Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Blaðsíða 8
DV. LAUGARDAGUR18. JUNI1983. 8 útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIOLUN HF. stiórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjóm: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 86611. Auglysingar: SÍOUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreíðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjómar: 86611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA12. Prentun: ÁRVAKUR HF., SKEIFUNNI1». Áskriftarverð á mánuði 230 kr. Verð í lausasölu 20 kr. Helgarblað 22 kr. Stjórnarblöðin bítast Hörkurifrildi hefur staöið milli stjórnarblaðanna, Morgunblaðsins og Tímans, þær vikur, sem liðnar eru frá stjórnarmyndun. Merkilegast við deilurnar er, hve bræðin er mikil á köflum. Morgunblaðið hóf skothríð 29. maí og sagði í Reykjavíkurbréfi: ,,Sé það staðfastur vilji þingflokks Sjálfstæðisflokksins aö ganga til verks með uppbrettar ermar við að hreinsa upp versta viðskilnað nokkurrar ríkisstjórnar í hálfa öld aö dómi Þórarins Þórarinssonar, er erfitt aö skilja, hvaða vit er í því að gera það undir verkstjórn eins þeirra manna og eins þeirra flokka, sem mesta ábyrgð bera á þessum óhreinsaða flór. Ráðherra- stólar geta veriö of dýru verði keyptir.” Eins og fram kemur af þessu er tilefni skothríöarinnar umfjöllun Þórarins Þórarinssonar Tímaritstjóra um stjórnarmyndunina. Þórarinn sagði í leiðara, að ríkis- stjórn hefði ekki komiö til valda við erfiðari kringum- stæöur síðustu 50 árin, ef undan væru skildar tvær stjórnir. Tíminn svaraði 1. júní og sagði, að ljóst væri, ,,að í umræddu Reykjavíkurbréfi hefur verið reynt að falsa ummæli í forystugrein Tímans á hinn freklegasta hátt”. Morgunblaðið svaraði strax 2. júní og sagöi, aö vondur viðskilnaður ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsen væri ,,meðal annars og ekki sízt” afleiðing þess, að fram- sóknarmenn hefðu setið í ríkisstjórn nærri óslitið síðan í júlí 1971. Tíminn svaraði daginn eftir meö áminningu til ritstjóra Morgunblaðsins um, að þeir skyldu „gleyma Gunnari Thoroddsen” og reyna að gera „Sjálfstæöis- flokkinn samstæðari og starfhæfari”. Morgunblaöiö rifjaði í leiðara 5. júní upp ummæli í leiðara Tímans frá 18. maí, þar sem sagði, aö hjá Svíum tíðkaöist, að forseti þingsins hefði forystu um stjórnar- myndunarviðræöur flokka. Morgunblaðiö veittist hart að Tímanum og kvað Tímann hafa mælt með því, að valdið til aö veita mönnum umboð til stjórnarmyndunar skyldi tekið af forseta íslands og falið forseta Alþingis. Morgun- blaöiö krafðist þess svo, eins og sá sem valdið hefur, aö „tafarlaust” yrði úr því skorið, hvort þarna væri um stefnu Framsóknarflokksins að ræða. Ennréðst Morgunblaöið á framsóknarmenn 14. júní, eftir að þingflokkur Framsóknar ályktaöi, að ekki skyldi halda sumarþing. Morgunblaöið sagöi, að ályktun þing- flokksins um þetta væri „í litlu samræmi við nútímahug- myndir manna um starfshætti löggjafarsamkundunnar”. Daginn eftir ber Tíminn Morgunblaðsritstjórum á brýn, aö þeir séu „arftakar” Sósíalistaflokksins gamla, sem hafi krafizt, að þing kæmi saman við gerð varnar- samningsins 1951. Þeir hafi „villzt undir fána sósíalista”. Morgunblaðið skaut enn á framsóknarmenn í leiðara 15. júní og krafðist þess enn á