Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1983, Blaðsíða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR6. MAl 1983. TRIMMLANDSKEPPNIN FÓR VEL AF STAÐ Norræn trimmlandskeppni fatlaöra hófst á sunnudaginn var. Var strax mikil og góö þátttaka í keppninni enda Islendingar staöráönir í aö sigra í henninúna. Keppnin er tvíþætt. I fyrsta lagi er hún á milli Noröurlandanna og svo á milli héröassambandanna hér. Hlýtur þaöhéraöDV-homiösem sembestum árangri nær miöaö við íbúafjölda. Verölaunagrip þann gaf Dagblaöið- Visú-til keppninnar. Markús Einarsson, framkvæmda- stjóri keppninnar, sagði í gær aö þátt- tökukort heföu verið send til héraös- sambamía og ýmissa annarra aöila víöa um land. Á kort þessi skráir þátt- takandi sitt trimm ásamt dagsetningu og einkenni þeirrar greinar sem hann tekurþáttí. Kort þessi hafa ekki borist til allra og því birtum viö mynd af kortinu hér og er þátttakendum heimilt að klippa hana útognota. Rétt til þátttöku í keppninni hafa allir félagsbundnir í íþróttafélögum fatlaöra og einnig ófélagsbundnir fatlaöir. Skilgreining á fötlun er erfiö en í þessari keppni er miðað við alla þá sem eiga viö einhverja fötlun aö búa. Má þar t.d. nefna sjónskerta, heyrnar- skerta, hreyfihamlaöa, þroskahefta, gigtveika, öryrkja svo eitthvaö sé nefnt. Einnig eiga aldraöir rétt á aö taka þátt í keppninni, svo og fólk sem á viö tímabundna fötlun aö búa. Telst t.d. handleggsbrotinn maöur fatlaöur þar til hann hefur náö aftur fullum bata. Hafa því margir rétt til aö vera meö og lætur sjálfsagt enginn sitt eftir liggja til að tryggja sínu héraði sigur og um leiö aö tryggja sigur Islands í Norrænu trimmlandskeppninni í annaðsinn. -klp- Verðlaunin sem um er keppt í Norænu trimmlandskeppninni. Bikarinn lengst til vinstri er farandbikar sem gefinn er af Svíum en minni bikarinn lengst til í hvert sinn sem þú tekur þátt færist dagsetning í reit ásamt merki hverrar greinar Nafn Heimiii F.D. AR: ÞÁTTTÖKUGREINAR ganga = 9 hlaup = h sund = s hjólreiöar = hj kajakróður = r hjólastólaakstur = ha hestamennska = he Reyndu að ná einu stigi á dag þá hefur þú gert þitt til þess að færa íslandi sigur. Þátttaka fhvertskipti varir mínnst 30 mínútur. TRÚNAÐARMAÐUR: Nafn Heimili Kortiö sem notaö er í trimmlandskeppninni. í hvern reit er skráö dagsetning og einkenni greinarinnar sem viðkom- andi tekur þátt í. Kort þetta má klippa út úr blaðinu og geta þeir notað það sem ekki hafa haft tök á að útvega sér kort eftir öðrurn leiðum. fKKft/V 18. tbl. — 45. árg. 5. maí 1983. ....... Meðal efnis í VIKUNNI núna: • íslenskir Vasagöngumenn — spjallað við þátttakanda í Vasa-skiðagöngunni • Góð ráð til að koma reglu á ruslið • Meistaragreiðslur Sólveigar Leifsdóttur • Óvenju margbrotinn pianóleikari, hann Martin Berkofsky, en ætlar samt að halda áfram að spila • Aðferð til að finna þungamiðju bílsins • Vatnið flaut og vinið rann — spjallað um Moseldalinn og vinin Ijúfu • Orchestral Manoeuvres in the Dark á plak- ati • Langtima lambalæri með Ijúfum keim i Eld- húsi Vikunnar • Og ekki má gleyma framhaldssögunum si- vinsælu — hver býður upp á framhaldssög- ur nema Vikan? á næsta blað- sölu- stað hægri fær sú þjóð til eignar sem sigrar í keppninni. í miðjunni er DV-hornið sem Dagblaðið-Vísir gaf til keppninnar en það hlýtur það hérað sem er meö besta þátttöku miðað við íbúaf jölda. DV-mynd Bj. Bj. EinarBen. aftur á veiðar — nú