeim. Þó lögin komi aUtaf úr sinni áttinni hvert, þá fá þau aUtaf þennan Kompanísglampa fyrr eða síðar, sem gerir þau ekki eins ólík hverju öðra og þau virðast í fyrstu.” — Og hvemig skUgreinið þið þá þessa Nýju kompanístónlist? „Þetta erkuldasveifla,”segirSiggi trommari, en hinir reyna að malda eitthvað í móinn. Eftir nokkrar vanga- veltur og útskýringar Sigga á þessu heiti sínu er honum finnst vera lýsandi fyrir þá tónUst er þeir leika, verður Tómasi að orði, og greinUegt er aö hann hefur hugsað mál sitt vel, enda fer þar aðaljassfræðari bandsins: Teljumst til hefðbundnari jassista „Eg held við hljótum að teljast til hinna hefðbundnari jassista. Þó má kannski líka kenna áhrif af jassrokki í okkar lögum, en svingið hefur þó alltaf yfirburði yfir rokkelementið.” Þetta sagði Tómas, en greinilegt var að Siggi var ekki að öllu leyti sammála þessum orðum: „Eg vil kalla þetta kuldasveiflu samt sem áöur,” rymur hann. Og skiptir þá engum tog- um aö aftur hefjast hinar mestu vangaveltur og hártoganir, svo miklar að blaöamaður dettur niður á þá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.