Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Blaðsíða 11
DV. FÖSTUDAGUR 20. MAI1983. 11 „Þarna kemur fólk hvaðanæva úr heiminum, svo þetta hefur mikið auglýs- ingagildi." DV-mynd: GVA. Bjóst aldrei við að ná svona langt — segir Leif ur Breiðfjörð er f ékk alþjóðleg verðlaun fyrir glerlist Leifur Breiðfjörö hlaut þriðju verð- laun í alþjóðlegri samkeppni glerlista- manna sem haldin var í San Diego í Kalifomíu. Orslitin voru kunngerð síð- astliðna helgi og vissi Leifur ekkert um þau fyrr en Katrín Pálsdóttir, frétta- maður útvarpsins, sagði honum hin ánægjulegu tíðindi. „Þetta á sér eiginlega langan að- draganda,” sagði Leifur. „Egtók fyrst þátt í þessari samkeppni árið 1977. Þeir sem standa á bak við þetta eru Glass Magazine og Spectrum. Þá sendi ég inn myndir af tveimur verka minna. Annað var glugginn á Esjubergi og hitt var lítið verk í einkaeign. Þá var ég valinn í undanúrslit; einn af þrjátíu. Annars hef ég ekki tekið þátt í sam- keppni fyrr en þá núna. Síðan 1977 hef- ur þetta stækkað mjög mikið, er nú stærsta alþjóðlega samkeppnin á þessu sviði. Þama er allt, sem viðkem- ur gleri; blásið gler, glerskúlptúr, frí- hangandi gler, gluggar. .. Samkeppninni er skipt í fimm flokka og ég sendi verk í þann sem tengdur er arkítektúr; verk sem gerð em fyrir ákveðna staði. Meðal annars sendi ég myndir af gluggum sem ég hef hannað fyrir Bústaðakirkju. Sendi þá bara myndir af þeim tveimur gluggum sem ég hafði lokið við þá; tveim af sex hlut- um í stafnglugganum. Forráðamenn keppninnar skrifuðu til baka og vildu fá nánari upplýsingar. Nú voru ekki lengur þrjátiu manns í undanúrslitum heldur einungis nítján. Eg var beðinn um að senda fleiri myndir og einnig ljósmyndir og teikn- ingar af kirkjunni svo hægt væri að vita hvemig gluggamir féllu aö bygg- ingunni. Ég sendi þetta allt saman út og þaö var til sýnis á alþjóðlegri ráðstefnu um gler sem einnig var haldin í Californíu. Sá, sem varð í fyrsta sæti, er mjög þekktur glerlistamaður, Paul Marione. Hann hefur gert mjög skemmtilega hluti. — I öðru sæti er svo þýsk stúlka sem ég þekki ekki. Hún heitir Margarethe Keith. Enn sem komið er hef ég ekkert frétt af þessu sjálfur. Og hefði ekki vitað um þetta ef útvarpið hefði ekki hringt, en nú mun verðlaunagripur vera á leið- inni, kristalgripur, og það verður gam- an að sjá hvort hann kemst hingaö heill. Eg bjóst aldrei við að ná svona langt. Þátttakendur voru mjög margir, hátt á fjórða hundraö. Hver og einn mátti síðan senda inn tíu myndir, svo það hefur verið rosalegt að fara yfir þetta allt saman, um það bii fjögur þúsund myndir. Það er mjög mikils virði bara að taka þátt í sýningu á borð við þá, sem þarna er um að ræða, hvaö þá að fá verðlaun. Þarna kemur fólk hvaðan- æva úr heiminum, svo þetta hefur mik- ið auglýsingagildi. ” -FG. Jafnt ungir sem gamlir höfðu gaman af þvi að skoða módelin á sýningunni á Isafirði. DV-mynd VJ, Isafirði. MÓDELIN GLÖDDU AUGU MARGRA Á ÍSAFIRÐI Ungir Isfirðingar stóðu fyrir módel- sýningu í Skátaheimilinu á Isafirði um síðustu helgi. Sýndu þeir þar fjölmörg fjarstýrð módel sem þeir hafa verið að vinna að. Mjög mikill áhugi er hér í bænum fyrir módelsmíði. A sýningunni voru vélflugvélar, svifflugur, hraðbátar og bílar, og allt er þetta með f jarstýringu. Aöilar þessir hafa unnið þetta allt sjálfir og voru módelin sýnd á ýmsum byggingarstigum. Einnig sýndu þeir hvemig ætti að athafna sig við þessa hluti, t.d. flugvélarnar á flugi. Þeir hafa ekki enn stofnað með sér félag en hyggjast gera það í framtíðinni. Segja þeir þetta mjög skemmtilegt hobbí, vinna við smíðarnar á dimmum vetr- arkvöldum en leika sér svo með þetta á sumrin. -V.J.Ísaf. Smurbrauðstofan BJORNINN Njá&sgötu 49 — Slmi 15105 SÁÁ Félagar! Sjálfboðaliða vantar til starfa Nú erframundan lokaspretturinn í skuldabréfasöfnun samtakanna, og mikil vinna fyrirsjáanleg næstu daga. Til þeirrar vinnu þarf mikinn fjölda sjálfboðaliða úr samtökum okkar. SÁÁ félagar og annað áhugafólk látið skrá ykkur til starfa ísíma 82399. Verum þess minnug að það munar um allt- og að margar hendur vinna létt verk. Stjórnin. royota Corolla árg. '81, 4-dyra. Ekinn 27.000, drappl. Verð: 165.000,- Opið laugardag 10-16 trrs TOYOTA salurinn Nýbýlavegi 8, sími 44144. Toyota Crown Super Saloon árg. '81. Ekinn 45.000, rauður. Verð: 370.000,- Toyota Cressida DL árg. '80, sjálf- sk. Ekinn 60.000, brúnn. Verð: 170.000,- Toyota Cressida GL árg. '80, sjálf- sk. Ekinn 55.000, blár. Verð: 180.000,- Toyota Crown sjálfsk. Ekinn Verð: 195.000,- disil árg. '80, 132.000, rauður. Toyota Land Cruiser árg. '76. Ek- inn ca. 60.000, gráblár. Verð: 230.000,-. Skipti möguleg á ódýr- ari bíl. Toyota Corolla KE-30 árg. '79. Ek- inn 25.000, silfur-sans. Verð: 115.000,- Toyota Corolla árg. '81, 4-dyra, 5 gíra. Ekinn 39.000, rauður. Verð: 175.000,- Toyota Corolla árg. '81, 4-dyra, 5 gíra. Ekinn 16.000, rauður. Verð: 180.000,- Toyota Tercel árg. '80, 2-dyra. Ek- inn 28.000, blár. Verð: 130.000,-.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.