Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Page 10
10
DV. FIMMTUDAGUR 6. JANUAR1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Fjöldamoröin í flóttamannabúðum
Palestínuaraba í Beirút voru meöal
þeirra viöburöa á síðasta ári sem
mönnum þótti mest tíöindi. Spum-
ingin um hugsanlega vitund eöa
jafnvel vilja Israelsmanna í þeim
hryllingsverkum var og er eitt eld-
fimasta tundriö í heimspólitíkinni.
Hefur því góöur gaumur veriö gefinn
aö rannsókn og yfirheyrslum ísra-
elsku dómnefndarinnar sem starfað
hefur í ellefu vikur viö að grafast
fyrir um málsatvik.
Yfirheyrslum
að Ijúka
Rannsóknarstörfunum fer nú senn
aö ljúka en síðustu yfirheyrslurnar
fara fram fyrir iuktum dyrum.
Þriggja manna rannsóknarnefndin
tekur þar lokaskýrslur af hershöfö-
ingjum og stjómmálamönnum sem
vilja bera af sér sakir um hlut þeirra
í málinu.
Síðustu tvær vikurnar hefur nefnd-
in aöallega hlýtt á skýrslur vitna
sem áöur höföu komið fyrir hana en
vildu annaö tækifæri til þess aö verja
mannorð sitt og hnekkja meiöandi
ummælum annarra.
Rannsóknin breyttist
Andrúmsloftiö hefur breyst frá því
aö nefndin hóf yfirheyrslur sínar í
kennslustof unni í hebreska háskólan-
um í Jerúsalem þann 19. október. I
upphafi var þaö einvörðungu nefndin
meö Yitzhak Kahan yfirdómara í
forsæti sem bar upp spumingamar.
Ábúðarmiklir hershöfðingjar óku
sér órólegir í vitnastúkunni, þegar
þeir vom kraföir skýringa á hví og
hvernig Israel hafði sent falangista
inn í flóttamannabúðirnar í Beirút til
þess að smala síöustu PLO-skæm-
liðunum saman. Sú aðgerö endaöi
meö ósköpum, þegar hinir herskáu
og hefndarþyrstu falangistar hófu
dráp á hundruöum saklausra og
vamarlausra borgara. — Jafnvel
haröjaxl eins og Ariel Sharon vam-
armálaráöherra sást þamba hvert
vatnsglasið á eftir ööru þar sem
hann sat taugaóstyrkur frammi fyrir
nefndinni á fyrsta fundinum. Hann
mun koma aftur fyrir nefndina á ein-i
hverjum allra síðasta fundinum og
þá bera vitni fyrir framan mynda-
tökuvélamar.
Ráðamenn
varaðir við
Þaö sem kom ööru hljóði í strokk
þessarar rannsóknar var sú aðvömn
nefndarinnar, sem hún veitti niu
vitnum um, aö niðurstöður rann-
sóknarinnar kynnu aö skaöa þau.
Meöal þessara níu voru Menachem
Begin forsætisráöherra, Ariel Shar-
on vamarmálaráðherra, Yitzhak
Shamir utanríkisráöherra og þrír af
hæstsettu hershöföingjum Israels. —
Flestir þessara níu manna tóku
þessa viðvömn alvarlega og réöu sér
réttargæslumenn sem síöan hafa
blandaö sér í yfirheyrslur rannsókn-
amefndarinnar meö tíðum frammí-
gripum og gagnspurningum í þaula
svo aö rannsóknin hefur fengiö á sig
meira yfirbragð málflutnings í rétt-
arþingi.
Einbeita sér að
hlut ráðamanna
Eftir aö síöasta skýrslan hefur ver-
iö tekin mun þaö sennilega taka
nefndina nokkrar vikur aö pæla í
gegnum skjölin og ganga frá skýrslu
sinni um rannsóknina. — Begin hefur
þegar lýst því yfir aö veröi niöurstaöa
rannsóknarinnar á þann veg aö viö
ríkisstjórn hans sé sakast þá muni
hann knýja framnýjar kosningar.
Þaö sýndi sig á þeim fundum
nefndarinnar, sem fram fóru fyrir
opnum dyrum, aö hún einbeitir sér
að því aö draga fram hversu ljós
Israelsstjórn mátti vera áhættan af
því að nota falangistana og hversu
fljótt hún brá viö til þess aö stööva
manndrápin, þegar hún loks frétti af
f jöldamorðunum. — Fyrstu fréttir af
fjöldamorðunum voru afar óljósar
um, hvenær Israelsforingjarnir
höfðu spumir af atburöunum og
hversu fljótir þeir voru til viðbragöa.
Það atriði er samt afar mikilvægt
með tilliti til ásakana um aö þeim
hafi ekki veriö blóöbaöiö svo leitt
sem þeir vilja láta. Hér eiga eftir aö
koma fram málsatvik, eins og þau
hafa verið dregin fram í yfir-
heyrslum rannsóknamefndarinnar.
