Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1982, Side 11
DV. FÖSTUDAGUR 8. OKTOBER1982.
11
Menning Menning Menning
íleit
að...?
Bragi Ásgeirsson opnaði mál-
verkasýningu 25. september að Kjar-
valsstöðum og sýnir þar 88 mynd-
verk. Sýningin er opin daglega frá kl.
14—22. Síðasti sýningardagur er 10.
okt.
Sérstæður
listamaður
Bragi Ásgeirsson hefur um langt
árabil haft nokkra sérstöðu í íslensku
málverki. Hann hefur ekki aðeins í
listsköpun sinni notað hefðbundna
tækni heldur í ljósi nýrra möguleika
sett inn á myndflötinn ólika hvers-
dagslega hluti sem hann hefur gjarn-
an fundið, og eru skráðir ákveðinni
reynslu og flokkast að öllum jafnaði
undir drasl. Listamaðurinn notaði
síðan þessa hluti til að byggja upp
persónuleg, táknfræðileg kerfi. I
þessum myndum kom einnig fram
fádæma þekking á ólíkum efnum og
tækni sem undirstrikað hafa hans
persónulegastíl.
/ tvennt
Listamaöurinn sýnir nú 88 ný
myndverk að Kjarvalsstöðum. Það
fyrsta sem maöur tekur eftir hér á
sýningunni er hve hún er sundurslit-
in og verkin innbyrðis ólik. En með
nokkurri einföldun getum viö þó sagt
að sýningin skiptist í tvennt:
abstraction og fígúratífar myndir.
Það er þó ekki aö undra því listamað-
Á stríðudanslnn (Tango Jalousio),
1981-82.
urinn hefur oft þrætt einstigið milli
þessara vegg ja myndmála.
Abstraktmyndimar hér á
sýningunni bera þó fyrst og fremst
vott um ákveðna leit og efnisrann-
sóknir hjá listamanninum. Vart
getum við talað hér um neinar at-
hyglisverðar niðurstöður; þó er víst
að „slettimyndimar” gefa til kynna
ákveðna möguleika (sérstaklega
hvað varðar efni tré og sement?)
sem gaman væri að sjá í stærri hlut-
föllum og ítarlegri úrvinnslu.
Myndlist
Gunnar B. Kvaran
fígúrur
En fígúrumyndirnar aftur á móti
vitna umfram allt um listræna
reynslu og þekkingu. Hér teiknar
Bragi konur og fugla þar sem ná-
kvæm og skýr línan er sem andsvar
við hrjúfu yfirborði flatarins. Það er
sem hin tæra lína magni upp efnis-
kennd myndarinnar og þessi hrjúfi
Fuglinn ífjömnni, 1981—82.
Ljóam. GBK.
flötur ali af sér hina hreinu línu.
Þessar myndir sýna vel hvernig
listaverk njóta reynslu fyrri verka.
En þýöir það þá að listamaöurinn
eigi auðvelt með að skapa og fram-
kvæma þessi verk? I raun fær áhorf-
andinn það á tilfinninguna þegar
hann skoðar sýningu Braga að
myndirnar séu unnar átakalaust.
Það virðist sem ekki sé tekist á við að
umbreyta eða þvinga áfram mynd-
málið. Eða er það nægilegt að setja
aðeins fígúrur inn í ákveðið kerfi
sem listamaðurinn hefur skapað?
Það er því sem figúrurnar skorti
ákveðna umfjöllun eða úrvinnslu
svo þær verði ekki eingöngu söguleg
endurtekning eða laglegt handbragð.
Myndimar bera ekki í sér þá sköp-
unar- og endumýjunargleði sem við
finnum oft í eldri „samhrúgunar-
myndum” listamannsins. Hér eru
það frekar ljóðrænar stemmningar
sem hafa tekið við af hinu djúpa
hversdagslega táknmáli.
En biöum við, látum okkur sjá, því
Bragi er eflaust einn af hæfileika-
meiri listamönnum hériendis, eins
og kemur skemmtilega fram, þegar
hann afslappað dregur upp og litar
verkið „Ástríðudans (Tango Jalou-
sie)”!!
GBK
Hverfisteinar
Rafdrifnir hverfisteinar 220 volt.
Steinninn snýst 120 snúninga á mín. í báðar áttir.
Verðkr. 1.728, — m/söluskatti.
Sendum hvert á land sem er.
Máð % SBSf BE B g | .
/ ™ isr ss m ' 7r VÉLAVERSLUN /
Ármúli 8-105 Reykjavik - Simi 8-5840.
VÖRUFLUTNINGA
ÞJÓNUSTA
FYRIR ÖLL
BYGGÐARLÖG
Á SUÐUR-
NESJUM
hefur flutt þjónustu sína á Vöruflutninga-
miðstöðina Borgartúni 21, Reykjavík. Sími
10440.
Tekið á móti pöntunum í síma 92-7071 og
92-7202.
Nú er tækifæríð að eignast nýjan bíi á mjög hagstæðum
greiðslukjörum
FIAT125 P
er búin flestum þeim þægindum
sem miklu dýrari bílar státaaf, við
bendum á vandaða innróttingu,
tvöfait hemiakerfi. Halogen Ijós,
rafknúna rúðusprautu, upphitaða
afturrúðu og svo mætti lengi
telja.
FÍA T125 Per mikill bill á ótrúlega
hagstœðu verði.
AÐEINS KR. 99.800.-
Þú færð mikið fyrir peningana og FÍA T þjónustu í
kaupbæti.
Getum tekið notaða bila upp ínýja.
Verð án ryðvarnar miðað við gengi 1/10 '82.
OPIÐ LAUGARDAG
KL. 10-16
OPIÐ SUNNUDAG
KL. 13-16.
FÍAT 127 SPECIAL
FÍ AT — PANDA-bíllinn,
seldibill Evrópu mörg undanfarin ár og ekkiað ástœðulausu.
Við höfum ekki annað eftírspum tíl þessa, enda hefur þessi sárstaki bill eitt mesta
endursöluverð hér á íslandi.
hlú á verði ,sem onginn getur staðist, aðains KR. 109.500.-
sem er öðruvísi, með sérstaklega frumlega innréttíngu tíl fjölbreyttra nota t.d. sæti fyrir
S fullorðna eða svefnpláss fyrir tvo og má líka breyta í sendiferðabil feða aftursætinu i
bamarúm).
Þú ert ekki i vanda á FÍATPANDA. VERÐ AÐEINS KR. 109.500.-
F I ÍAlTl Egill Vilhjálmsson hf.
Smiójuvegi 4 Kóp. Simi 77200 Sími 77720