Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Qupperneq 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 6. JANUAR1983.
Skákþing Reykjavíkur 1983
hefst aö Grensásvegi 46 sunnudag 9. jan., kl. 14.1
aðalkeppninni tefla keppendur í einum flokki
ellefu umferðir eftir Monrad-kerfi.
Umferðir veröa á sunnudögum kl. 14 og á
miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30.
Biöskákdagar ákveðnir síðar.
Skráning í mótið fer fram í síma Taflfélagsins á
kvöldin kl. 20—22. Lokaskráning í aðalkeppnina
verður laugardag 8. jan., kl. 14—18.
Keppni í flokki 14 ára og yngri hefst laugardag 15.
jan., kl. 14. Tefldar verða 9 umferðir eftir.
Monrad-kerfi og tekur keppnin þrjá laugardaga,
þrjár umferðir í senn.
Taflfélag Reykjavíkur
Grensásvegi 44—46 Reykjavík.
Símar 83540 og 81690.
Auglýsing
um breytingu á tollafgreiðslugengi í janúar 1983
Skráð tollafgreiðslugengi 5. janúar 1983:
Bandaríkjadollar USD 18,170
Sterlingspund GBP 29,526
Kanadadollar CAD 14,769
Dönsk króna DKK 2,1908
Norsk króna NOK 2,6136
Sænsk króna SEK 2,4750
Finnskt mark FIM 3,4662
Franskur franki FRF 2,7237
Belgískur franki BEC 0,3929
Svissneskur franki CHF 9,2105
Hollenskt gyllini NLG 6,9831
Vestur-þýskt mark DEM 7,7237
Itölsk líra ITL 0,01339
Austurr. sch. ATS 1,0995
Portúg. escudo PTE 0,2039
Spánskur peseti ESP 0,1462
Japanskt yen JPY 0,07937
Irskt pund IEP 25,665
Tollverö vöru sem tollafgreidd er í janúar skal miða viö ofan-
skráð gengi. Hafi fullbúin tollskjöl borist tollstjórum fyrir lok
janúar skal þó til og meö 8. febrúar 1983 miöa tollverö þeirra
við ofanskráð tollafgreiðslugengi janúarmánaðar.
Auglýsing þessi er birt með þeim fyrirvara að í janúar komi
eigi frekar til atvik þau er um getur í 2. mgr. 1. gr. auglýsingar
nr. 464/1982 um tollafgreiöslugengi.
Hafi tollskjöl komið fullbúin til tollstjóra fyrir lok desem-
bermánaðar skal tollverð varnings reiknaö samkvæmt tollaf-
greiðslugengi er skráö var 1. desember 1982, meö síöari
breytingum, til og með 7. janúar 1983.
Hafi tollskjöl komið fullbúin til tollstjóra 3. janúar sl. skal toll-
verð varnings reiknaö samkvæmt tollafgreiðslugengi er skráö
var 1. janúar sl. til og með 12. janúar 1983.
Fjármálaráðuneytið 5. janúar 1983.
1 x 2 - 1 x'2 - 1 x 2
18. leikvika — leikir 3. janúar 1983
Vinningsröð: 1x1— x12— x 11 — 1x1
1. vinningur: 12 réttir — kr. 120.265,-
72259(4/11) 87639(4/11)
2. vinningur: 11 réttir — kr. 1.431,-
2636 21057+ 62443 68439 80230+ 88520+ 96507+ Úr 16. viku:
4619 21085+ 62836+ 70292 82181 + 94098 97006+ 98275
4676 21096+ 63019+ 70293 82316+ 94539+ 98077+ Úr 17. viku:
5203 24486+ 64112 72032 83490+ 94601 + 98556+ 75690
8604 25349(2/11) 73344 83941 95020+ 98810+ 75693
9540 59775 64326 73685+ 84051 95491 100312
15626 60705 65316 74624 84053 95513+ 160036
16329 61510+ 66797+ 75945 85774+ 96222+
18539 61819 66974+ 77079 87551
Kærufrestur er til 25. janúar, kl. 12 á hádegi. Kær-
ur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá
umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík.
