Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Blaðsíða 31
DV. LAUGARDAGUR13. NOVEMBER1982. 31 eru viðamikil og mörg. Sem dæmi um þau má nefna skipulagningu hafnar- svæöisins og framkvæmdir í samræmi viö það, skipulagningu nýs íbúöar- hverfis (Giljahverfis), þjóövegarfram- kvæmdir við miðbæ og breytingar á miöbæ í samræmi viö miöbæjarskipu- lag, framkvæmdamál, svo sem bygg- ingu svæðisíþróttahúss, verkmennta- skóla, grunnskóla í Síöuhverfi, dag- vista og fl. Mótun slíkra verkefna ákveðst venjulega viö gerð fjárhags- áætlunar hvers árs, sem unnin er í kringumáramót. Hver stjómmálaflokkur leggur fram sína ákveðnu stefnuyfirlýsingu við sveitarstjómarkosningar og leitast við aö ná þeim markmiðum sem þar eru sett á kjörtimabilinu. Flestir muna hver niðurstaða siðustu bæjarstjómar- kosninga var. I framhaldi af kosning- um var stofnaður svokallaður meiri- hluti í bæjarstjórn Akureyrar, sem samanstendur af fulltrúa Alþýðu- bandalagsins og fulltrúum Kvenna- framboðsins og Framsóknarflokksins. Samstaða þessa hóps byggðist fyrstog fremst á kosningu fulltrúa í nefndir, formanna nefnda, forseta bæjarstjóm- ar og ákvörðun um ráðningu bæjar- stjóra. Ekki er enn hægt að tala mikið um störf eða stefnu meirihlutans í bæj- armálum en væntanlega skýrist af- staða hans við gerð næstu fjárhags- áætlunar bæjarsjóðs. • Bæjarfulltrúa- starfið Eg hef oft verið aö því spurður af hverju ég sé að standa í þessu bæjar- málavafstri. Því er ekki auövelt að svara en þó verður að segjast að starf þetta er að vissu leyti mjög gefandi. Það gerir mönnum mögulegt að taka þátt í fjölbreyttu starfi, að glima við f jölþætt verkefni og vera virkur þátt- takandi í mótun þess umhverfis sem maöur hefur valið sér til búsetu. Vissu- lega er oft erfitt að samræma sjónar- mið og ná fram lausnum og efnishyggj- an getur ekki alltaf ráðið ferðinni, því margir aðrir þættir skipta miklu máli, en nauðsynlegt er að gæta vel þeirra verðmæta sem eru sameign íbúanna svo þau verði sem flestum til góös í nú- tíö og framtíð. Mörg verkefni bíða úrlausnar bæjar- stjómar Akureyrar og er vissulega áhugavert að taka þátt í mótun þeirra. Framundan er gerð fyrstu fjárhags- áætlana bæjarsjóðs og stofnana hans eftir kosningar og á slíkum tíma- mótum eru stefnumál skoöuð og ný verkefni ákveðin svo sem á sviði skóla- mála, skipulagsmála, þjónustuverk- efna, gatnagerðar, malbiks og orku- mála svo eitthvað sé nefnt. Ekki er ástæða til þess að tíunda hér þau verk- efni sem ég tel brýnust á næstu árum en augljóst er að bæjarfulltrúar hafa misjafna skoöun á því hver fram- kvæmdaröðunin eigi að vera. Það heyrist nokkuð oft að upplýs- ingamiölun bæjarfulltrúa og bæjar- yfirvalda sé ekki nógu góð. Bæjarbúar fái ekki aö vita nægilega mikið um fyrirhuguð verkefni eöa rök fyrir ákvörðunum. Þetta er að mörgu leyti réttmæt ábending og hefur í þessu sambandi stundum verið rætt um blaðamannafundi eða eitthvað slíkt til þess að koma upplýsingum á framfæri. Mér finnst þetta hlutverk eigi að vera í höndumfjölmiðlanna.blaða og útvarps og ef til vill eru svona skrif hugsuð sem slíkur