Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Blaðsíða 20
20
DV. LAUGARDAGUR18. JUNl 1983.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 112. og 114 tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 og 4. tbl.
þess 1982 á hluta í Hvassaleiti 12, þingl. eign Stefáns V. Pálssonar, fer
fram eftir kröfu Landsbanka tslands og Baldurs Guðlaugssonar hrl. á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 22. júní 1983 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Blesugróf 7, þingl. eign Ómars Sigtryggssonar, fer
fram eftir kröfu Tómasar Gunnarssonar hdl., Gjaldheimtunnar í
Reykjavík, Landsbanka íslands, Iðnaðarbanka islands og Iðnlána-
sjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 22. júní 1983 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Seljugerði 12, þingl. eign Jóns Ragnarssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Tollstjórans í
Reykjavík á eigninni sjálfri miðvikudaginn 22. júní 1983 kl. 14.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Kötlufelli 7, þingl. eign Sverris Jenssonar,
fer fram eftir kröfu Tryggingast. rikisins, Gjaldheimtunnar í Reykja-
vík og Brynjólfs Kjartanssonar hrl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 21.
júní 1983 kl. 16.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
OFFSET — LJÓSMYNDUN
Oskum að ráða starfsmann í offsetljósmyndun og skeytingu.
Uppl. gefur Olafur Brynjólfsson.
Frjáls f jöliniðlun — prentsmiðja
Síðumúla 12.
SÖLUTURN ÓSKAST
Fjársterkur kaupandi óskar eftir að kaupa góðan söluturn.
Aöeins góður söluturn kemur til greina. Með tilboð verður
farið sem trúnaðarmál.
Tilboðóskast send DV fyrir 25.06.83 (8854).
Iðja, télag
verksmiðjufólks,
heldur félagsfund í Domus Medica þriðjudaginn 21. júni kl.
17.00.
Dagskrá: 1. Hólmgeir Jónsson, hagfræðingur ASI, hefur
framsögu um kjaramál.
Uppsögn samninga.
Mætið öll og hafið félagsskírteini með.
Stjórn IÐJU.
BEIN SALA OG SKIPTI
5gíra,i40ha.
vökvastýri
veltistyri
rafdr rúöur
plussáklæði
útvarp/kass.
Háaloftið
■ w*
Benedikt Axelsson
þetta ertu að búa þig undir að dansa
á götunum sem eru dálítið holóttar
enn og ef svo vill til að þú hafir fengið
þér í glas í tilefni dagsins sérð þú að
sjálfsögðu tvær holur þar sem ég sé
bara eina og Davíð enga. En það ger-
ir ekkert til, aðalatriöið er að
skemmta sér, sleppa fram af sér
beislinu einu sinni í tilefni dagsins og
þótt einhverjir fótbrjóti sig eða verði
fyrir því óláni að rata ekki heim til
sín þegar dansleiknum er lokið gerir
það ekkert til, það er nefnilega
vitlaust gefið eins og þjóðskáldið
sagði.
En niðri á Austurvelli stendur Jón
Sigurðsson steyptur í eir og haggast
ekki þótt sumum finnist að hann
hefði fullan rétt á að snúa sér undan.
Kveðja
Ben. Ax.
>ií sjálfetæðis
vér syngjum
kátan brag
Af ástœdum sem mér eru gjörsamlega óskiljanlegar hélt ég að 17.júní vœri í dag en
eins og alþjód veit var hann í gœr. Ég verð því vinsamlegast að biðja þig að lesa þátt-
inn með gœrdaginn í huga, þ.e.a.s. ef þú ert ekki báinn að lesa hann nú þegar.
Ná sjálíslæðis eér syngjum kálan
brag
þrí sjálfsladid caiinst einmill
þeniiaii day
ny sigriiiiiin rér fögiiiini keik og
kál
rió kóka kála drykkju og pylsuál.
