Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1982, Blaðsíða 32
32
DV. LAUGARDAGUR13. NOVEMBER1982.
Árný Reynisdóttir: — Þetta er mjog
jákvætt, en ég sakna gamla rúntsins. 1
stað hans skapast aðstaða til fjöl-
breyttsgötulífs.
DVAK
spyr
Hvernig list þer á þá fram
kvæmd að gera Hafnar-
stræti að göngugötu?
Ingimar Guðmundsson: — Mér líst
ágætlega á þetta. Eg vona bara að út-
koman verði eitthvað hliðstætt við
Austurstræti í Reykjavík.
Hafnarstrætí er oft iðandi af mannhfi, eins og best sest a þessari m ynd.
göngugötuna lýkur.
Væntanlega veröur þar enn fegurra mannlif þegar framkvæmdum við
Hreiðar Jónsson: — Ætli göngugatan
verði ekki bara ágæt þegar
framkvæmdum er lokið.
Ársæll Magnússon: — Þessar fram-
kvæmdir eru til mikillar fyrirmyndar
og það er vel að þeim staðið. Hafnar-
stræti verður mun skemmtilegra á
eftir.
Göngugata skapar
betri aðstædur fyrir
fjölbreytilegt mannlíf
— Spjjalluö við Finn Birgisson shipulagsstjóra
um ngtt shipulag afmiðbæjarsvæðinu á Ahuregri
Þóroddur I. Sæmundsson: — Mér líst
vel á göngugötuna ef við fáum að losna
alveg við bílana.
Nýtt skipulag fyrir miðbæjar-
svæðið á Akureyri var samþykkt í
bæjarstjórn Akureyrar 7. apríl 1981.
Fram að þeim tíma hafði gilt skipu-
lag fyrir miöbæinn, sem gert var
1926. Samkvæmt því eru t.d. húsa-
lengjurnar við Ráðhústorg og Skipa-
götu, en enn eru sumar hverjar varla
hálfbyggöar.
Gisli Kristínsson arkitekt og Finnur Birgisson skipuiagsstjóri.
% Byrjað
á höfninni
Arkitektarnir Haraldur V.
Haraldsson og Svanur Eiriksson
unnu miðbæjarskipulagið sam-
kvæmt stefnumörkun skipulags-
nefndar og bæjarstjómar. Svæðið,
sem skipulagið nær yfir, er frá Sam-
komuhúsinu aö sunnan norður að
íþróttavelli. Að vestan markast
svæöiö af Oddeyrargötu og við
fjörunaaðaustan.
Framkvæmdir samkvæmt nýja
skipulaginu hófust í sumar. Byrjaö
var á að fylla upp í gömiu höfnina við
Torfunef, en sú framkvæmd var um-
deildasta atriöiö í sambandi viö
skipulagiö í bæjarstjóm Akureyrar.
önnur ágreiningsatriði féllu þar í
skuggann.
Tenging Glerárgötu, frá Strand-
götu inn á Drottningarbraut skammt
sunnan Kaupvangsstrætis, samhliða
bíiastæðaþörf fyrir miðbæinn, gerðu
uppfyllinguna nauðsynlega, að mati
þeirra, sem hana knúðu fram.
Við höfnina standa tvö hús, sem
þurfa að hverfa. Er það gamla
Eimskipshúsið, sem er í eigu
erfingja Jakobs Karlssonar, og hús
Drangs, sem er í eigu erfingja Stein-
dórs Jónssonar. Erfingjar Jakobs
vilja fá bætur fyrir húsið, sem
Akureyrarbær vill ekki greiöa. Málið
er því komið fyrir dómstóla og má
búast við dómi í héraðsdómi íyrir
mánaðamót. Búast má viö, að málið
fari síðan fyrir hæstarétt, en biðtím-
inn þar heftir verið um tvö ár. Lík-
legt er, að eigendur Drangshússins
telji sig einnig þurfa að leita réttar
síns fyrir dómstólum. Það má því
„Við heimamenn þekkjum það, að mið-
bærinn er oft iðandi af mannlífi, sérstaklega á
góðviðrisdögum yfir sumarið. Göngugatan
kemur til með að skapa enn betri aðstæður
fyrir þetta fjölbreytilega mannlíf; þetta verður
eins konar andlitslyfting fyrir miðbæinn,"
sagði Finnur Birgisson, skipulagsstjóri á Akur-
eyri, þegar DV forvitnaðist um nýju göngu-
götuna í Hafnarstræti.
búast við, að einhver ár líði, þar til
þessihúshverfa.
• Næstvarþað
göngugatan
Einn þáttur í nýja skipulaginu er
göngugata, sem fuilbúin nær yfir
Hafnarstræti norðan Kaupvangs-
strætis, Ráðhústorg og Geislagötu
noröur að Búnaðarbanka. Umferð
verður áfram leyfð um Strandgötu
meðfram Ráðhústorgi um Skipa-
götu.
I fyrsta áfanga verður gerð göngu-
gata í Hafnarstræti frá Ráðhústorgi
að Kaupvangsstræti. Hófust fram-
kvæmdir í haust. Búið er að skipta
um jarðveg í götunni og malbika yfir
allt saman. Jafnframt verður gengið
frá lýsingu í götunni. En á að leyfa
umferð um götuna.í vetur? Um það
hefur ekki verið tekin ákvörðun í
bæjarstjóm, en hver er afstaða
Finns?
„Eg tel rétt að leyfa umferð og tak-
mörkuð bílastæði í götunni í vetur,”
segir Finnur. „Astæðan fyrir því er
sú, aö ég tel ekki heppilegt aö gera
götuna að göngusvæði á meðan hún
er hálfköruð. Sú aðgerð gæti haft
neikvæð áhrif fyrirverslun í götunni,
sem ég held, að sé óheppileg byrjun á
framkvæmdum, sem eiga að styrkja
verslunina,” sagðiFinnur.
Næsta sumar verður sett sandlag
ofan á malbikið en yfirborðið
verður síðan klætt litlum gang-
stéttarsteinum. Aö öllum líkindum
verður sett hitunarkerfi í sandlagið