Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER1982. 5 /innuuppbyggingu og mælti gegn ílveriogstóriðju. „Opin "á/yktun Talsverðar umræður urðu um ályktunina við afgreiðslu í bæjarstjóm á þriðjudaginn. Þar kom fram að bæjarfulltrúar eru ekki algerlega samstiga í stefnumörkun at- vinnumála, jafnvel lásu þeir mis- munandi meiningar út úr ályktuninni. Gunnar Ragnars benti á að þótt í ályktuninni stæði „orkufrekur iðnaður” þá væri nokkuö ljóst aö næsta fyrirtæki í þeim iðnaði yrði álver. Valgerður Bjamadóttir áréttaði af- stöðu Kvennaframboðsins til álvers og stóriðju. Sigurður Oli Brynjólfsson sagði að „stóriðja” hefði verið strikuö út úr uppkasti ályktunarinnar en „orkufrekur iðnaður” settur í staðinn. Það væri ekki það sama og það væri rangtúlkun aö skilja annað út úr ályktuninni en í henni væri meint. Freyr Ofeigsson hafði þann skilning á ísiensku máli að álver félli undir orkufrekan iðnað. Haföi hann á oröi aö „stór-iönaður” væri lausnarorðið? Sigurður Oli sagði einnig að gera yrði þá kröfu til þeirra sem túlkuöu þessa ályktun, að þeir læsu hana, og geröu sér grein fyrir hvað í henni stendur, í stað þess að lesa það út úr henni sem þeim hentaöi og dytti í hug. Það kom líka fram viö umræðurnar að ályktunin væri „opin” í orðalagi, þannig að innan hennar geti rúmast ólíkar skoðanir bæjarstjórnarmanna. Þar með geti þeir komið fram sem ein heild út á við í þessu mikilvæga máli. Viðræður við ráðherra Bæjarstjórn Akureyrar lét þetta ekki duga. Hún samþykkti einnig, samkvæmt tillögu Gunnars Ragnars og Sigurðar J. Sigurðssonar, aö taka upp viöræður við iðnaðarráðherra til þess: a) að afla upplýsinga um uppbyggingu orkufreks iðnaðar og hvaða tegundir iðnaöar komi helst til greina á næstu árum. b) aö skýra afstöðu bæjarstjómar til orkufreks iönaöar á Eyjafjaröar- svæðinu og koma á skoöanaskiptum milli ríkisvalds og bæjarstjómar um það efni. Þá segir að lokum í samþykkt bæjarstjórnar Akureyrar: „Bæjar- stjórn hvetur önnur sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu til að efna til sams konar viðræðna við ríkisvaldið og lýsir áhuga sínum á samvinnu við þau um þess konar viöræður.” -GS/Akureyri. VERKMENNTA- SKÓLI í FÆÐINGU ÁAKUREYRI — Kennsla í málmiðnaðardeild hefst f næstu viku Bæjarstjóm Akureyrar hefur sam- þykkt að senda nefnd til viðræðna viö menntamálaráðuneytið um stofnun verkmenntaskóla á Akureyri. I nefndinni eiga sæti bæjarfulltrúamir Sigurður Oli Brynjólfsson, Helgi Guð- mundsson og Sigurður J. Sigurðsson. Fyrir nokkru var ákveðið að af stofnun verkmenntaskólans yrði. I samræmi við það er að ljúka byggingu fyrsta áfanga skólabyggingar vestan Þórunnarstrætis, surnian dælustöövar hitaveitunnar. Bæjarstjóm Akureyrar markaði á sínum tíma þá stefnu aö sameina framhaldsmenntun á Akureyri í meginatriðum undir tvo „hatta” þ.e. verkmenntaskólann og mennta- skólann. 1 verkmenntaskólanum eiga að sameinast þau framhaldssvið sem mít þú breyta til? nafnið gefur til kynna; iðnskóli, vél- skóli, tækniskóli, hússtjórnarskóli og framhaldsdeildir á verslunar-, hjúkrunar-og uppeldissviðum. I fyrsta áfanga skólabyggingarinnar verða smiðjur málmiönaðardeildar. Bóklegt nám veröur áfram í Iðn- skólanum. Reiknað er með aö kennsla geti hafist í næsta mánuði. Þessi áfangi er ekki nema um 10% af þeirri byggingu sem fyrirhuguð er en byggingarhraöi ræðst eðlilega af fjár- veitingum. Þegar hafist var handa við bygginguna haustiö 1980 var reiknaö með að hún kostaöi í heild álíka mikið og einn skuttogari. Síðan hafa verið keyptir margir skuttogarar en aðeins er lokið við 1/10 hluta skólans. -GS/Akureyri. Opið laugardaga k/. 9—13. Hárgreiðslustofa HELGU JÓAKIMS Reynimel 34. simi 21732 Mikiðúrvalaf VASATÖLVUM TÖLVUÚRUM ATH. Nýtt heimilisfang — Þingholtsstræti 1 BANKASTRÆTISMEGIN. -UMBOÐIÐ, SÍMI 27510. Breidir lodfódradir kulda- skór frá Cíarks Tegund: Arina Stæröir: 36 1/2—41. F breidd. Litir: Dökkbrúnt og svart vatns- variö rúskinn, gærufóðrað. Verd kr.: 967,00 Teg.: Snow Boot III Stæröir: 361/2-41. D breidd. Litir: millibrúnt, vatnsvariö leður, kuldafóöur. Verdkr.: 1.395,00 Tegund: Simplon Stærðir: 36 1/2—41. Dbreidd. Litur: millibrúnt, vatnsvariö leður m/ullarfóöri. Verökr.: 923,00 Verdkr.: 923,00 SKOSEL Opið laugardaga Laugavegi 60 Simi 21270 kl. 10-12 (•] Hljomleikar sem a/lir veröa að mæta á TÓNLEIKA* udaginn 10 HÁSKÓLAB'n'bciW M 30 .auaardag'nn 9- °K ^Forsala aðgöngumiða er í Háskólabíói frá kl. 16. í dag * og næstu daga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.