Þriðjudagur
14. september
Klukkan fjögur síödegis berast til
Israels fyrstu fréttir af því aö leið-
togi falangista og nýkjörinn Líbanon-
forseti, Bashir Gemayel, hafi veriö,
myrtur í sprengingu í aöalskrifstof-
um Falange-flokksins í Beirút.
Klukkan átta þá um kvöldiö á
fundi, sem stóö til miðnættis, ráð-
gera Begin, Sharon og Rafael Eitan
yfirmaður herráösins aö senda her-
lið inn í Vestur-Beirút til þess aö
halda þar uppi reglu ef rétt reynist
aö Gemayel hafi verið ráöinn af dög-
um. — Þegar þaö hefur fengist staö-
fest, er ísraelskum herflokkum fyrir-
skipaö aö halda inn í Vestur-Beirút í
dögun.
Miðvikudagur
15. september
Klukkan fimm í morgunsárið
koma israelsku herflokkamir inn í
Beirút. Um svipaö leyti eiga þeir Eit-
an hershöföingi og Amir Drori hers-
höfðingi, stjórnandi innrásar Israels-
manna í Líbanon, sinn fyrsta fund
meö falangistum til þess aö ræða
áhlaup falangista inn í flóttamanna-
búöirnar — samkvæmt vitnisburðl
Drori hershöfðing ja.
Fimmtudagur
16. september
Klukkan tíu aö morgni fá Israel-
arnir í Líbanon lokafyrirmælin um
að falangistar skuli ráðast inn í
búðirnar (Saba og Shattila) og
hreinsa út nær tvö þúsund PLO-
skæruliða, sem hafa haldið uppi
þaöan skothríö, eftir því sem þeir
segja Drori hershöfðingi og Amos
Yaron hershöfðingi í framlínunni.
Sharon vamarmálaráöherra ber
vitni um aö hann hafi tekið þessa
ákvöröun og byggt hana á niðurstööu
ríkisstjómarfundar, sem ákvaö í
júní aö stefna bæri að meiri virkni
falangista meö beinni þátttöku
þeirraíaðgerðum.
Frá því klukkan ellefu til þrjú
síðdegis eiga þeir Drori og Yaron
nokkra fundi meö falangistum.
Israelsmenn gangast inn á aö leggja
hinum til lýsingu viö næturaögerö-
irnar og veita þeim stuöning með
skothríð af lengra færi ef falangistar
mæti harðri mótstööu skæruliöa.
Erindreki úr Mossad, leyniþjónustu
Israels er settur tengiliður á milli
ísraelsforingjanna og falangista og
skal fylgja hinum síðarnefndu.
Israelar fallast á aö liðsafli falang-
ista veröi 100 til 150 menn, eftir því
sem hershöfðingjamir báöir segja.
Yaron hershöföingi segist hafa
komið mönnum fyrir uppi á húsþök-
um þar sem þeir höfðu þó takmarkaö
útsýni til flóttamannabúðanna í
björtu og alls ekkert í dimmu.
Á bilinu milli klukkan fimm og sex
síðdegis sækja falangistar inn í
búöimar. Yaron hershöföingi skýröi
nefndinni frá því aö hann heföi hlust-
að á fjarskipti þeirra og sjálfur gefiö
fýrirmæli um að skjóta svifljósum á
loft.
Klukkan sjö þrjátíu um kvöldið
kemur Israelsstjórn saman til fund-
ar og fær fréttir af því, að falangistar
hafi veriö sendir inn í búðimar. Eini
ráöherrann, sem lætur uppi kvíða
yfir þessu ráöi, er David Levy
aðstoðarforsætisráöherra. Eitan,
yfirmaður herráösins, varar viö því
aö falangistar „brýni kutana” til
hefnda, eftir því sem fram kemur í
fundargerð sem síöar er lesin upp í
rannsókninni. Begin ber að hann hafi
ekki heyrt til Eitans hershöföingja
því aö hann hafi verið meö hugann
bundinn við fundargeröina.
Á milli klukkan tíu og ellefu um
kvöldið berast Yaron hershöföingja í
Beirút óljósar fréttir af fjölda drep-
inna „skæruliöa og borgara” í
búðunum. Sumir segja 120, aörir 45
og enn aðrir 300. Hann fær enga staö-
festingu þessara sögusagna og lætur
kyrrt liggja.
Föstudagur
17. september
Klukkan fimm í dögun er Moshe
Chevroni ofursti í njósnadeild hers-
ins vakinn meö frétt um aö 300
manns hafi verið drepnir í búöunum.