f rá ísafiröi á djúphafsrækju Hiö margumtalaða fiskiskip, Einar Benediktsson, mun halda aftur á veiöar í dag eöa á morgun. Hefur verið unniö aö ýmsum lagfæringum á skipinu síöan þaö var fært til hafnar aö kröfu Siglingamálastofnunarinnar fyrir liölega þrem vikum. Gert hefur veriö við þaö sem um var beöið og mun Einar Ben. fá haf- færiskírteini um leiö og viögeröum er lokiö. Þó mun verða beöið meö uppsetningu á skutrennulokanum fram á sumar en hann var eitt aðal- málið þegar skipiö var tekiö. Einar Ben.mun fara á djúphafs- rækjuveiðar og stunda þær meö 1800 möskva trolli. Á skipinu veröa sex menn í staö tíu áöur og mun það leggja upp aflanná Isafirði. -klp- Ríkiskassanum bjargað: 317 milljón króna erlent lán Islenska ríkiö hefur tekiö lán hjá Hollendingum aö upphæð 40 milljónir hollenskra gyllina sem er jafnvirði sem næst 317 milljóna króna. Samningur þessa efnis var undir- ritaðurfyrir skemmstu í Reykjavík. Lánið er tekiö hjá tveim hollenskum bönkum fyrir milligöngu Amro Bank. Þaö er veitt til 10 ára en er afborgunar- laust fyrstu sex árin. Vextir eru 8 7/8% og greiðast árlega eftir á. Lánsféö mun renna til framkvæmda samkvæmt lánsfjárlögum, aö því er segir í frétt frá f jármálaráöuneytinu. -JSS Mál Grétars Sigurðar Árnasonar: Vitnaleiðslur hef jast brátt Mál Grétars Siguröar Ámasonar veröur flutt í héraösdómi í fyrsta lagi í lok júní næstkomandi, aö sögn Gunn- laugs Briem, yfirsakadómara í Reykjavík, sem dæmir málið sam- kvæmt umboðsskrá. Grétar Sigurður er ákæröur fyrir manndráp og líkamsárás. Hann er ákæröur yfir að hafa ráöist aö tveim frönskum systrum í sæluhúsi á Skeiðarársandi eftir miönætti 17. ágúst síöastliöið sumar, vopnaöur hagla- byssu. Hann er ákærður fyrir aö hafa bariö aöra stúlkuna í höfuöiö meö byssuskefti þannig aö hún hlaut höfuökúpubrot og að hafa hleypt skotum af haglabyssu í bakhiuta hinnar stúlkunnar. Síöan aö hafa meö valdbeitingu gagnvart stúlkunni og röngum upplýsingum til ökumanns tankbifreiöar aftraö því að hún kæmist meö bifreiöinni og gæti leitað læknis- hjálpar. Loks er Grétar Sigurður ákærður fyrir aö hafa komið stúlkunni fyrir í lokuöu farangursrými bifreiöar. Vitnaieiöslur hefjast síöar í þessum mánuöi og veröa bæöi í Reykjavík og fyrir austan. Meöal þeirra sem bera vitni er franska stúlkan sem Grétar Sigurður er ákæröur fyrir aö hafa höfuðkúpubrotiö. Máliö var þingfest í sakadómi Austur-Skaftafellssýslu síðastliöinn mánudag. Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari sækir málið en Jón Oddsson hæstaréttarlögmaöur hefur veriö skipaður verjandi. -KMU. Þyrla frá varnarliðinu Ienti með „slasaða” við Borgarspítalann skömmu fyrir hádegi í gær. DV-inynd: S. FLUGSLYS SVIÐSETT (VESTMANNAEYJUM Almannavamir stóöu fyrir umfangs- mikilli björgunaræfingu í Vestmanna- eyjum í gærmorgun. Sett var á sviö flugslys þar sem farþegaflugvél meö 36 manns innanborðs hlekktist á í lendingu. Allt tUtækt björgunarliö í Eyjum var kallað út, lögregla, slökkviiiö, Hjálpar- sveit skáta, sveit frá Björgunarfélagi Vestmannaeyja og fleiri. Þyrla frá varnarliðinu og flugvél Landhelgis- gæslunnar, TF—SYN, komu til Eyja ogsóttu,,slasaða”. Aö sögn lögreglunnar í Vestmanna- eyjum tókst æfingin vel. Eftir er þó að vinna úr skýrslum varöandi æfinguna og munu þá eflaust einhverjir van- kantar koma í ljós sem reynt veröur að bæta úr. -FÓV, Eyjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.