Það fer ekki framhjá þeim sem fá
skrúðgönguhælsæri í dag að 17. júní
er runninn upp, b jartur og fagur eins
og endranær meö sölutjöldum í
Austurstræti þar sem hægt er að
kaupa blöðru sem svífur umsvifa-
laust til himna ef maður sleppir af
henni spottanum og unglingadans-
leik um kvöldið á öðru hverju götu-
homi þar sem Island ögrum skorið
verður hvorki spilað á sjuntesæser
né íkvalæser en sjálfsagt verða því
fleiri sem tilbið ja guð sinn og dey ja.
Ég hef áður minnst á það hvað
skrúðgöngur em skemmtilegt fyrir-
bæri ef ég þarf ekki að taka þátt í
þeim og samkvæmt nýjustu fréttum
munu þær vera hollar þótt þær
jafnist kannski ekki á við skarsdeil-
kúra eða blómafræfla. Auðvitað tek
ég undir þetta því að það getur varla
verið margt heilnæmara en það að
horfa á feður með afkvæmi sín á öxl-
unum, rauðnefjaða og bítandi á jaxl-
inn arka niður á torg, guð má vita
hvaðan, og til baka aftur.
Það sem ég hef út á skrúðgöngur
að setja er fjöldinn sem tekur þátt í
þeim, mér finnst alveg nóg að svona
tveir til þrír taki þátt í hverri göngu
og í öðru lagi finnst mér þær of
langar.
I morgun gekk ég úr svefnher-
berginu og upp í eldhús að fá mér
kaffisopa og fannst mér það hæfileg
vegalengd en hins vegar má kannski
segja að þátttakendur hafi verið með
færramóti.
Stór þáttur í göngutúrum á tylli-
dögum er lúðrasveitir sem fara í
broddi fylkingar og reyna að hafa
eins hátt og þær geta til að sem
flestir hey ri til þeir ra.
Stundum rignir á tyllidögum og þá
blæs maðurinn með stóra lúðurinn,
sem ég veit ekki hvað heitir, svo
fast að hann verður blár í framan þvi
að ef hann gerði það ekki myndi hann
trúlega drukkna áður en hann kæm-
ist niður á torg og missti þar af leið-
andi af skemmtiatriðunum sem
hefjast ætið stundvíslega klukkutima
eftir að síðasti gestur göngunnar og
jafnframt sá sem er með stærsta
hælsærið kemur lafmóður á staðinn.
Þegar Lækjartorg var hannað
voru Reykvfkingar svona álíka
margir og alþingismenn eru nú og
þess vegna komast göngumenn og
skemmtikraftar ekki með góðu móti
fyrir á torginu. Skemmtikraftarnir
fara þess vegna upp á svalirnar á
einhverjum bankanum og þar öskra
þeir sig hása í hátalarakerfi sem er
auðvitað bilað og kemst ekki í lag
fyrr en dagskránni er lokið, góða
nótt.
Hér ríkliþjód rið fálækl fiirdiiin t
Itð
og framiinilan rar heniiar
daaðaslríð.
Við bjiiggiini þá rið áþján erlends
calds
og okkur skorli ineiiii lil Irausls
og lialds.
En þii gafsl ei upp og engiiin neina
þá
gul eflt rorl þrek og slyrkl þá
ceika Ini
að þjóðin gæli ennþá íært þá fórn
að frelsa sig og híla eigin sljórn.
Á meðan skemmtikraftar öskra sig
hása í bilað hátalarakerfi fær fólkið
sér pylsu og kók og blöðru og sest í
grasið í Bakarabrekkunni, það kostan
ekki neitt hvemig svo sem á því
stendur, en litlu bömin, þau sem
ríkisstjómin hefur verðlagt á þrjú
þúsund krónur, heimta að fá að
hlusta á hása fólkið.
Það er stungið upp i þau íspinna
svo linni öskmnum því að magnara-
kerfiö þeirra bilar aldrei, sama
hvaðadagurer.
Þegar búið er að tæma pylsupott-
ana, bæla grasið nóg i Bakarabrekk-
unni, drekka úr síðustu kókflöskunni
og senda síðustu blöðmna til guðs er
haldið heim á leið að búa sig undir
fjörið umkvöldið.
Fjörið um kvöldið
Eins og ég sagði í upphafi og óþarfi
er að endurtaka er 17. júní runninn
upp bjartur og fagur og þegar þú lest