Hann ber aö hann hafi komiö þessari
'rétt áleiöis til Avi Dudai aöstoöar-
manns Sharons. Réttargæslumenn
Dudais hafa reynt að sýna fram á aö
lonum hafi aldrei borist skilaboö
Chevronis.
Klukkan níu um morguninn sér Avi
Drabovsky liösforingi falangista
skjóta fimm konur og börn. Hann
skýrir yfirmönnum sínum frá þessu.
Síöan ber hann aö honum hafi veriö
sagt aö máliö mundi rannsakað og
hann skuli ekki grípa fram í.
Undir hádegiö segir Zev Shiff, isra-
elskur stríösfréttaritari, Zippori
póst- og símamálaráöherra aö
falangistar séu aö „slátra” Pale-
stínuaröbum í búðunum. Zippori ber
aö hann hafi hringt fréttina til
Shamir utanríkisráöherra. Shamir
kannast viö símtaliö en segir aö oröið
„slátrun” hafi ekki verið viðhaft.
Hann segist ekki hafa reynt að fá
þessa frétt staðfesta.
Klukkan hálftólf hittir Drori hers-
höfðingi Yaron hershöföingja í fram-
línunni og segir af konu sem kveöst
hafa verið barin í höfuðið með byssu-
skefti af einum falangistanum.
Yaron hefur einnig fréttir frá öörum
hverfum V-Beirút þar sem falangist-
ar eru meiri hluti íbúa. Drori ber aö
hann hafi „fengið illan bifur” á allri
aögerðinni og fyrirskipar falangist-
um aö láta staðar numið.
Klukkan fjögur síödegis hitta
Eitan og Drori falangista sem segja
aö Bandaríkjamenn leggi fast aö
þeim aö hypja sig út úr búðunum.
Eitan skipar þeim aö Ijúka
aðgerðum og koma sér úr búöunum
fyrir dögun.
Klukkan sex til átta fær Ariel
Kenet starfsmaöur í utanríkisráöu-
neytinu fréttir frá ísraelskum emb-
ættismanni í Beirút þess efnis aö
Morris Draper erindreki USA kvíði
því aö „hryllilegar afleiðingar”
muni hljótast af innrás falangista í
V-Beirút. Kenet kemur þessu á fram-
færi viö ráðuneytisstjórann, David
Kimche, og eins til varnarmála-
ráðuneytisins. Sharon viöurkennir
aö hafa fengið skilaboö um aö
Ameríkanar klagifalangista í búöun-
um en hann segist ekki hafa brugðið
við, „því aö ekkert nýtt hafi komið
þarna fram”.
Hanan Baron aöstoðarráöuneytis-
stjóri utanríkismála segist hafa
fengið símhringingu nafnlauss
Ameríkana klukkan átta um kvöldið
sem segi Israelsmenn vera að skjóta
á Palestínuaraba. Þaö reynist ekki
satt. Hann segist hafa komið frétt-
inni áleiöis til aöstoöarmanns
Begins en Arriel Nevo liösforingi
kannast ekki viö að hafa nokkum
tíma talaö viö Baron um þetta.
I sömu mund talar Sharon viö
Eitan hershöföingja sem skýrir
honum frá því aö falangistar hafi
„valdið meiri mannskaöa meðal
borgara en búist hafði verið viö”.
Eitan sagöi honum ennfremur aö
falangistum heföi veriö skipað aö
hverfa frá búðunum í dögun eftir því
semSharonber.
Laugardagur
18. september
Milli klukkan fimm og sex aö
morgni sér Yaron hershöfðingi úr
varöstöð Israela, hvar falangistar
hafa á brott meö sér nokkra Evrópu-
menn úr búðunum. Falangistar
segja að fangar þeirra séu Baader-
Meinhofskæmliöar. Viö nánari eftir-
grennslan komast Israelar aö því aö
þarna var um aö ræöa læknalið úr
sjúkrahúsi búðanna.
Milli klukkan sex og sjö þrjátíu
yfirgefa síöustu falangistamir
búöirnar. Síöar um morguninn
hringir Draper hinn bandaríski í
Bmce Kashdan, fulltrúa Israels í
Beirút, og segir honum æfur af bræði
að starfsfólk hans telji h'kin í
hrönnum í búðunum. Dregur hann
enga dul á að hann kallar Israel til
ábyrgöar.
Zev Zacharin, aöstoöarmaöur
Eitan hershöföingja, ber fyrir nefnd-
inni að hershöfðinginn hafi sagt
honum aö Begin hafi hringt um
morguninn til þess aö grennslast
fyrir umkvitt varðandi Israela skjót-
andi í Gaza-sjúkrahúsinu. Begin
neitar aö hafa hringt og segist hafa
veriö í bænahúsi allan morguninn.
Begin segist fyrst hafa frétt af
fjöldamorðunum í frásögn BBC-
útvarpsins breska á laugardags-
kvöldið.