ný, að „tafarlaust” yrði tekinn af vafi um, hvort Framsókn vildi skerða völd for- seta íslands. Enn var skotið í fyrradag, þegar fjallað var um leiðara Tímans um „arftaka sósíalistanna” frá deginum áður. í „Staksteinum” sagði Morgunblaöið undir milli- fyrirsögninni „Rugl Tímans”, að ritstjóri Tímans bæri saman ólík tilvik og „lygi” svo „vísvitandi aö lesendum”. Blöð stjórnarflokka hafa oft átt í hörðum deilum. En venjulega er friðsamlegt milli þeirra fyrst eftir stjórnar- myndun. Bræöin í rifrildi Morgunblaösins og Tímans nú lofar ekki góðu um framhaldið í stjórnarsamstarfinu. Haukur Helgason. Skotmarka- tnllö brúaö - með langtnmaáætlun I sjónvarpsþætti, sem sýndur var nýlega um vígbúnaðarkapphlaupið, var sagður hroðalegur sannleikur á lítt áberandi hátt. Ég á þó ekki við það aö stórveldin hafi steypt sér út í kjarnorkuvopnakapphlaupið meira af kaffi en forsjá, því það vissum við fyrir. Heldur ekki það að nú sé til nóg af kjarnorkusprengjum til þess að drepa hvert mannsbam á jörðinni, og það oftar en einu sinni (gerist þess þörf, sem auðvitaö er ólíklegt). Hinn hroðalegi sannleikur var sá að enn hefur bil myndast milli stórveldanna í þessu kapphlaupi, bil sem auðvitað verður að brúa til þess að viöhalda jafnvæginu. Hér á ég við „skot- markabilið” (targetgap). I eðli sínu er þetta einfalt mál. Fyrst sprengdu Bandaríkjamenn kjarnorkusprengju og við það mynd- aðist kjamorkusprengjubil. Það brúuöu Sovétmenn og sendu síðan Spútnik upp í geiminn og við þaö myndaðist eldflaugabil, sem Banda- ríkjamenn brúuðu síðan, og síðan hefur vígbúnaðarkapphlaupiö snúist um það að breikka bil og brúa á víxl. En þetta með skotmarkabilið er al- varlegra mál og má segja að efna- hagsblómi Bandaríkjanna komi þeim þaríkoll. Málið er semsagt það að Sovét- menn geta enn um sinn framleitt sínar kjamorkusprengjur og eld- flaugar af SS gerö án þess að hafa af því minnstu áhyggjur hvert þeim verður miðað því að í Bandaríkjunum em svo margar borgir og bæir, svo mörg iðnaðarhéruð og herstöðvar. En Bandaríkjamenn em ekki svo vel settir því þeir hafa svo til klárað öll skotmörk í Sovétr'kjunum, aö því er mér skilst. Og þaö er alvarlegt mál því ekki má hætta framleiðslunni á þessu stigi málsins þvi þá myndi myndast bil! Og það bil yrði að brúa! En hvernig þá? Þegar öll skotmörk hafa verið útsigtuðog hægt eraðger- eyða þeim öllum með því einu aö ýta á hnapp? Allir sanngjarnir menn hljóta að hafa samúð með bandarískum hers- höfðingjum sem nú reyna aö leysa þetta vandamál. Þetta snertir auðvitað ekki aðeins bandaríska hershöfðingja. Þetta snertir einnig yfirmann alls herafla Bandaríkjanna, forsetann sjálfan. Reagan Bandaríkjaforseti situr nú, áhyggjufullur í egglaga skrifstofunni í Hvíta húsinu, kúrekahatturinn stóri er á borðinu fyrir framan forsetann sem ekki treystir sér til þess að auka á byröar sínar með því að tylla hatt- inum á kollinn. Oðru hvoru horfir ÓlafurB. Guðnason Reagan angurvær á hattinn góða og strýkur yfir kúfinn á honum eins og þar væri hundurinn Tryggur lifandi kominn. Andspænis forsetanum sitja hers- höfðingjamir, niðurlútir og daprir. Forsetinn brosir ekki lengur, og hann ávarpar allan hópinn: ,,Engin skotmörk meir, ha? Hvemig má það vera? Hvers vegna sýndi enginn ykkar forsjálni meðan enn var tími til þess