þáttur af hendi f jölmiðils. Þaö er bæjarbúum og bæjarfulltrúum nauðsynlegt aö fjölmiðlar gegni þessu hlutverki upplýsingamiðlunar. Þvi betur sem bæjarbúar eru upplýstir um málefni síns bæjarfélags þeim mun samræmdari mynd fá þeir af störfum bæjarstjórnar og átta sig betur á þýö- ingu ákvarðana sem teknar eru. Ábendingar í þessu sambandi eru vel þegnar. Eins og fyrr sagði eru þessi orð eng- an veginn tæmandi lýsing á störfum bæjarstjórnar Akureyrar eða starfi bæjarfulltrúa en ég vona að þau gefi þeim er minnst þekkja til mála nokkra vísbendingu. Þaö er jafnframt von min að bæjarbúar taki virkari þátt í um- ræðum um bæjarmál og leitist við að sækja bæjarmálafundi sem bæjarfull- trúar eða aðrir boða til í þeim tilgangi, því slíkt eykur samskipti og rétt upplýsingastreymi milli bæjarbúa og bæjaryfirvalda. DELTAWAVE ÖRBYLGJUOFNINN ER ÞAÐ NÝJASTA OG FULLKOMNASTA FRÁ toshiba GERÐ ER 672 TOSHIBA HEFUR TEKIST AÐ BEISLA ÖRBYLGJURNAR A NÝJAN HATT. Með De/tawave dreifingu beinast þær beint í matinn Árangurinn: Minna tap, miklu jafnari bakstur og matreiðsla. FULLKOMIN ÞJÓNUSTA FYRIR TOSHIBA EIGENDUR íslenskur leiðarvísir. 190 siðna matreiðslubók. Mat- reiðslunámskeið hjá Dröfn Farestveit, hússtjórnar- kennara menntaðri i tilraunaeldhúsi Toshiba i Englandi. Allt án endurgjalds. íslensk námskeiðsgögn og uppskriftir. Nákvæmur timastillir niður i 5 sekúndur. Mjög nauðsynlegt til að ná góðum árangri, samfelld orkustilling frá 1—9(Bake, Roasto. fl.l TOSHIBA ER STÆRSTI FRAMLEIÐANDIÁ ÚRBYGLJUOFNUM í HEIMINUM. HVER OFN ER YFIRFARINN OG MÆLDUR AF TÚLVU. TRYGGING FYRIR FULLKOMNU ÚRYGGI EINAR FARESTVEIT BERGSTAÐASTRÆTI I0A & CO. HF. - SlMI 16995 NYLAGNIR VIOGEROIR VIOHALD VERSLUN GLERÁRGATA 26 AKUREYRI • BOX 873 SÍMI 2 59 51 HABERG h£ Skelfunní ie Slmi 3*33*45 tJTSÖLUSTAÐIR Akureyri: Húsavík: Norðurljós hf., Jón Þorgrímsson. Aukum orkuna, minnkum eyðsluna Bætum vatni í bensínið! Meó því aö láta vélina soga eiminn af sérstakri vökvablöndu inn í sprengirúmid er hægt aö minnka bensíneyðsluna um 1—2 lítra á 100 km. Lausagangur verður mýkri, aflið eykst, octantala bensínsins hækkar og síðast en ekki sist, blandan hreinsar vélina af sóti og gjalli og eykur þannig endingu hennar. Um 2 milljónir Jaþana og 600 islendingar aka með þessum búnaði. Hringdu! - ad draga. aledi, duglegur l brekkum og Skidoo flVandik FlnillllilArktir X Aitnnin I Vinnuþjarkur d óvenju löngu belti, duglegur í \njó og drœttL Skidoo Everest 50 Stór, kraftmikill og hrada 500 kúbik —161/2” belti. creidur lúxussledi. Blizzard 5500 MX Nýr undirvagn d 16 1/2” belti, algjörlega einatvö fjöörun. 500 kúbik mótor. 521,2 kúbik mótor. Tveir Mikuni VM-40. Ægi- legur kraftur, en aamt léttur. 161/2”belti. Eini 2 belta sleðinn d markadnum. 640 kúbik mótor. Dregur meira og brattar en aörir. 2 gírar áfram og afturábak. Beltabíll frá Bombardie. Sumar- og vetrar Fordvél, 4 gírar áfram, ýtutönn fáanleg. VP-2000 Franakur, 6 hjól á beltum meö btlvél og 4 gtrar áfram, kemat nœatum allt á ajó og landi. GÍSLI JÓNSSQN & co hf., tZfmV'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.