Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Side 1
DAGBLAÐIO — VÍSIR
229. TBL. —72. og 8. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1982.
RITSTJÓRNSIMI 86611
AUGLYSINGAR OG AFGREIOSLA SIMI 27022
. t
'
Guðmundur G. Þórarinsson framsóknarþingmaður:
KOSNINGAR\,
MARS EÐA APRIL
Mikil átök framundan
„Eg fæ ekki annað séð en að kosn-
ingar veröi í mars eöa apríl og ég
held að framsóknarmenn verði að
búa sig undir það. Þaö er Ijóst að
framundan eru tímar mikilla
átaka,” sagði Guðmundur G. Þórar-
insson alþingismaður, á fundi Fram-
sóknarfélags Eeykjavíkur sem hald-
inn varígærkvöldi.
Taldi Guömundur fyrirsjáanlegt
aö stjórnarandstaðan myndi fella
bráðabirgðalögin þótt forsætisráð-
herra væri annarrar skoöunar. Hann
hafnaði þó þeirri hugmynd að láta
reyna á þetta sem fyrst með því að
leggja lögin fram í neðri deild, þar
sem rikisstjórnin hefur ekki meiri-
hluta. ,,Eg er þeirrar skoðunar að
það sé of alvarlegt mál að láta
stjómarandstöðuna fella lögin fyrir
1, desember, — áöur en þau hafa
tekið gildi í heild. Eg vil því láta þau
fá þingræðislega meöferð, leggja
þau fram í efri deild og ræða í nefnd-
um,” sagði Guðmundur.
Guðmundur taldi aö umræðan
hefði verið of einskorðuð við bráöa-
birgöalögin, þar sem þau væru ekki
nema hluti af því sem fram ætti að
ganga. Einnig hefði veriö samiö um
breytingar á vísitölukerfinu og or-
lofslögum og um láglaunabætur.
Vildi hann leggja þessi lagafrum-
vörp öll fram í einu og láta stjómar-
andstööuna ræða þessar efnahagsaö-
gerðir í heild. „Ég er þó þeirrar skoð-
unar, svo ég segi hug minn allan, að
stjómarandstaðan muni fella þessi
lagafmmvörp öll, án tillits til þjóðar-
hags. Það verður ekki vegna mál-
efna heldur vegna þess að það er enn
hatur vegna þess hvemig þessi ríkis-
stjórn var mynduð.”
Aðspurður af fundarmönnum
sagöist Guðmundur ekki telja neinar
líkur á aö lögin kæmust gegnum
þingiö með fjarvem einhverra þing-
manna stjómarandstöðunnar eins og
rætt hefði verið um. Auk þess sagðist
hann ekki hafa neina trú á þeim sög-
um að gert hefði verið samkomulag
við Jón Balvin Hannibalsson um að
hann styddi bráðabirgðalögin gegn
því að „Gunnarsmenn” styddu hann
í prófkjöri. Taldi hann því einsýnt að
rjúfa þyrfti þing og efna til kosninga
snemma á næsta ári. ÓEF
Á myndinni sóst hluti
skemmdanna i garðinum.
Lögregiumenn fara inn á vinnustað hins grunaða. A minni myndinni er biHinn sem skotið var á.
DV-myndir Einar Óiason.
Skotið á bfl
Einn maður
íhaldi
Maður, sem hefur það að atvinnu
að svíða hausa, er nú í haldi hjá lög-
reglunni í Reykjavík, gmnaður um
að hafa ölvaður framið skemmdar-
verk með því að sk jóta af rif fli.
Maöur þessi var handtekinn um
miðjan dag í gær eftir að skotfæri
fundust í fórum hans og riffill fannst
á vinnustaðhans.
Lögreglunni var tilkynnt um
klukkan 14 í gær að hjólbarðar á bíl
einum á Kirkjusandi hefðu verið
skotnir sundur með byssu. Eigandi
bílsins hafði farið með sprungin
dekkin á hjólbarðaverkstæði. Þar
kom í ljós hvers kyns var. Fundust
riffilskot í hjólbörðunum.
Fljótlega beindist grunur að
ákveðnum manni. Hafði lögreglan
tal af honum. Fundust þá, sem fyrr
sagði, skotfæri og riffill. Var maður-
inn ölvaöur, aö sögn lögreglunnar.
Hann hafði ekki verið yfirheyrður í
morgun, var þá sofandi í fanga-
geymslu. Átti að láta hann sofa vel
úr sér áfengisvímuna.
-KMU.
Grafið inn
í garðinn
— en ekkert samband haft við íbúana
„Það em nokkrar skemmdir á lóð-
inni og þetta var gert án þess að láta
okkur vita,” sagði húseigandi við
Garðaflöt í Garðabænum, en starfs-
menn Pósts og síma gengu nokkuð
nærri lóö við hús hans er þeir grófu
skurö vegna jarðsíma, eins og sjá má á
meöfylgjandi mynd. „Það hafa oröið
skemmdir á girðingu, á trjágróðri og
matjurtagarði. Eg er ekki í nokkrum
vafa um aö þaö hefði verið hægt aö
komast hjá megninu af þessu ef talað
hefði verið viö okkur,” sagði húseig-
andinn.
Hjá Pósti og síma fengust þau svör
að sjálfsagt væri aö tala við fólk ef
hrófla þyrfti viö göröum vegna fram-
kvæmda, en ekki fengust nein svör um
af hverju það var ekki gert í þessu til-
felli. ás.
Hef ur Sovétför Bjögga
þjóðf élagsleg áhrif?
— sjá POPPIÐ á bls. 37
Konungur f rumskógarins
urrar framan í óvininn
— sjá myndasögur bls. 30 og 31
ÉGDREPHANN
*
— sjá sjónvarp í kvöld bls. 39
£r e/ns og hvert annaö endemis rugl
— segir Ámi Gunnarsson, um að leitað hafi verið til hans um stuðning við bráðabirgðalögin
„Það er algjörlega úr láusu lofti
gripið að forsætisráðherra eða
nokkur annar maður úr stjómarher-
búðunum hafi leitað til min um
stuðning við þessi bráðabirgðalög,”
sagði Árni Gunnarsson alþingismað-
ur í samtali við DV í morgun. I grein
í Morgunblaðinu í morgun er sagt að
Árni hafi átt viðræður við aðstoðar-
mann forsætisráðherra um hvort
hann myndi stuöla að framgangi lag-
anna á Alþingi. „Þetta er eins og
hvert annað endemis rugl í Murgun-
blaðinu,” sagðiÁmi.
„Eg hef hins vegar lýst þeirri skoð-
un minni, frá því að bráðabirgðalög-
in komu fram, að ef Alþýðuflokkur-
inn ætlar að fella þau þá verði hann
að leggja fram konkret tillögur og
aðra valkosti, — en ekki bara vera á
móti til að vera á móti. ”
Muntu þá greiða atkvæði gegn
lögunum?
„ Afstaða sú sem formaöur Alþýðu-
flokksins hefur lýst yfir er enn í fullu
gildi og önnur skoðun hefur ekki
komið fram af minni hálfu,” sagði
ÁmiGunnarsson.
Jón Baldvin Hannibalsson sagöi í
samtali við DV, er hann var spurður
um afstööu sína til bráöabirgöa-
laganna, að þeir menn sem héldu aö
hann myndi stuðla að framgangi
þeirra óbreyttra tilheyrðu ekki því
einvalaliði sem læsi ritstjómargrein-
ar Alþýðublaðsins.
Þingflokksfundur Alþýðuflokksins
stóð í alian gærdag og var boöaður
aftur í skyndi í morgun.
ÖEF