Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Qupperneq 19
DV. FIMMTUDAGUR 6. JANUAR1983. 19 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Arnór fékk fjögurra leikja keppnisbann Frá Kristjáni Bernburg, fréttamanni DVíBelgíu: Arnór Guðjohnsen, knattspyrnu- maður hjá Lokeren, var í gær dæmdur í fjögurra leikja keppnisbann af knatt- spyrnudómstól belgiska knattspyrnu- sambandsins. Arnór var rekinn út af í siðasta leik Lokeren fyrir að slá til mótherja og fyrir það og brottvísunina fær hann nú f jögurra leikja bann. Hann fær þó aö vera með Lokeren í næsta leik í bikarkeppninni en Lokeren á að mæta Standard Liege þar á sunnu- daginn kemur. Ekki er þó víst að hann geti það því hann meiddist á hné á æfingu með Lokeren í fyrradag og gat af þeim sökum ekki leikið æfingaleik með liðinu í gær. Þetta fjögurra leikja bann kemur sér mjög illa fyrir Lokeren og Arnór sjálf- an. Hann hefur verið einn besti maður liðsins í leikjunum fyrir áramót og var í 1. til 2. sæti í stigagjöfinni um besta knattspyrnumann ársins í Belgíu þeg- ar jólafríið byrjaði þar. Hann missir því mörg stig við að tapa þessum f jór- um leikjum en hann fær ekki aö leika aftur með Lokeren fyrr en um miðjan febrúar. Leikirnir sem hann missir eru gegn Beerschot, AA Gent, FC Brugge og Tongeren. Um leið og Arnór fer í leikbann kem- ur Lárus Guðmundsson aftur til leiks meö Waterschei. Hann var dæmdur í fjögurra leikja bann í haust og hefur hannnútekiðútþanndóm. KB/-klp- • Arnór Guðjohnsen '&'.y-m, 'ftÁ *■ -'■••• £ Gísli Felix fór á kostum í Minden — þegar KR-íngar unnu sigur26:23 yfir Kiel í gærkvöldi. Jóhann Ingi veöurtepptur á íslandi u leikmanna V-Þýskalands. limir í handknattleik: að leika -skónum danska landsliðsins á sinum tíma, hef- ur tilkynnt að hann muni rifta samningnum við DHF ef leikmennirnir spili ekki í Hummel-skóm og gangi í Hummel-búningi fyrir og eftir hvem leik. Yrði það mikill fjárhagslegur skaði fyrir DHF sem kæmi nær ein- göngu niður á undirbúningi landsliös- ins fyrir stóru verkefnin næstu tvö ár. -klp- „Congu” — nýtt f orgjafarfyrir- komulag í golf inu í lög um alla Evrópu ÖU aðildarlönd að GoUsambandi Evrópu CONGU, hafa samþykkt nýtt fyrirkomulag á forgjafareglum. Munu þær taka gildi um næstu áramót, 1983/84, en margar þjóðir munu þó ætla að nota keppnistímabilið í sumar tll að læra að vinna eftir þessum nýju reglum. Helsta breytíngin frá gömlu reglunum er sú að árangur í æfingar- eða vináttuhringjum á golfvellinum gUdir ekki iengur. Verður aðeins tekinn gUdur árangur i keppni — það er að segja keppniskort. Þá verður forgjöf endurskoðuð — eftir keppniskortum — mjög oft á hverju sumri þannig að menn geta bæði hækkað og lækkað í forgjöf á nokkurra daga fresti. Golfsamband islands hefur samþykkt að taka þetta nýja kerfi, sem nefnt hefur verið „CONGU-kerfi”, upp hér. Er vitað að GoU- klábbur Reykjavíkur mun ætla að vinna eftir því strax í sumar þótt það taki ekki formlega gUdi fyrr en næsta ár og reiknað er með að fleiri golfkiúbbar hér geri sldtt hið sama. -klp- Frá Axel Axelssyni — fréttamanni DV í V-Þýskalandi: — Gísli Felix Bjarnason (Felixsonar), markvörður KR-liðsins, fór á kostum á gærkvöldi þegar vesturbæjarliðið vann góðan sig- ur 26—23 yfir Kiel í alþjóðlegu móti í handknattleik. Leikurinn fór fram hér í Minden og fékk Gísli Felix góðar mót- tökur hjá áhorfendum, sem klöppuðu einnig KR-ingum hvað eftir annað lof í lófa fyrir vel undirbúinn sóknarleik og vel útfærð hraðupphlaup. KR-ingar léku mjög vel og þeir áttu auðvelt með aö finna leiðina fram hjá varnarleikmönnum Kiel-liðsins, sem var eins og stjórnlaust rekald. Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari liðsins, gat ekki stjómað því þar sem hann var Christensen fingurbrotinn Morten Stig Christensen, fyrirliði danska landsliðsins, sem leikur með Gladsaxe/HG, fingurbrotnaði í fyrri leik Dana gegn Pólverjum. Hann mun ekki leika með Dönum gegn íslending- um í Danmörku í lok janúar. -SOS veðurtepptur á íslandi. Leikurinn var jafn framan af en þegar staðan var 10—9 fyrir KR lokaði Gísli Felix markinu — varði hvað eftir annaö vel og komust KR-ingar í 15—9 fyrir leikhlé og síðan 17—9 í upphafi seinni hálfleiksins. Síöan mátti sjá töl- ur eins og 21—16, 25—21 og lokatölum- ar urðu 26—23 eins og fyrr segir. Gísli Felix lék