Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1983, Blaðsíða 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 6. MAl 1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Þegar Rauðu khmerarnir náðu völdum í Kampútseu var höfuðborgin rústir einar
og varð að yfirgefa hana. Nú hafa Rauðu khmerarnir tekið upp baráttu gegn lepp-
stjórn Vietnama, sem ráku þá frá völdum, og enn á ný eru unnin hryðjuverk í
Phnom Penh.
Thatcher og íhaldiö
njóta trausts fylgis
Parísarlögreglan hefur beitt táragasi og kylfum gegn stúdentum í mótmælunum að undanförnu en mest gekk á í gær og í nótt.
Óeiröir í öllum helstu
borgum Frakklands eftir
mótmælagöngu stúdenta
Til átaka kom í gær þegar náms-
menn og kaupsýslumenn efndu til mót-
mæla víös vegar í Frakklandi, þar sem
fram braust óánægja með stefnu
sósíalistastjómarinnar í fræöslumál-
um og efnahagsmálum.
I uppþotunum í París meiddist fjöldi
manna þegar „Mólotoff-kokkteilum”,
flöskum og grjóti var varpað að lög-
reglunni. Af og til blossuðu upp óeirðir
í höfuöborginni í alla nótt og komst
ekki fullur friður á fyrr en í morgun-
sárið.
Um 10 þúsund hægrisinna stúdentar
Aðalsmaðurhand-
tekinnfyrirklám
Breskur jarl, sem nýlega gerðist
umsvifamikill í breskum klámiðn-
aði, var handtekinn af lögreglunni í
London í gær. Talsmaöur lögregl-
unnar sagði að lögreglan hefði lagt
hald á klámbækur, tímarit og
vídeóspólur að verðmæti um tvær
milljónir króna. Fjórir vom hand-
teknir, þeirra ámeöalGreylávarð-
ur, en öllum var sleppt án ákæru.
Fjórmenningunum ber að mæta
aftur til yfirheyrslu í dag.
Þegar Grey lávarður geröist
framkvæmdastjón kl ámverslunar-
innar fyrr á þessu ári sagöist hann
gera það vegna þess að hann vildi
hafa eftirlit með verslunarháttum í
klámiönaöinum enda teldi hann
sjálfan sig vera „mjög siðvandan”.
efndu til fjöldagöngu í París í gær til
þess að mótmæla nýju fræöslulaga-
frumvarpi en nokkur hundruö tóku sig
út úr göngunni, veltu viö kyrrstæðum
bílum og báru eld að götutálmunum,
sem lögreglan haföi sett upp. Lögregl-
an mætti þeim meö kylfur á lofti og
táragassprengjur.
Vitað er um að minnsta kosti 50 lög-
Kínverjarvilja
Vfetnama burt
Mesti valdamaöur Kinverja,
Deng Xiaoping, lýsti því yfir í gær
að ekki myndi komast friður á í
Kampútseu fyrr en Víetnamar
drægju hersveitir sínar til baka.
Deng sagði þetta við fréttamenn
þegar hann fundaði með Mitter-
rand Frakklandsforseta, en hann
var spurður hvernig hann teldi
Frakka helst geta stuðlað að friði í
Kampútseu.
„Ég vona aö öll ríki heimsins,
þar með tahn Kína og Frakkland,
muni stuðla aö því aö Víetnamar
dragi hersveitir sínar tU baka,”
sagði Deng. „Þannig verður vandi
Kampútseu leystur, fyrr eða síð-
ar.”
reglumenn og 33 stúdenta sem meidd-
ust. 60 voru handteknir.
Sömuleiðis beitti lögreglan táragasi
gegn nokkur hundruö kaupsýslumönn-
um, sem efnt höföu til mótmælaað-
gerða annars staðar í París. Þeir höfðu
einnig velt bifreiðum og grýtt lögregl-
una og opinberar byggingar. Um 15
þúsund manns höfðu tekið þátt í mót-
mælagöngu kaupsýslumanna.
I öllum helstu borgum Frakklands
var efnt tU mótmælaaðgeröa í gær í
sama dúr og í París og víöast uröu ein-
hver uppþot.
Þetta voru fjórðu fjölmennustu mót-
mælaaðgerðimar í París síðan
óánægja stúdenta braust út fyrir tíu
dögum.
Ráöherrar Mitterrands halda því
fram að hægri öflin í landinu reyni að
æsa stúdenta til uppþota en fjöldi
námsmanna, og þar á meðal lækna-
stúdentar, eru hættir aö sækja kennslu
í eins konar mótmælaverkfaUi vegna
fyrirhugaðra breytinga á lögum um
háskólanám. Of mikil sókn þykir vera í
læknadeUdimar og vilja yfirvöld beina
stúdentum tU annarrar æðri menntun-
ar sem hagnýtari þykir samfélaginu,
þar sem offramboð sé á læknum.
Kaupsýslumennirnir, aðallega smá-
kaupmenn, mótmæla verðstöðvuninni.
Kínverjarn-
ir ætluðu
að óhlýðn-
ast f lug-
ræningjum
Suður-Kóreustjóm tUkynnti í
morgun aö hún mundi fara með sex
kínverska flugræningja, sem bar að
garði hjá henni í gær, samkvæmt
ákvæðum alþjóðalaga um f lugrán.
