Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1982, Side 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER1982.
Flokkarnir búa sig undir þingkosningar:
Prófkjör, forvöl og skoðanakann-
anir um land allt framundan
Stjórnmálaflokkamir búa sig nú
undir alþingiskosningar. Kjördæmis-
ráö um land allt eru ýmist aö
skipuleggja prófkjör, forvöl eða meö
öðrum hætti aö kanna hugi manna
varðandi skipan framboöslista.
Fjórum prófkjörum á landinu er
reyndar þegar lokið og í tveimur
tilvikum reyndist óþarfi að hafa próf-'
kjör þar sem frambjóöendur voru ekki
fleiri en sætin sem kjósa átti um.
Til aö afla upplýsinga um prófkjör,
Á
forvöl og skoðanakannanir sem fram-
undan eru, leitaöi DV til skrifstofa
stjórnmálaflokkanna fjögurra sem
hlutu þingmenn við síöustu kosningar.
Alþýðuflokkur
Prófkjör Alþýöuflokksins í Reykja-
vík fór fram um síðustu helgi. I Vestur-
landskjördæmi var Eiöur Guðnason sá
eini sem bauð sig fram í efsta sæti og
Gunnar Már Kristófersson í annaö. 1
Noröurlandskjördæmi vestra var Jón
Sæmundur Sigurjónsson sjálfkjörinn í
efsta sæti. I Reykjanesi veröur próf-
kjör líklega 29. og 30. janúar en það er
ekki endanlega ákveðiö. Alþýðuflokks-
menn á Suðurlandi hafa ákveöið próf-
kjör 22. janúar og rennur framboðs-
frestur út 15. desember. A Austurlandi
verður prófkjör 29. og 30. janúar en
framboðsfrestur er til 15. janúar. I
Norðurlandi eystra verður prófkjör
háö 22. og 23. janúar en framboðs-
frestur rennur út 30. desember. A Vest-
fjörðum hefur ekki verið ákveðið
hvenær prófkjör fer fram. Framan-
greindar upplýsingar fékk DV frá
Kristinu Guömundsdóttur.
Framsóknarflokkur
Prófkjör hefur þegar farið fram
meðal framsóknarmanna í Norður-
landi eystra. I Reykjavík er verið að
ræða um hvemig velja skuli á listann.
Menn þar munu ekki spenntir fyrir
opnu, prófkjöri. Ef prófkjör færi fram
yrði það sennilega í janúar og bundið
við fulltrúaráð Framsóknarfélaganna
eða flokksbundna. A Vestfjörðum fer
fram skoðanakönnun meðal stuðnings-
manna í byrjun janúar. I Suðurlands-
kjördæmi munu framsóknarmenn hitt-
ast á Hvolsvelli næstkomandi laugar-
dag, 4. desember. Þar mun fara fram
skoðanakönnun um framboöslistann.
Tvöfaldur fjöldi fulltrúa á kjördæmis-
þingi tekur þátt í könnuninni. Á
Austurlandi fer fram opið prófkjör og
rennur framboðsfrestur út 10.
desember. I Norðurlandi vestra var
skipuð nefnd til að undirbúa framboð
en ólíklegt er talið að prófkjör verði. 1
Vesturlandi er ekki útlit fyrir að próf-
kjör verði. 1 Reykjanesi verður tvöfalt
kjördæmisþing 9. janúar Þar verður
vilji fimdarmanna til skipanar listans
kannaður. Upplýsingamar em
byggðar á spjalli við Þráin Valdimars-
son.
Sjálfstæðisflokkur
Sjálfstæöisflokkurinn hefur þegar
haldiö prófkjör í Reykjavík og á
Norðurlandi vestra. Prófkjör á Vestur-
landi fer fram 15. og 16. janúar. Á
Suöurlandi verður prófkjör en það
hefur ekki verið tímasett. Sömu sögu er
að segja af Norðurlandi eystra. I
öðrum kjördæmum hefur ekkert verið
ákveðið um prófkjör. Þessar
upplýsingar fékk DV frá Kjartani
Gunnarssyni.
Alþýðubandalag
Alþýðubandalagsmenn munu víðast
hafa tvöfalt forval til að ákvarða um
skipan framboöslista sinna. Um næstu
helgi verður fyrri umferð forvals á
Vestfjörðum. 1 Reykjavík verður fyrri
umferð um miðjan janúar. I Suður-
landskjördæmi verður forvaliö 8. og 9.
janúar. I Reykjanesi verður tekin á-
kvörðun um fyrirkomulag við val list-
ans um næstu helgi. 1 öðrum
kjördæmum hafa ákvarðanir ekki
endanlega verið teknar. Upplýsing-
arnar fékk blaöið frá Margréti Tómas-
dóttur.
-KMU.
Stálu veski í
Hampiðjunni
Hópur unglinga fór í fyrradag í
Hampiðjuna og stal þar veski sem í
voru tvö þúsund krónur.
Lögreglan í Reykjavík handtók
nokkra þeirra skömmu síðar i
biðskýlinu á Hlemini, eftir að hafa
fengið lýsingu á þeim. Og skömmu
síðar gaf sá er var með veskið sig fram
við lögregluna og skilaði því. 'JGH.
40 ára
10 ára
2ja ára
höldum við afmæli
Jón Sigurður Loftsson, heildsala: 60 ára
Jðn Loftsson, hlutafélag:
JL-húsið, húsbúnaður:
JL-matvörumarkaður, matvara:
Bjóðum alla velkomna
KYNNINGARVEITINGAR
Kynningarveitingar
í matvörumarkaðinum í dag, föstudag, kL 2—8, JL-
húsið er opið kl. 9—22 í kvöld —‘laugardag til klukkan 16.
JL-PORTIÐ • NÝR INNGANGUR
fjöldi nýrra bílastœða í JL-portinu
STÆRRI MATVÖRUMARKAÐUR
lH
JL-HÚSIÐ
10 ára
afmælisafsláttur.
Gefum 10%
aukaafslátt
26. nóv. til 4. des.
af húsgögnum,
rafljósum
og reiðhjólum.
Notið tœkifærið og
verslið þar sem úrvalið
er mest og kjörin best
JIS
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600