Vinningsupphæðir geta lækkað ef kærur verða
teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að fram-
vísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsing-
ar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok
kærufrests.
Gera má ráð fyrir verulegum töfum á greiðslu vinninga fyrir
númer sem enn verða nafnlaus við lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK
Útlönd Útlönd Útlönd
Sovéskir skriðdrekar og hermenn halda Afghönum í skefjum en tilboð Varsjárbandalagsins þætti áhrifameira ef
Sovétmenn lofuðu að hætta hernaðarbrölti sínu í Afghanistan.
Varsjárbandalagsfundurinn í Prag:
Býöur ekki árásar-
samning við NA TO
en það þykir vestantjalds vera gömul lumma með árásarkeim
A Vesturlöndum taka menn með öll-
um fyrirvara tilboði Yuris Andropovs
og annarra leiötoga Varsjárbanda-
lagsins um „ekki-árásar-samning” viö
NATO, en bíöa nánari útlistunar á til-
boöinu.
Kommúnistaleiötogar Varsjár-
bandalagsríkjanna lýsa tilboði sínu
sem „nýju stórfriöar-tilboöi” og telja
ekkert því til fyrirstööu að sest verði
strax að samningaborðinu. En víöast
vestan tjalds telja menn þetta einfalt
áróðursbragð sem naumast veröi tekið
alvarlega.
Hugmyndin um ekki árásarsamning
er gömul og hefur af og til skotið upp
kollinum síöustu þrjátíu ár. En vestan-
tjalds hefur mönnum þótt lítið til
hennar koma og láta sér fátt um
finnast, ef í yfirlýsingu og tilboði
Varsjárbandalagsins, sem lauk í gær
tveggja daga fundi sínum í Prag, felst
ekkert á milli línanna annaö nýtt.
I yfirlýsingu bandalagsins í gær er
lagt til aö gerður verði samningur þar
sem Varsjárbandalagiö og NATO-ríkin
sextán lýsi því yfir að þau muni ekki
beita hemaðarmætti sínum og
viðhalda friösamlegri sambúö.
Eftir Pragfundinn sagði Andropov,
hinn nýi leiötogi Sovétrikjanna, í
viðtali viö tékkneskan fréttamann, aö
„stríðsundirbúningur NATO ylli
Varsjárbandalagsstjómunum áhyggj-
um”. — „En það er nægur góður vilji
og ásetningur til þess aö efla smátt og
smátt öryggi Evrópu og bæta
andrúmsloftið í heimsmálunum,”
sagöi Sovétleiötoginn.
Hann sagði fundinn árangursríkan
og spegla enn einingu sósíalistaríkja.
Á Vesturlöndum hafa menn tekið
þessum yfirlýsingum með tómlæti og
benda á að í tíu ár hafi samningar
verið þæfðir við Sovétmenn í viöleitni
tO samkomulags um að draga úr
hernaðarmætti í Mið-Evrópu sem
helsta ráð til að efla friðinn en án
teljanlegs árangurs.
Ýmsir hafa látið í ljós vonbrigöi með
útkomu fundarins í Prag, sem menn
höfðu vænst meira af með tilliti til
nýlegra leiötogaskipta í Sovét-
ríkjunum.
Aðrir hafa viðrað þaö álit sitt á
tilboði Varsjárbandalagsins aö þaö
hefði verið meiri matur í því ef um leið
hefði verið lýst yfir að Sovétmenn
mundu hætta að beita hervaldi í
Afghanistan og afneituðu Brezhnevs-
kenningunni um sjálftekinn rétt Sovét-
manna til þess að hlutast í innanríkis-
mál annarra kommúnistalanda.
