Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Side 3
DV. LAUGARDAGUR18. JUNl 1983.
3
Bílarþessir eru nýir, ókeyrðir, árgerð 1982
og vegna góðra samninga eru þeir á mjög hagstæðu verði.
Opið laugardaga kl. 10—19.
Nú komast aUir í sóiina — Hvergi betrí kjör
Eina ibúdahótelið á Magaluf þar sem lyfturn-
ar ganga beint niður i sundlaugar, sólbaðs-
svæði og sandinn. Allar íbúðir snúa móti
strönd og sól. Takið eftir því, áður en þið
veljið ykkur baðstrandarhótel á Magaluf.
Ennfremur kostur á glæsilegum hótelum með hálfu fæði.
G3K(LAI1D
Á SPÁNARVERÐi
Ótrú/ega ódýrar Grikklandsferðir flesta laugardaga um
London. Hægt að stansa í London á heimleiðinni. Búið á
glæsilegum hótelum í eftirsóttum baðstrandarbæjum
við Aþenustrendur eða íbúðahóteli. Allir gististaðir
okkar í Grikklandi með einkasundlaugar á eftirsóttustu
stöðunum.
Eftirsóttasta íbúðahótelið á
Magalufströndinni.
Brottfarardagar: 6. júli, 27. júlí, 17.
ágúst, 7. sept., 28. sept.
Við bjóðum upp á fjölbreytta
gistimöguleika. Ferðir á ótúlega
hagstæðu verði. Trianon íbúða-
hótel alveg á Magalufströndinni
með fullkominni aðstöðu við
sundlaugar, bari og hraðréttar-
staði á sólbaðssvæðinu. Gengið
beint út i sandinn. Miðstöð
skemmtanalifs, ótal veitingastað-
ir og verslanir í næsta
nágrenni.
Notið fjölskylduafsláttinn
50% afs/áttur fyrir börn tí/ Mallorca 6. jú/í og
27. jú/í. Takmarkaður íbúðafjö/di.
NÝTT
Þér veljið hjá okkur
íbúðina og fáið lyklana
með farseðlinum.
Ennfremur
flugfar seðlar
um allan heim.
KOMAST ÍSLENDINGAR’
LOKSINS AFTUR
Nú komast Islendingar aftur
loksins ódýrt til þessara
vinsælu og fögru sólskinspara-
dísar við Miðjarðarhafið. Glað-
vært skemmtanalif, góðar bað-
strendur. Mikil náttúrufegurð
og fjölbreyttar skemmti- og
skoðunarferðir.
Nokkur pláss óseld á ,,is-
lensku'' hóteli i hinum fagra
baðstrandarbæ Tosasa de Mar
6. júli og 27. júli, 22 dagar kr.
22.480.
A ðrar ferðir okkar: Tenerife
Franska Rivieran — Malta
FLVGFEKDIR °™ lAU“""#G,l
SÓIARFLUG KL'° '
Vesturgötu 17 Símar 10661 — 15331 og 22100
Ófullnægjandi hækkun raforku
telur Samband íslenskra rafveitna
Samband íslenskra rafveitna hefur
mótmælt þeirri ákvörðun ríkis-
stjómarinnar að setja jafna 9,5%
hækkun á orkuverö allra rafveitna til
aö mæta 19% verðhækkun Lands-
virkjunar til þeirra.
I ályktun aðalfundar SlR sem
haldinn var á tsafirði 9. júní segir:
„Fyrir flestar rafveitur er þessi
hækkun alls ófullnægjandi, enda
iðnaðarráðuneytinu fullkunnugt um
að þarfir rafveitnanna vegna þess-
arar heildsöluveröhækkunar eru
mismunandi og liggja á bilinu 9,5%
til 15%.
„Aðalfundur SlR átelur þessi
vinnubrögð og beinir því til iðnaðar-
ráðuneytisins, að það beiti sér fyrir
því að ríkisstjórnin leiðrétti þessi
mistök hið bráðasta enda rafveitur
landsins engan veginn í stakk búnar
til að þola beint tekjutap sem af fyrr-
greindum ráðstöfunum ieiðir.”
I ályktuninni er einnig vísað til
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar
þar sem segir: „Sveitarfélög ákveði
sjálf gjaldskrár þjónustufyrirtækja
sinna.” Er bent á að framangreind
hækkun sé ekki í samræmi við þetta
markmið. -ÓEF.
Nú um helgina hefst hringferö
ökuleikninnar, sem Bindindisfélag
ökumanna og DV standa fyrir, um
landið.
Bindindisfélag ökumanna verður
með sendibíl sem er sérútbúinn sem
stjórnstöð ökuleikninnar og mun hann
aka um landið vel merktur.
DV mun segja frá keppninni og birta
myndir frá henni jafnóðum og einnig
verður næsta keppni tilkynnt
jafnóðum.
Eins og áöur hefur verið skýrt frá
verður keppt í kvenna- og karlariðli á
hverjum stað og vilja forráðamenn
keppninnar hvetja kvenfólkið
eindregið til að taka þátt því þetta er
keppni fyrir alla ökumenn. Veitt verða
verðlaun í hvorum riðli fyrir sig og
einnig hafa sigurvegarar beggja riðla
möguleika á að taka þátt í úrslita-
keppninni í haust ef þeir eru á aldr-
inum 18—25 ára og um leið keppa þeir
um utanlandsferð sem fulltrúar
Islands í norrænu ökuleikninni sem
haldin verður á vegum Opel GM í
einhverri af verksmiðjum Opel.
Ástæðan fyrir þvi aö Opel er blandað
inn í þetta er sú að Opel -GM á
Norðurlöndum er samstarfsaöili bind-
indisfélaganna á Norðurlöndum.
Umboðsaöili Opel-GM á Islandi er því
samstarfsaðili Bindindisféiags
ökumanna og DV og er það
Sambandið, véladeild. Sambandið
mun lána Opel til að keppa á í úrslita-
keppninni, en þar keppa allir á sama
bíl og einnig gefur Sambandið vegleg
verðlaun þeim er þar sigra. Ekki má
gleyma fjárhagslegum styrk Sam-
bandsins, m.a. í formi auglýsinga o.fl.
Eins og áður sagði hefst hringferðin
í dag, laugardaginn 18. júní, með
keppni í Borgamesi, 19. júní á
Olafsvík, 20. júní í Búðardal, 21. júní er
bílakeppni á Isafirði og 22. júní vél-
hjólakeppni á Isafiröi og ferðinni um
Vesturland og Vestfirði lýkur með
keppni á Tálknafirði þann 23. júní. Þá
taka Norðurland og Austfirðir við.
Keppnin þar verður auglýst síðar.
Keppni sem haldin er á virkum dögum
verður á kvöldin. Keppnin er vel
auglýst með plakötum á stöðunum og
þar kemur fram hvar og hvenær hún
verður og verða þeir er hug hafa á að
verameöaðhafaaugunopin. -EG.
DV-mynd EG.
Ökuleiknisbíllinn sem fer hringinn í kringum landið.
Ökuleikni ’83 á hríng-
ferð um landið