mjög vel og einnig þeir Anders-Dahl Nielsen, sem stjórn- aði leik KR-liðsins og skipulagði af mikilli snilld, og Alfreö Gíslason, sem var mjög ógnandi. Jóhannes Stefáns- son var góður — bæði í vöm og sókn. Stefán Halldórsson lék við hvern sinn fingur og skoraði 8 mörk — flest úr hraðupphlaupum. Þeir sem skoruðu mörk KR-liðsins Gísli Felix Bjamason átti stórleik með KR. voru: Stefán 8, Alfreð 6/2, Anders-Dahl 4/3, Jóhannes 4, Guömundur Alberts- son 2, Gunnar Gíslason 1 og Friðrik Guömundsson 1. Haukur Geirmundsson lék ekki með KR þar sem hann átti ekki heiman- gengt frá tslandi. Pólverjinn Pandas skoraði 5 mörk fyrir Kiel og þá skoraöi Berner einnig fimm mörk. Létt hjá Dankersen Dankersen lék gegn SC Elektromos Búdapest frá Ungverjalandi og vann auðveldan sigur 23—19 eftir að hafa haft yfir þetta fjögur-sex mörk allan leikinn. Ungverjamir tefldu fram gömlum köppum sem vom slakir. Seehase skoraði 9/1 mörk fyrir Dank- ersen og Mayer 5. -Axel/SOS 1 '«■ \ í Stefán Halldórsson ■ mörk. • skoraði átta Ásgeir er klár í slaginn Ásgeir Sigurvinsson er orðinn Igóður af meiðslunum í nára og Ihann getur byrjað að leika æfinga- Slciki með Stuttgart i næstu viku. IKeppnin í Bundesligunni hefst aft- Sur 22. janúar og getur Ásgeir þá ibyrjað að leika á fullum krafti með iStuttgart sem mætir Dortmund i Ifyrsta leiknum eftir vetrarfri |knattspyniumanna í V-Þýskalandi. -SOS Pólverjar með nýja stjörnu Waszkiewicz skoraði 11 mörk þegar Pólverjar unnu Dani 22-19 Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- manni DV í Svíþjóð: Pólverjar tefldu fram nýrri stjörau þegar þeir unnu góðan sigur, 22—19, yfir Dönum í landsleik í handknattleik í Kaupmannahöfn á þriðjudagskvöld- ið. Þessi stjaraa er Waszkiewicz sem er arftaki Klempels. Hann sýndi stór- góðan leik og skoraði 11 mörk. Waszkiewicz er ekki eins hávaxinn og Klempel heldur er hann léttur og lipur leikmaður sem skorar mörk á fjöl- breyttan hátt. Danir réðu ekkert við hann og Kosma sem skoraði fimm mörk. Pólverjar tóku leíkinn strax í sínar hendur og voru yfir allan leikinn — 11—9 í leikhléi. Danir urðu fyrir áfalli í byrjun leiksins er Morten Stig Christensen meiddist á hendi og var fluttur á sjúkrahús. Hann var þá bú- inn að skora tvö af þremur fyrstu mörkum danska liðsins. Þeir leikmenn sem skoruðu fyrir Danmörku voru: Niels Möller 3, Carsten Haurum 3, Morten Stig Christensen 2, Per Skaarup 2, Erik V. Rasmussen 2, Hans Hattesen 2, Ström, 1, Gluver 1 og Keld Nielsen 1. -GAJ/-SOS ‘1 Go'don Banks, fyrrum landsliðsmark- vorður F.nglands og heimsmeistari 1966, þurfti að' jggjaknattspyrnuskóna á hilluna 1972 þegar hann skaddaðist á auga í bíl- slysi 1972. Gordon Banks þjalfari hjá Luton Enska 1. deildarfélagið Luton hefur ráðið gamla landsliðsmarkvörðinn Gordon Banks sem þjálfara hjá félaginu. Banks, sem m.a. varö heimsmeistari með enska landsliðinu í knattspymu 1966, mun fyrst um sinn eingöngu sjá um þjálfun hinna þriggja markvarða félags- ins. Luton hefur fengið á sig flest mörkin í 1. dcildinni til þessa og er markvörðunum kennt um mörg þeirra. Banks ætti því að hafa nóg að gera á næstunni og ekki er að efa að hann getur miðlað hinum ungu markvörðum miklu af þekkingu sinni. -klp- Ardiles er ólöglegur Argentinumaðurinn Osvaldo Ardiles mun ekki leika með Tottenham gegn Sout- hampton í ensku bikarkeppninni á laugar- daginn á White Hart Lane. Ardiles er ekki löglcgur með Lundúnaliðínu þar sem tilkynna þarf félagaskipti til enska knatt- spyrausambandsins fjórtán dögum fyrir bikarleiki svo að menn séu löglegir með sínum nýju félögum. .§os Danskur sigur — 26:24 yfir Pólverjum ígærkvöldi — Eg er mjög ánægður með þeunan sig- ur því að vlð lékum án þrigg ja okkar bestu manna — þeirra Christensen, Carster Haurum og Michael Ström, sagði Leif Mikkelsen, landsliösþjálfari Dana í hand- knattleik, eftir að Danir höfðu unnið Pól- verja 26-24 (15—11) í Slagelse á Sjálandi í gærkvöldi. 1400 áhorfendur sáu leikinn. Þeir sem skoruðu fyrir Dani foru: Ras- mussen 7/2, Röepsdorff 6, Niels Möller 3, Winther 3, Hattesen 2, K. Nielsen 2, Skaar- up 1 og nýliðamír M. Fenger og Klaus Munkedahl eitt hvor. Korsma skoraði 11 mörk fyrir Pólverja, en nýja stjaman, sem við segjum frá hér tilhliðar,skoraðifjögurmörk. -SOS ittir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.