Eftirsótt jólaböm
Lögreglan í London hefur lýst eftir
tveimur konum sem skildu nýfædd
böm sín eftir á tröppum sjúkrahúss
og við dyr kennara nokkurs á jólun-
um. I báöum tilfellunum er um
stúlkubarn að ræða. Fannst það
fyrra á tröppum sjúkrahúss á
aðfangadagskvöld.
Tilviljun ein réö því aö seinna
stúlkubarnið uppgötvaöist við dyr
kennarans á jólanótt. Gat kennarinn,
Shirley St. Pierre, ekki sofið fyrir
mjálminu í kettinum sínum sem stóð
yfir ofurlitlum böggli fyrir dyrum úti
er kennarinn staulaðist fram úr til að
opna. Var bamið orðið helblátt af
kulda og pasturslítið, enda fætt fyrir
tímann. Fór kennarinn strax með
barnið á sjúkrahús þar sem það
hjarnaði fljótlega við.
Síðan fréttir þessar bámst út hefur
síminn á sjúkrahúsunum ekki
stoppað þar sem þúsundir Breta
vilja ólmir taka stúlkubörnin aö sér.
Lögreglan segir að bömunum verði
þó alls ekki ráðstafað fyrr en tekist
hefur að hafa uppi á mæðrum þeirra.
lOOáragamlir
fínnar
Þeim Finnum fer stöðugt fjölg-
andi sem ná því að verða tíræðir. Á
árinu 1982 urðu áttatíu og átta
Finnar 100 ára og búist er við því að
yfir sjötíu nái aldarafmælinu á
nýjaárinu.
1 Finnlandi em nú 142 karlar og
17 konur á lífi hundrað ára eða
eldri. — Fyrir tíu árum vom ekki
nema fjömtíu í landinu á þeim
aldri.
Dýrtaðdeyja
Fyrmm kanadískur riddaralög-
reglumaöur lét sér svo í augum
vaxa hve dýrt það væri fyrir f ólk að
deyja í Bresku Kólumbíu í Kanada
að hann opnaði verslun þar sem
hann selur líkkistur á niöursettu
verði.
Jack Turner (55 ára), sem áður
starfaði í kanadísku riddara-
lögreglunni, segist bjóða upp á
miklu betri kjör en útfarar-
stofnanir.
Mest selda kistan hjá honum,
sem klædd er silki, kostar 591
dollarkanadískan, semerhálfvirði
miðaö viö verð á nákvæmlega
sams konar kistum hjá útfarar-
stofnunum.
Agnewendur-
greiðirmútur
Spiro Agnew, fyrmm varafor-
seta Bandaríkjanna, hefur verið
gert að greiöa Maryland-ríki
268,482 dollara vegna mútuþægni
hans meðan hann var ríkisstjóri
Maryland og síðar varaforseti.
1 skriflegri yfirlýsingu til fjöl-
miðla segir Agnew sig sárt leikinn
af dómstólum og telur enga hæfu að
láta sig endurgreiða þetta fé.
I apríl 1981 úrskurðuöu dómstól-
ar í Maryland að Agnew hefði
brugðist trausti með því að þiggja
greiðslur fyrir úthlutun fram-
kvæmda til verktaka. Þær greiðsl-
ur voru taldar nema 147.500 dollur-
um, sem Agnew hefur nú verið gert
að endurgreiða með vöxtum.
Þar með er lokið málinu sem reis
upp 1973 út af meintum skattsvik-
um Agnews og varð til þess að hann
sagði af sér varaforsetaembættinu.
4drukknuðu
Fernt drukknaöi í briminu við
ströndina hjá Blackpool á Englandi
í gær og allt vegna tilraunar til þess
að bjarga hundgarmi. Þyrlur
björguðu þó þrem, sem hætt vom
komnir.
Ungur eigandi hundsins stökk í
sjóinn til þess að bjarga honum
þegar alda hreif hann með sér.
Lögregluþjónn óö út í á eftir
drengnum og síðan nokkrir vegfar-
endur og fleiri lögregluþjónar, sem