Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 32
* Frjálst,óháð dagblað O áLJL RITSTJÓRN 1 SÍÐUMÚLA12- AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR SKRIFSTOFA AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11 --—-------------------------------------1 27022 Ofurölvi Rússi ók aftan á Mereedes Bens bíl fyrir utan veitingahúsiö Broadway um klukkan eitt í nótt. Rússinn er starfsmaður rússneska sendiráðsins. Þegar lögreglan kom á vettvang í nótt læsti Rússinn sig inn í bílnum, neitaði að opna og veifaði diplómatapassa framan í lögregluna. Þar við sat til klukkan hálffjögur í nótt, en þá ók lögreglan mönnunum heim í sendi- ráðið og ekkert var frekar gert við þá. Atvik þessa máls eru þau að maður, er hafði farið í bíó í Bíóhöll- inni klukkan ellefu, beið út í bíl eftir félögum sínum. Tók hann eftir því hvar tveir menn koma ofurölvi út úr Broadway með tveimur ungum stúlkum og fóru þau beint upp í bíl, sem þau voru á. Ekki tókst betur til en svo að þegar aka átti bílnum i burtu, bakkaði maðurinn á Mercedes Bens bíl, er var þarna hjá. Átti þá að aka í burtu. Maðurinn, sem var að bíða eftir félögum sínum.hljóp þá út úr bílnum og skrifaði númerið á bílnum upp. Styggðist þá hinn ölvaði bílstjóri við, stoppaði og steig út úr bílnum. Kom þá í ljós að þarna voru Rússar á ferð. Dyravörður í Broadway kom í þessu út á hlaðið og fylgdist með at- burðum. Náði hann í þjón veitinga- staðarins sem átti Mercedesbílinn og fór Rússinn að tala við hann. Bauð hann honum peninga og sýndi dipló- matapassann. Dyravörðurinn vildi hins vegar ekki leysa málið á þennan hátt. I því kom lögreglan Eftir smá stund fór Rússinn inn í bíl sinn og læsti honum. Komu þá fleiri lögreglubílar og var lagt fyrir aftan og framan bíl hans, þannig að hann kæmist hvergi. Er lögreglan ætlaði að tala við manninn sýndi hann þeim dipló- matapassann og neitaði að tala við þá. Við þetta sat til klukkan hálf- fjögur í nótt er ákveðið var að aka bílnum fyrir Rússana í rússneska sendiráðið. Vegna diplómataréttinda gat lögreglan ekki handtekið Rússann í nótt. -JGH. —læstisig inni íbflnum ogveifaði diplómata- passa ÖLVAÐUR RÚSSIKRÓAÐ- UR AF EFTIR ÁREKSTUR NYJA AGFAFILMAN ÓTRÚLEGA SKÖRP OG NÆM FYRIR LITUM ÓDÝRARI FILMA SEM FÆST ALLS STAÐAR Borgarráð samþykkir: Þriðjungs hækkun á heita vatninu — hætta á vatnsskorti í vetur Sænska krónan felld um 16% 16% gengisfelling sænskukrónunn- ar var aðalinntakið í efnahagsráð- • stöfunum hinnar nýju stjórnar Olofs Palme, sem hann kynnti í sænska út- varpinuímorgun. Sagöi hann svo míkla gengisfell- ingu nauðsynlega til þess að leiðrétta gengissig sem verið hefur á sænsku krónunni á erlendum mörkuðum og til þess þannig að auka álit hennar út á við. — Jón Elnar í Osló. LOKI Voru Rússarnir / kaf- bátaleik við Broadway? Borgarráö hefur samþykkt að hækka gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur um 30,8% frá 1. október næstkomandi. Segir í bókun borgarráðs að þessi samþykkt sé gerö í trausti þess að samsvarandi hækkun verði staöfest á næstu f jórum verðlagstímabilum. Á fundi stjómar veitustofnana, sem haldinn var í síðasta mánuði, lagði Jóhannes Zoega hitaveitustjóri til að gjaldskrá Hitaveitunnar yrði hækkuð um 56% til aö fjárhag stofnunarinnar yrði komið í rétt horf. Fyrirsjáanlegt er að vatnsskortur verður í Reyk ja vík í vetur ef um langvarandi frosthörkur verður að ræöa. Um 500 ibúöarhús eru reist í borginni á hverju ári, en Hita- veitan hefur hins vegar ekki haft fjár- hagslegt bolmagn til aö sinna borunum eftir heitu vatni til að mæta aukinni þörf. Á borgarráðsfundinum var einnig samþykkt tillaga frá Guðrúnu Jóns- dóttur um að stjóm veitustofnana verði falið að hefja undirbúning að því að búa borgarbúa undir hugsanlegan vatnsskort hjá Hitaveitunni á komandi vetri. Segir í tillögunni að undirbúning- urinn ætti að vera fólginn í fræðslu sem miði að því að nýta vatnið sem best, svo og ráðgjöf um bætta einangrun húsa. ÓEF Sauðfjárfækkunin: „Mér hafa fundist undirtektir bænda mjög dræmar við þeirri ákvörðun Framleiðsluráðs aö láta fækka fé um fimmtíu þúsund. Ég á von á því að ekki verði af þessari fækkun í haust,” sagði Halldór Guðmundsson stöðvarstjóri slátur- húss Sláturfélags Suðurlands á Selfossi í vlðtali við DV. „Annars virðist þetta mál allt vera mjög í lausu lofti. Mér skilst að það standi á fjárveitingum til fækkunar- innar og því hvað bændur eigi að fá mikið 1 sinn hlut fyrir vikið. Það er raunar margt annað sem stendur í vegi fyrir því að af þessari sauðfjár- fækkun verði í haust. Ef til hennar kæmi myndi sláturtíðin til dæmis lengjast aö mun, og ég sé ekki að við höfum nægan mannafla til að mæta slíku,” sagðiHalldórennfremur. Ráðgert er að hjá S S á Selfossi, sem er stærsta sláturhúsið á Suður- landi, verði slátrað um fjörutiu þús- und f jár í haust. Kvaðst Halldór ætla aö það væri heldur minna en undan- farin ár. -SER. Mjólkurfræðingar: EKKERT SAMKOMULAG Lítið þokast i samkomulagsátt á gær. Fundurinn hófst um klukkan þrjú boðaður klukkan hálftvö í dag. sáttafundi í deilu mjólkurfræðinga og lauk fjórum tímum seinna. Annar Mjólkurfræðingar hafa boðað verkfall sem haldinn var hjá sáttasemjara í sáttafundur í deilunni hefur verið frámiðnættiínótt. ÓEF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.