Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Síða 1
37.200 EINTÖK PRENTUÐ í DAG.
RITSTJÓRN SÍMI 86411 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022
Frjalst,óháð dagblað
l- , , ■ ; 1 DAGBLAÐIÐ —VÍSIR 4. TBL. — 73. og9. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 1983.
1 1
| Sameiginlegt framhoð Guömundar G., Vilmundar og Gunnars Thoroddsen:
ff
Ekkert til í þessu
ff
„Þetta er algerlega úr lausu lofti
gripiö og ekkert til í þessu,” sagði
Guðmundur G. Þórarinsson,
alþingismaður Framsóknarflokksins
í Reykjavík í morgun. I Morgunblað-
inu í dag segir að viðræður og óform-
legar kannanir fari nú fram á því
hvort til greina komi sameiginlegt
þingframboð þeirra Guðmundar G.
Þórarinssonar, Gunnars Thoroddsen
og Vilmundar Gylfasonar. Segir
blaðið að þessar kannanir séu gerðar
að frumkvæði stuðningsmanna
Guðmundar og meö vitund og vilja
hanssjálfs.
Guömundur sagði í morgun að
hann hefði ekkert frekar um
framboðsmál sín að segja. I Morgun-
blaöinu er sagt að það sé einkum
hálfbróðir Guömundar, Jósteinn
Kristjánsson, varaborgarfulltrúi
Framsóknarflokksins, sem vinni að
málinu. Jósteinn sagði í morgun að
þetta væri tóm vitleysa. „Það er ekk-
ert til í þessu. Ég hef ekki unniö aö
framboðsmálum Guðmundar G.
Þórarinssonar nema innan Fram-
sóknarflokksins. Ég er framsóknar-
maður fyrst og fremst. Ég er ekki að
huga að sérframboði Guðmundar G.
Þórarinssonar. Eina sérframboðið
sem ég veit um er framboð Vilmund-
ar Gylfasonar en á viðræður hans,
Guðmundar og forsætisráðherra hef
ég ekki heyrt minnst. ”
-JH
SkmkkþjáHui
— sjá Dægradvöl
bls. 32-33
Tilkynnt var um sprengju í Útvegs-
bankanum í Kópavogi rétt fyrir klukk-
an hálf tíu í morgun. Starfsfólk í
báðum útibúum bankans, við Smiðju-
veg og Digranesveg, var samstundis
flutt á lögreglustöðina i Kópavogi
meðan Ieit fór fram og lögreglumenn
lokuðu svæðum umhverfis útibúin.
Leit stóð yfir í ema og hálfa klukku-
stund en eugin sprengja fannst. Sá sem
stóð að þessu gabbi var ófundinn þegar
biaðið fór í prentun.
Á myndinni sést hvar lögreglan
befur iokað Digranesveginum fyrir
framan Útvegsbankann. A innfelldu
myndinni er starfsfólk á lögreglustöð-
inni, þar sem það beið niðurstöðu
leitarinnar.
ÓEF/DV-mynd Einar Ólason.
Veðurhorf ur síðdegis:
NORDANÁTT OG STÓR-
HRÍD Á NORÐURLANDI
— gæti skaf ið lítillega á höfuðborgarsvæðinu
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðanstrekkingur í dag en engin úr-
koma. Hins vegar gæti skafið lítil-
lega, sérstaklega á öllum leiðum út
úrbænum.
Klukkan 8 var norðan stórhríð á
Vestfjörðum og vestan til á Norður-
landi. Við Breiðafjörð, Faxaflóa og á
Suðurlandi var víða hvasst, talsverð-
ur skafrenningur en úrkomulaust.
Austanlands er víða hægviöri og
jafnvel léttskýjað sums staðar.
Þegar kemur fram á daginn
gengur í norðan- eða norðvestanátt.
Á Norður- og Norðausturlandi verð-
ur stórhrið en eitthvaö minni úrkoma
á Suðvesturlandi og sunnanverðum
Austfjörðum.
Líklegt er talið að sljákki í veðrinu
í nótt og það geti orðið skaplegt á
morgun. Ný lægð er væntanleg um
helgina en ómögulegt að segja hvað
húngerir.
I nótt hafði Veðurstofan ekkert tal-
símasamband við útlönd og fékk því
engar upplýsingar þaðan. Samband
komst aftur á upp úr kl. 8 í morgun.
JBH
Verdurekkja
Maóstekin
aflífi?
— sjá erl. fréttir
bls.8-9
Ennaf
ófærðinni
-sjábls.4-5
KRvannKiel
— sjáíþróttir
bls. 18-19
Völvurspá
fyrirl983:
Castro myrtur
og
Khómeini deyr
— sjá Sviðsljós
bls. 20