Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1982, Síða 23
DV. LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER1982.
23
hugsun aö meö þessari vondu spum-
ingu sinni hafi hann fyrirgert frekari
samspili félaganna.
— Þaö var því með hálfum huga
sem ég bar upp næstu spumingu — og
hljóðaöi hún á þann veg: Er Nýja
kompaníið að rembast viö aö móta sinn
eigin tónlistarstíl?
„Auðvitaö höfum við okkar stíl, en
tilkoma hans, á ekkert skylt viö
rembing. Þetta Nýja kompaníssánd
sem viö teljum einkenna okkar tón-
listarflutning er til oröiö vegna þess að
allt frá stofnun bandsins höfum viö æft
saman þetta tvisvar til þrisvar í viku,
plús helgarnar. Þannig er samspil
okkar oröið alveg gífurlega mikiö. Við
þekkjum orðiö mjög mikið hver inn á
annan. Þetta hefur sett nokkurn
stimpil á tónlist okkar — og þaö er að
viö höldum, ekki neikvæður stimpill.”
Að finna fyrir návist hinna
spilaranna
— Er hægt aö lýsa fílingnum sem
hlýst af því að spila jass, í fáum og
meitluðum orðum?
Kompanísmenn veröa þungt hugsi,
halla höföunum upp í loft, góna á Ijósa-
krónur í þungum þönkum, en þegja.
Loks veröur einum þeirra aö oröi:
„Ja, fílingurinn er annars vegar sá
aö finna fyrir návist spilaranna.
Hins vegar er þaö tilfinningin fyrir til-
heyrendunum þegar maöur er að spila
læf. .. þið vitið strákar, þegar einhver
ykkar tekur sóló og þaö er klappað aö
því afloknu, þá fleytir þaö ykkur yfir
allt þaö sem eftir er af tónleikun-
um.. .ekki satt?
Tómas R. Einarsson.
—Fjórmenningamir er þögöu gaum-
gæfa þessi orö vandlega, klóra sér í
vöngum eöa hnakka, og játayþessu svo
hver og einn að lokum. Þeim er mælti,
léttir stórlega, þar hafði hann flutt
þjóöinni mikinn sannleik.
Megin þáttur jassins er
óákveðinn
En hvaö er þaö sem fæst út úr jass-
inum umfram rokkiö?
„Það er miklu meira frelsi í jasstón-
listinni. Megin þáttur jassins er
óákveðinn, á meöan rokklögin eru
meira einskoröuö viö sömu útsetn-
inguna.
I raun er lagstefið sjálft í jasstón-
listinni bara afsökun fyrir þeim sól-
óum sem hver og einn spilari fremur í
laginu. En þaö veröa líka allir að vita
hvaö sólóistinn er aö gera og hvert
hann stefnir í sólói sínu. Hann hefur
viss áhrif á undirleikinn, en undirleik-
ararnir veröa líka aö hafa sín áhrif á
sólóistann. Þaö verða því allir að hafa
eyrun á stilkum til að meta rétt þá
hluti sem em að gerast í kringum
hann.”
— Plata Nýja kompanisins kom út
fyrir rúmri viku, eins og fyrr greinir.
Hún geymir átta lög, sem öll eru frum-
samin af meðlimum bandsins, utan tvö
lög sem teljast vera íslensk þjóðlög.
Eru þau í útsetningu Jóhanns G. pían-
ista, sem raunar á bróðurpartinn af út-
steningum laga á plötunni.
Kvölda tekur, tekin upp Ifffs
Kvölda tekur, er tekin upp lífs, þaö
er aö segja, öll hljóðfærin eru tekin
upp í einni svipan, en ekki er stuðst
viö grunn í byrjun, eins og jafnan
tíökast viö plötuupptökur. „Okkur
fannst nauðsynlegt aö taka plötuna
upp á þennan hátt. Jassinn kallar bein-
línis á það. Hann er lifandi og ótækt er
aö mixa hann saman,” segja þeir
Kompanísmenn.
— Eins og jass-unnendum ætti að
vera kunnugt um, þá átti téö plata aö
birtast landsmönnum í maímánuði í
Sigurður Valgeirsson.
vor, en hún var tekin upp í mars. En
leiðar tafir komu í veg fyrir aö af
útkomu hennar gæti orðið þá. Fyrst
ber aö nefna mistök í mótagerð plöt-
unnar sem rekja má til fýrirtækis
nokkurs í London. Svo klikkaöi
pressan hjá Ha&ifirðingunum og má
raunar svo áfram telja. En platan
kom samt sem áöur út í síöastliöinni
viku,” og mátti varla seinna vera, því
í okkar skilningi eru þetta oröin
gömul lög sem finna má á plötunni —
því ný lög hafa bæst viö.
Platan gefur góða innsýn
í tónlist okkar
— En hvemig finnst ykkur svo
útkoman vera?
,,Eigum við ekki aö segja aö okkur
finnist hún vera stórgóð. Vissulega
má alltaf gera betur.
Viö teljum samt aö þessi plata gefi
ágæta mynd af þeirri tónlist sem við
viljum miðla, og gefi fólki nokkuð
góða innsýn inn á þær brautir sem
tónlist okkar mun væntanlega taka á
næstu mánuöum og árum.
