Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1983, Page 33
DV. FIMMTUDAGUR 6. JANUAR1983, 33 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL FALLEGT AÐ HAFA STÆLT AN LÍKAMA” segir Sif Sæmundsdóttir Hvaða vöðva skyldi þessi mikil- fenglega æfing styrkja sérstaklega? Það er hægur vandi fyrir lesandann að leggjast fram af sófanum sínum og athuga hvar tekur í en það virðist helst vera bakið og lærvöðvarnir. Mynd: BH. Það hefur leikið marga þokkadísina grátt hve skjótt magavöðvarnir slakna ef þeim er ekki haldið hæfilega strengdum með markvissri þjálfun. Þessi æfing, sem Sif er þarna að iðka af mikilli innlifun, er þó varla nema á færi hinna kattliðugu. Líkamsræktin Kjörgaröi hefur sérstakan æfingasal fyrir konur og er tækjabúnaðar þar með dálítið öðru sniði en hjá körlunum, enda gert ráð fyrir annars konar þjálfun, og þeim þykir gott sumum að vera svona hæfilega út af fyrir sig. Ung stúlka var þar fyrir með eldrautt hár og dró ekki af sér við æfingamar sýndist mér. Sif heitir hún Sæmundsdóttir og er tölvuritari hjá Hafskip. „Við erum ansi mörg úr Hafskip sem æfum hérna. Eg taldi um fyrir karl- mönnunum og var svolítið aö skjóta á þá og þaö endaði með því að þeir drifu sig hingaö. Það byrjaði líka ein kona auk mín en henni fannst þetta of tíma- frektoghætti.” — Finnst þér þetta ekkert of tíma- frekt? „Ég er nú einhleyp svo að ég hef nokkuö rúman tíma. Eg vinn frá 8—4 og kem hingað beint úr vinnunni og er hér eina klukkustund. Það er miklu þægilegra en að fara heim fyrst. Þá fær maður sér að borða og verður latur aö taka sig upp aftur og fara að æfa.” — Hvað æfirðu oft í viku? „Eg æfi svona 4—5 sinnum. Ég byrjaði hérna í fyrra og æfði þá í 8 mánuði samfleytt. Svo fór ég í sumar- frí og var frá í þrjá mánuði; en svo byrjaöi égaftur í haust.” — Fitnaðirðu eitthvað í hléinu ? „ Já, maður finnur mun alveg eins og skot. Sérstaklega eru magavöövamir fljótir að slakna. Eg legg sérstaklega rækt við að þjálfa magavöðvana og brjóstið.” — Ntisegir hún Rósa Ingólfsdóttir að lyftingar dragi safann úr brjóstunum á konum. Er þér sama um það? „Já, mér er alveg sama,” segir Sif og skellihlær. — Þessir karlmenn frá Hafskip sem æfa héma — hvort eru þeir komn- ir til þess að styrkja sig eða grynnka á fitunni? „Aðallega til þess að ná niður ístrunni en líka til þess aö styrkja sig. Það er svo fallegt að hafa stæltan líkama en ekki mjög vöðvamiklan en yfirleitt finnst mér fólk ekki mjög feitt hér á Islandi,” segir Sif sem er norsk í aðra ættina og hefur búiö löngum í Haugesund í Noregi. — Hvað ætlarðu að taka til bragðs þegar þú eignast fjölskyldu, vinnur úti fullan vinnudag og ferö svo heim í eldamennskuna? Ætlarðu þá aö hætta aðæfaþig? „Eg vildi nú helst halda áfram en það getur orðiö erfitt. Eg get tæplega æft eins stíft og ég geri nú.” — Kannski læturðu bara manninn elda? „Já, það væri ágætt. Eða við bara skiptumst á um að elda! ” „Ég hraktist út í líkamsrækt” — segir Jón Thor Haraldsson I Æfingastöðinni við Engihjalla hittum við' Jón Thor Haraldsson, menntaskólakennara og þýðanda Jón Thor Haraldsson þýðir skemmtiþættina um Fleksnes, og sá norski hefði örugglega ekki vont af þvi að kippa i lóðin ásamt þýðanda sínum. MyndrBH. sjónvarpsmynda. Þýðir hann meðal annars skemmtiþættina norsku um Fleksnes en það er mála sannast að hinn ágæti Fleksnes ætti að verða mörgum góðum drengjum hvatning til þess að drífa sig í megrun. „En það er nú ekki þess vegna,” segir Jón Thor og hlær við. „Eg mátti passa mig hér á árum áður en undanfarin ár hef ég alls ekki verið teljandi feitur. Láttu samt ekki ljúga þvi aö þér að æfingar af þessu tæi losi nokkurn mann við spikið einar sér. Það er aðeins ein leiðtil þess að leysa þann vanda og hún er sú að hætta að étaeinsog skepna.” — En hvers vegna fórstu þá aö æfa hér? „Það má nú eiginlega segja að ég hafi hrakist út í líkamsrækt því að ég veiktist fyrir þremur árum og var þá fyrirskipað aö halda mér í formi. Það vill svo heppilega til að ég á heima héma í húsinu á móti svo það er örskammt að fara. Eg er ekki viss um hvort ég myndi nenna aö keyra eftir þessu. Það sem ég legg aðal- áherslu á eru þrekæfingar og liðkunaræfingar og ég kann ágætlega viðmighér.” — Lagðirðu einhverja stund á íþróttir áður en þú byr jaðir hér? „Já blessaður vertu. Eg var í júdó hér áöur fyrr. Svo hef ég synt mikið en ég læt þetta nægja núna. En ég hef aldrei verið neinn sportídjót.” — Hvað ertu gamall Jón? „Ég verð fimmtugur í apríl.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.