Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Blaðsíða 17
DV. FÖSTUDAGUR 20. MAI1983. Frásagnir og myndir frá 1. deildarslagnum á fjórum síðum í DV Fréttir frá Keflavík, Reykjavík, Akureyri og það nýjasta frá útlandinu Búið að benda belgískum félög- um á Aðalstein — belgísk knattspyrnufélög fá aukinn áhuga á íslenskum knattspymumönnum Þær fréttir bafa borist frá Beigíu að belgiskir umboðsmenn séu farnir að hugsa sér til hreyfings til að leita að knattspyrnumönnum fyrir belgísk félög næsta keppnistímabil. íslending- ar hafa verið mikið i sviðsljósinu i Belgíu enda hafa margir snjallir leik- menn leikið þar undanfarin ár við mjög góðan orðstir, eins og Ásgeir Sigurvinsson, Amór Guðjohnsen, Lár- us Guðmundsson og Pétur Pétursson. Belgískir umboðsmenn og forráða- menn félaga í Belgiu hafa hug á að róa á Islandsmið í sumar í leit að knatt- spyrnumönnum en Island hefur oft verið kallað „ódýri markaðurinn” í er- lendum blöðum vegna þess hvað félög hafa þurft að borga lítið verð fyrir knattspyrnumenn héðan. DV hefur frétt að nú þegar sé búið að benda nokkrum félögum í Belgíu á unglingalandsliðsmanninn Aðalstein Aðalsteinsson úr Víkingi. Aöalsteinn er einn af okkar efnilegustu knattspymu- mönnum. Þá hafa félög i Belgíu augastað á Skagamanninum unga, Sigurði Jóns- syni, og hafa menn velt því fyrir sér, hvort hann verði arftaki Amórs Guðjohnsenhjá Lokeren. Það er ljóst að „njósnarar” frá Belgíu verða hér á ferðinni í sumar og DV hefur frétt að þeir fyrstu komi til að sjá íslenska landsliðiö — skipað leikmönnum undir 21 árs, leika gegn Spánverjum í Kópavogi 28. maí og Is- lendinga leika gegn Spánverjum í Evrópukeppni landsliðs 29. maí á Laugardalsvellinum. -SOS Getraunaleikur DV og JAPIS: Fer SONY-tækið til Þorgríms? — sem skoraði mark fyrir Valsmenn eftir aðeins 72 sek í Keflavík Það bendir nú allt til að Valsmaður- inn Þorgrfmur Þráinsson tryggi sér • Þorgrimur Þráinsson. hið glæsilega SONY útvarps- og kassettutæki sem DV og JAPIS veita þeim leikmanni sem verður fyrstur til að skora mark í 1. deildarkeppninni í knattspyrau. Þorgrímur skoraði mark í Keflavík í gærkvöldi eftir aðeins eina minútu, tólf sekúndur og 47/100 sam- kvæmt SEDCO-skeiðklukku Magnúsar Gislasonar, fréttamanns DV á Suður- nesjum. Þorgrímur stendur nú með pálmann í höndunum þegar aöeins einn leikur er eftir í fyrstu umferð 1. deildarkeppn- innar. Það er leikur Vestmannaeyinga og Isfirðinga sem fer fram í Eyjum í kvöld. Eins og hefur komið fram í DV þá eru verðlaunin afar vegleg. Sony út- varps- og kassettutæki sem Japis gefur. Tækið er með tveimur mígra- fónum, tveimur öflugum hátölurum og það gengur fyrir rafmagni og rafhlöð- um. Bylgjurnar eru þrjár — FM stereo, L og M. Tækið er afar hentugt feröatæki. Það verður ljóst í kvöld Fylkismenn fá Fram í heimsókn 2. og 3. deildarkeppnin hefst í kvöld Þrír leikir verða leiknir i 2. deiidar- keppninni i knattspymu í kvöld. Fylkir mætir Fram á Árbæjarvellinum kl. 20 og á sama tíma leikur Völsungur gegn Víði frá Garði á Húsavík og Siglf irðing- ar fá FH-inga i heimsókn. Á morgun verður einn leikur í 2. deild í Njarðvík kl. 17. Njarðvíkingar mæta þá Einherjum frá Vopnafirði. Fimm leikir fara fram í 3. deildar- keppninni í kvöld kl. 20 en þeir em: Skallagrimur — Grindavík VíkingurOl. —IK Selfoss — HV Snæfell — Armann Magni —HSÞ-b Leikjum Austra og Þróttar Nes- kaupstað og Vals og Hugins hafa verið frestað, þar sem knattspymuvellir á Austfjörðum eru ekki tilbúnir. hvort Þorgrímur fær tækið eða Eyja- menn eða Isfirðingar verði fyrri til að skora mark en hann. Þá mun það einn- ig verða ljóst hvaða lesandi DV spáði rétt um hver yrði fyrstur til að skora mark. Við munum segja frá því hér á síð- unni í þriðjudagsblaðinu eftir hvíta- sunnu. -SOS iistta Aðalsteinn Aðalsteinsson — leikur með 21 árs landsliðinu. DV-mynd: Friðþjófur. Daglish kemur ekki til íslands Kenny Dalglish. þar sem hann er í 18 manna landsliðshópi Skota, sem Jock Stein valdi í gær Jock Stein, landsliðseinvaldur Skotlands, valdi í gær 18 manna landsliðshóp fyrir Kanadaferð skoska landsliðsins í byrjun júní. Steln hefur valið Kenny Dalglish, hinn marksækna leikmann Liver- pool, í landsliðshópinn og er því ljóst að Dalglish getur ekki leikið með stjörauliði Vikings gegn Stutt- gart á Laugardalsvellinum 11. júni, þar sem hann verður þá i Kanada. Víkingar vom búnir að semja við Dalglish, um að hann kæmi til Reykjavikur 10. júní. John Wark hjá Ipswich og Alan Brazil hjá Tottenham geta ekki farið til Kanada þar sem þeir verða á keppnisferðalagi með félögum sínum. Þá getur Neil Simpson, sóknarleikmaður Aberdeen, ekki farið til Kanada því að hann ætlar aðgiftasigll.júní. Jock Stein verður staddur á Hampden Park í Glasgow á morgun til að sjá Aberdeen og Glasgow Rangers leika til úrslita um skoska bikarinn. Sjö af leik- mönnum Stein, sem eru í Kanada- hópnum, leika með Aberdeen og Rangers. -SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.