Sem sagt hressir meö útkomuna —
og vonandi er aö fólk geti átt góðar
stundir viö aö hlýöa á hana.
— Mun platan brjóta ísinn fyrir
unga jassista sem enn hafa ekki
þorað að stofna til hljómsveitar?
„Þaö er ómögulegt um að segja, en
þaö er óskandi. Viö höfum ver-
ið dálítið einmana í þessum
bransa til þessa, ef litiö er til meðal-
aldurs okkar og þess aö þaö hafa
helst veriö eldri tónlistarmenn sem
eitthvaö hafa starfað í jassinum til
þessa.
Platan er aö minnsta kosti okkar
lóð á vogarskáhna í því tilliti aö gefa
ungum jassistum tilefni til aö stofna
band.”
Templurum
blótað . . .
— Þessu næst fórum viö að tala um
leiöir til þess að jassinn ætti greiða
Sigurður Flosason.
leið inn í hjörtu ungmenna. Eftir
óteljandi vangaveltur komumst viö aö
þeirri sjálfsögöu niðurstöðu, að til
þess þyrfti litla klúbba sem tækju
þetta hundraö og fimmtíu manns í
sæti og kleift yrði aö bjóða jipp á lif-
andi jass á síðkvöldum. Þar gæti fólk
hist, rætt málin yfir kaffibolla eöa
einhverju þaöan af sterkara jafn-
framt því sem tónaflóöið kryddaði
umræðuefniö.
Aö mati Kompanísmanna ylgdi þó
sá böggull skammrifi í þessu
sambandi aö til aö rekstrargrund-
völlur væri fyrir stööum sem þessum,
þá þyrfti leyfi fyrir sölu bjórs aö
koma til. Þessi draumur þeirra yröi
því vart aö veruleika fyrr en eftir
nokkur ár, jafnvel áratugi. Og svo
var farið að blóta templurum og
öörum minnihlutahópum sem standa í
vegi fyrir jafn sjálfsögðum hlut og
sölu bjórs í þessu frjálsa landi sem
við héldum jú að ísland væri.
Sá draumur
er notalegur
Já, sá draumur er notalegur aö hér-
lendis væri hægt aö rölta inn á knæpu
og hlusta á jassgeggjara fleyta
sveiflu yfir sali. En sá draumur er
því miður ekki enn orðinn að veru-
leika.
Platan Kvölda tekur er hins vegar
blákaldur veruleikinn. Og vissulega
er fyrsta skrefiö til eflingar íslensks
jass, að hlusta á það afkvæmi félag-
anna í Nýja kompaníinu.
-SER.
Aðstoðarstúlka
óskast í hlutastarf á tannlæknastofu í Kópavogi.
Tilboö sendist auglýsingadeild DV, Síðumúla 33,
fyrir kl. 17 mánudaginn 27. sept. merkt: „Að-
stoðarstúlka 999”.
Notaðir tyftarar
í miklu úrvafí
2. t raf/m. snúningi
2.5 t raf
1.5 t pakkhúsiyftarar
2.5 t disil
3.2 t disil
4.3 t disil
4.3 t disil
5.0 t dísil m/húsi
6.0 t dlsil m/húsi
K JÓNSSON & CO. IÍF. £2
srii.L
Vitastíg 3
Sími 91 26455
TILBOÐ ÓSKAST
í EFTIRFARANDI
BIFREIÐAR
í TJÓNSÁSTANDI:
BMW 520 Iárg. 1982.
Cortina 1300 árg. 1979.
Cortina 1600 GL1979.
Range Rover árg. 1974.
Toyota Corolla station árg. 1980.
Ford Capri árg. 1972.
Austin Allegro árg. 1977.
AudilOOLSárg. 1975.
Lancer árg. 1975.
Taunus 17 M árg. 1971.
Ford Grand Torino árg. 1974.
Scania Vabis, rúta, 48 manna, árg. 1967.
Vauxhall Viva 1972.
Honda bifhjól MT 50 ’81.
Bifreiöarnar verða til sýnis að Melabraut 26,
Hafnarfirði, laugardaginn 25. sept. frá kl. 1—5.
Tilboðum sé skilað til aðalskrifstofu, Laugavegi
103, fyrir kl. 5 mánudaginn 27. sept.
Brunabótafélag íslands.
Nú er hún komin ...
Vélin, sem tengist
köldu vatni eingöngu
eða heitu ög köldu
— sama vélin —
en þú velur með
spamaðartakka
ódýrasta þvottamátann,
við þínar heimilisaðstæður
Bwjífefcáiáfoý&tw Hf
Hitun
Þvottur
Vinding
Þurrkun
• Þéýtívinding með 850 sn. á mín.
• Tekur 5 kg af þui+þvotti.
• Hefur 10 grunnþvottakerfi.
• Sjálfstilltur forþvottur og aðalþvottur.
• Auk þess sjálfstætt hitaval fyrir 30,40,
60 og 95 gráðu heitan þvott (suða).
^UHumsm
Armúla 3 ■ Simi 38900