Þetta er í fyrsta sinn sem kínverskri
farþegaflugvél er rænt en hún var í
innanlandsflugi á leið frá Mansjúríu
með 105 farþega í gær. Neyddu
ræningjarnir áhöfnina tU þess að
fljúga vélinni til S-Kóreu þar sem hún
lenti á bandarískum herflugvelli
norðurafhöfuðborginni.
Áhöfn vélarinnar hafði veitt mót-
spymu og var hleypt af skotum svo að
tveir áhafnarmeðlimir særðust.
Ræningjarnir höfðu krafist þess að
flogið yrði með þá til Taiwan
(Formósu) en flugmennimir breyttu
stefnunni tU N-Kóreu og ætluöu aö
lenda í Pyongyang en létu sig loks og
héldu til S-Kóreu í staðinn, eftir að
vélin haföi sveimað nokkmm sinnum
yfir Pyongyang.
Við komuna til S-Kóreu gáfust
ræningjarnir strax upp fyrir lögregl-
unni. Kína hefur krafist þess að flugvél
og farþegum verði skilaö tafarlaust og
hefur óskað eftir samningum við stjóm
S-Kóreu, en ekkert stjórnmálasam-
band er mUli þessara ríkja, þótt
nokkur verslun hafi verið þeirra í mUli
og töluverð samskipti önnur.
Útlönd
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
HRYÐJUVERK í PHNOM PENH
Fimmtán manns létust og meir en
þrjátíu særðust þegar skæruliðar
Rauðu khmeranna gerðu árás í út-
hverfi Phnom Penh fyrr í vikunni.
Þessi árás var gerð í Tagmao, úthverfi
Phnom Penh, og hafa Rauðu khmer-
amir ekki komist svo nærri höfuðborg-
inni frá því stjórn Pol Pot var rekin frá
völdum eftir innrás Víetnama í janúar
1979.
Sjónarvottar, sem flestir vora
læknar og hjúkrunarlið frá Austur-
Evrópu, sögðu aö að minnsta kosti
tveim handsprengjum hefði verið
kastað á markaðstorgi Tagmao. Lepp-
stjórn Víetnama í Phnom Penh hefur
ekki látið hafa neitt eftir sér um árás-
ina og aðeins var lítillega á hana
minnst í útvarpssendingu leynilegrar
útvarpsstöðvar andspyrnuhreyfingar-
innar.
Tahð er að tilgangurinn með árás-
inni hafi fyrst og fremst veriö sá að
sýna að Víetnamar og leppstjóm
þeirra hafi ekki það vald yfir Kampút-
seu sem þeir vilja vera láta. Einnig
velta menn því fyrir sér hvort Rauðu
khmeramir hyggist nú auka hryðju-
verk til að koma Víetnömum úr jafn-
vægi.
Sveitar- og bæjarstjórnarkosning-
amar í Bretlandi í gær staöfestu að
íhaldsflokkurinn, undir forystu
Margretar Thatcher forsætisráðherra,
nýtur tryggs fylgis fram yfir stjórnar-
andstööuna.
Fátt þótti koma á óvart viö fyrstu
tölur og sýnist mönnum ekkert þurfa
að fæla Thatcher frá að boða til þing-
kosninga hið fyrsta. Jafnvel strax í
næsta mánuði.
Mesta athyglin beindist að kosning-
unum í næststærstu borg Englands,
Birmingham, sem íhaldsflokkurinn
vann naumlega af verkamannaflokkn-
um síðast. Hélt hann velli.
Talnaspekingar BBC-útvarpsins
vilja lesa út úr tölunum að íhalds-
flokkurinn hafi 6% fylgisforskot fram
yfir verkamannaflokkinn á landsvísu
en sá fylgismunur mundi duga til
tryggs meirihluta á nýju þingi.
Þar sem úrslit lágu fyrst fyrir hafði
kosningabandalag jafnaðarmanna og
frjálslyndra hvergi unnið neitt á og
þykir íhaldsmönnum það spá góðu
fyrir þá ef til þingkosninga yrði efnt í
næsta mánuði.
Verkamannaflokkurinn vann sinn
heista sigur í Liverpool, þar sem hann
vann meirihluta í borgarráöi með því
að vinna fulltrúasæti af frjálslyndum.
Einnig sigraði verkamannaflokkurinn
í Blackburn en tapaöi hinsvegar naum-
um meirihluta sínum í Grimsby.
Flokksbræður Thatcher leggja orðið
mjög fast að henni að neyta meðan á
nefinu stendur til þess að vinna nýtt
umboð til annars 5 ára kjörtímabils. —
Margir spá því að til þingkosninga
veröi gengið 23. júní. Þó lýkur
kjörtímabilinu ekki fyrr en í júní næsta
ár.
Kosið var í bæjarráð 36 borga í gær
og 296 sveitarfélögum í Englandi og í
Wales. Víöast var þó aöeins þriðjungur
fulltrúa í endurkjöri. Ekki var kosið í
London og ekki íSkotlandi.
Mestan sigur hlutu íhaldsmenn í
Cardiff í Wales en þar hafa orðið meiri-
hlutaskipti í öllum kosningum síöustu
þrjúskiptin.
Ut frá fylgi frjálsiyndra og jafnaðar-
manna reiknast talnaspekingum aö
kosningabandalag þeirra mundi ekki
fá nema 19% atkvæða og um 20 þing-
sæti í þingkosningum.
t