að leiðrétta þessi mistök? „Herrn forseti,” segir einn hers- höfðinginn. „Þú mátt trúa því að hefðum við séö þessi ósköp fyrir hefðum við gert eitthvaö í málinu, en þetta var bara eins og hvert annað slys!” „Hver sjálfur ansvítinn er þetta eiginlega?” segir forsetinn og er nú gramur. „Erum viö alveg búnir meö skotmörkin? Allt saman, ekki nokkur staður sem hægt er að sigta á?” „Já, forseti góður! Allt,” segir yfirmaður herráðsins og brestur í grát. Hann sígur niður úr stólnum, leggst á grúfu á gólfið og færist allur í aukana við grátinn, lemur kreppt- um hnefum í gólfið og orgar: „Allt! Allt! Búnirmeðallt!” „Getum við ekki sigtað á einhver útihús? Einhver samyrkjubú í Síberíu? Þaö hljóta að vera einhvers staöar mannvirki til þess að sprengja?” Forsetinn á erfitt með að skilja þessar hræðilegu fréttir. „Nei, forseti góður,” segir efna- hagsmálaráðgjafinn og hristir höfuð- ið dapurlega. „Það kostar nokkrar milljónir að smíöa sprengju, og hundrað milljónir að smíða eldflaug, fyrir nú utan kostnaöinn við aö koma henni fyrir, og kostnað við fjrir- byggjandi viðhald og eftirlit. Ut í þann kostnað er ekki hægt að leggja, bara fyrir eitt samyrkjubú, þar sem kannski búa tvö hundruð manns. Við kæmum því aldrei gegnum þingið. Þeir myndu einfaldlega benda á að það svaraði ekki kostnaði. ” „Svaraði ekki kostnaöi, ” æpir yfir- maður herforingjaráðsins. „Eru þessir Tsar kommar allir saman? (Ts = SOB. SOB = Son of a Bitch. Son of a Bitch = Tíkarsonur. Tíkar- sonur = Ts.) Hvernig má það vera að það svari ekki kostnaöi að verja frelsið?” Efnahagsmálaráögjafinn hóstar lítið eittog tekur svotilmáls: „Þing- mennimir munu segja að frelsinu stafi lítil hætta af tvö hundruð manna samyrkjubúi sem framleiðir minna en meðaleinyrki á smájörö í Kansas. Þetta er auðvitað óábyrgurmálflutn- ingur og sumir þessara Tsa eru dá- lítið bleikir, en viö því er ekkert að segja. Þeir ráða yfirpeningunum.” „En hvað er þá til ráða?” For- setinn spyr efnahagsmálaráð- gjafann, örvinglaður. „Vandamálið er tvíþætt. I fyrsta lagi er framleiðslukerfi kommanna svo lítiö og vanmáttugt að við erum búnir að dekka það allt með okkar vopnum. I ööru lagi eru Sovétmenn of fáir! Allt þetta land, og varla sála í því. Viö þurfum fleiri stórar borgir, og viö þurfum fleiri iðnaðarsvæði til að miða á því annars fæst þingið ekki til þess að samþykkja fjárveitingar til frekari vopnasmiða! ” Efnahagsmálaráðgjafinn þagnar andartak og brosir kalt og djöful- lega. „Þess vegna verðum við að veita Sovétmönnum efnahagsað- stoð! Pumpa í þá peningum og tækni svo þeir framleiði meira. Það er að vísu vandamál aö Rússar, sérstak- lega, drekka svo mikiö að ævilíkur þeirra fara minnkandi en við getum eflaust fengið AA-samtökin til þess að senda sendinefnd til þeirra. Og með bættum efnahag og lengingu meðalævi, ásamt auknum bameign- um, förum við svo að þurfa fleiri sprengjur og eldflaugar! Eg geri mér grein fyrir að þetta tekur sinn tíma, en við verðum að taka lang- tímahagsmuni þ jóðarinnar f ram y fir alltannað!” Forsetinn hugsar sig um andartak, en kinkar svo kolli hægt. „Þetta líst mér vel á. Þetta er bráðsnjallt Tsinn þinn! Kalliö strax á sovéska sendi- herrann! Eg þarf að koma á leið- togafundi með Andrópov! ”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.