Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Page 16
16 DV. FIMMTUDAGUR 6. JANUAR1983. Spurningin Finnst þér að beita eigi viðurlögum gegn þeim sem aka um á sumar- dekkjum í ófærð eins og verið hefur síðustu daga? Halldóra Hreinsdóttir hjúkrunarfræð- ingur: Mér finnst að það ætti að sekta þá. Þeir eru slysavaldar. Minn bíll er að vísu á sumardekkjum en ég skildi hann eftir heima í dag. Sveinn Pálsson, verkstjóri í Straums- vík: Það eru nú einstaka bílar sem aka um á sumardekkjum og komast allt en menn veröa aö hafa vit fyrir sér. Helst væri að aöstoða þá ekkert og láta þá finna fyrir því. Bjarni Ingvarsson umsjónarmaður: Já, mér finnst að það ætti að sekta þá. Þeir sitja alls staðar fyrir manni. Bragi Sigurðsson blaðamaður: Ég held aö það sé brot á reglugerðum um umferðarmál að aka um á sumar- dekkjum við þessar aðstæður. Ef til vill er það næg refsing að mönnum hef- ur veriö gefin svo takmörkuð þekking á meöferð þessara tækja. En þeir valda svo mörgum óþægindum að þaö er sjálfsagt að láta þá finna fyrir því. Steinar Thorarensen trésmiður: Já, því þeir tefja það mikið fyrir öðrum. Ætli það þýði nokkuð annað en að beita sektum, það tæki enginn mark á því öðruvísi. Ingibjörg Gísladóttir skrifstofustúlka: Eg held að það sé erfitt að koma því við. Eg sé ekki hvemig lögreglan ætti aö hafa mannskap í aö fylgja því eftir. Ætli það sé ekki næg refsing fyrir þá að sitja fastir. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Höfnin í Grimsey. „Drangur verður að fresta ferðum vegna veðra og fiskibátar Grímseyinga sökkva bundnir „á höfninni” við sín legufæri” — segir í bréfi Gísla Hallgrimssonar. ^ ÓFREMDARÁSTANDIHAFN- ARMÁLUM GRÍMSEYINGA samkvæmt bréfi frá eyjarskeggja Gísli Hallgrímsson skrifar frá Grímsey: Dagana 16. og 17. desember biðu 3 farþegar eftir flugferð frá Grímsey til Akureyrar. Aðrir 3 biðu á Akur- eyri eftir flugferö til Grímseyjar. Flugveður viröist hafa verið eftir kl. 17 þann 17. des. en ekkert flug hafði enn oröið ki. 21. Þetta er ekkert eins- dæmi og biðin er oft mun lengri. Á meðan grefur afskekktar- og ein- stæðingskenndin um sig í huga Grímseyingsins. Flestir eyjarskeggjar láta sig þetta' þó ekki mestu skipta. Þeir vilja fremur vita hvað varð af milljóninni sem lögð var til hafnarinnar í eynni á þessu ári. Þeir sáu aö vísu vinnu- flokk koma, setja upp íbúðar- og vinnuskúra, steypa í rifur á hafnar- garði úr 3 pokum af sementi og reka nokkrar stálstoðir undir enda garös- ins, sem farinn var að síga, af því að undan honum gróf. Þar bogna nú þessar stoðir, þær sem ekki eru dottnar, og garðurinn sígur áfram. En það sem Grímseyinga vantar mest er varnargaröur gegn vestan- og norðvestanbriminu sem hellist yfir ófullkominn varnargarö. Það er enn jafnfjarlægur draumur og verið hefur síðustu áratugi. Meöan svo hagar til veröur þessi höfn, sem þyrfti að verða léhöfn fyrir djúpmið Norðurlands, hættuleg og ótrygg. Drangur verður aö fresta ferðum vegna veðra og fiskibátar Grímseyinga sökkva bundnir „á höfninni” viö sín legufæri. Grímsey- ingar vildu enn fremur vita hvað varð um þessa milljón krónur. Fóru þær allar í 3 sementspokana og stoð- irnar? Varö afgangur eöa þurfti e.t.v. aö taka lán sem næsta fjárveit- ing fer í aö borga? Gaman væri að fá svör frá Vita- og hafnamálaskrif- stofunni. Endurbyggja þarf hluta haf nargarðsins „Höfnin í Grímsey er mjög erfið viðureignar. Síöastliðið sumar fór fram bráðabirgðaviðgerö á aðal- hafnargaröinum til þess að vama því að hann hreinlega hryndi” — sagöi Daníel Gestsson, yfirverkfræðingur hjá Vita- og hafnamálaskrifstofunni. „Verkið var unnið með þeim hætti að tuttugu stálstoðum var tyllt undir garöinn á þrjátíu metra kafla. Tók þaö verk raunar mun skemmri tíma en við höföum áætlað í fyrstu. Nauðsyn ber þó til að endurbyggja garöinn alveg á þessum áðumefnda þrjátíu metra kafla, líklega með því að reka niður stálþil fyrir framan hann. AUur kostnaður við vinnu okkar í Grímsey síðastliðið sumar nam samtals hálfri milljón króna. En mér er ekki kunnugt um að teknar hafi verið endanlegar ákvarðanir um hafnarframkvæmdir í Grímsey,” — sagði Daníel aö lokum. -FG. — að sögn bréf ritara Aðstandendur Stundarfriöar ásamt Sveini Einarssyni þjóðleikhússtjóra. Bréfrit- ari segir leikritið eitt það besta sem hann hafi séð í sjónvarpinu af íslensku efni. DV-mynd: EinarOlason. Stundarfriður —gætum við ekki selt það erlendum sjónvarpsstððvum? Guðrún skrifar: Mig langar að þakka sjónvarpinu fyrir góöa frammistöðu um jólin. Sér- staklega þótti mér Stundarfriður, leik- rit Guömundar Steinssonar, sem sýnt var á annan dag jóla gott. Eg held bara að ég hafi aldrei séð íslenskt leikrit eða þátt eins vel úr garði gerðan. Það hvarflaði að mér hvort íslensk leikrit og þættir, sem gerð hafa veriö sérstak- lega fyrir sjónvarp og við höfum séð hingað til, hafi aldrei verið æfð neitt svo nokkru nemi. Getur það veriö? Ég sá Stundarfrið á sínum tíma á fjölum Þjóðleikhússins og ætlaöi því hreint ekki að horfa á það aftur. Einhverra hluta vegna sá ég þó upp- hafið en ég stóð ekki upp fyrr en tjaldið féll! Eg held bara að verkið hafi tekið sig betur út í sjónvarpinu. Skipt- ingar þóttu mér skemmtilegar og vel gerðar, leikaramir hver öörum betri. Þama sá maður, svo ekki verður um villst, að við getum gert góða, íslenska þætti. Skyldi ekki vera þama útflutningsvara á ferð? i síma 86611 milli kl. 13 og 15 eða 1623-9259 skrifar: Mig langar til þess að þakka Kór Langholtskirkju fyrir frábæran flutning á Jólaóratóríu Bachs núna milli jóla og nýárs. Flutningur kórsins, hljómsveitarinnar og einsöngvaranna Olafar Harðardóttur, Sólveigar Björling, Halldórs Vilhelmssonar og síðast en ekki síst Michaels Goldthorp verður mér ógleymanlegur. Eg hef tvisvar áður hlýtt á hluta óratóríunnar hér á landi á tónleikum og oft í heild á hljómplötum. En flutningurinn núna tekur þessu öllu fram. Jón Stefánsson á heiður skilinn fyrir stjórn sína á þessu meistaraverki. Finnst mér raunar kominn tími til að framlag Jóns til tónlistarmála á landinu verði metiö á raunhæfari hátt en nú er gert. Hann og kórinn hans ættu skiliö ríflegt fjárframlag frá ríkinu og ekki síöur Reykjavíkurborg. Tónlistarlíf hér væri mun fátækara ef þeirra nyti ekki við. Kirkjan þeirra nýja ætti líka skilinn einhvem stuöning. Bæöi presturinn, séra Sigurður Haukur, kórinn og organistinn, er fóik sem skilið á góða kirkju. Langholtssöfnuður er öfunds- verður af því a ð eiga slíkt fólk. Kór Langholtskirkju á æfingu fyrir Jólaóratóríuna ásamt hljómsveitinni. Stjóm- andinn, Jón Stefánsson, snýr baki í myndavélina. Þakkir fyrir Jólaóratóríuna: FLUTNINGUR SEM TEKUR ÖLLUM ÖÐRUM FRAM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.