Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR18. JUNÍ1983.
11
Hiis Jéns Sigurössonar i Kaupmannahöfn:
Prins pó lú tHf
íslensh menning
Hús Jóns Sigurðssonar.
Allir vita aö Hús Jóns Sigurðs-
sonar er einhvers staðar í Kaup-
mannahöfn en það eru færri sem vita
hvar það er. Það er ekki við Isted-
gade. Það er ekki í Tívolí og svo
sannarlega ekki við Strikið. Marga
sem fara til Kaupmannahafnar fýsir
þó að sjá húsið og líta þar inn þó ekki
væri nema til að geta sagt frá því
svona i framhjáhlaupi einhvem tim-
ann seinna á Ufsleiöinni aö þeir hafi
komið í hús frelsishetjunnar og
andað aö sér islenskri sögu á
erlendri grund í menningarviðleitni
sinni.
Besta ráð sem hægt er að gefa
óvönum íslenskum ferðalangi sem
ætlar að fara í Jónshús er að taka
lest til Osterport og tölta síðan með
nefið oní korti frá stöðinni að 0ster-
voldgade númer tólf en það er
heimilisfang Jónshúss.
Þaö sem húsið hefur upp á að bjóða
er veitingasalur á fyrstu hæð þar
sem kaupa má ýmislegt þjóðlegt eins
og prins póló, hangikjöt og skyr.
Vertamir i Jónshúsi heita nú Gulli og
Ragga. Þegar fulltrúi ykkar, blaða-
maður DV, átti leið í Jónshús nýlega
var Gulli einn á vakt. Við röðuðum í
okkur dansk-íslensk-ítölskum kvöld-
verði, pizzu,GrönTuborg,skyrimeð
r jóma og r jómapönnuköku.
I húsinu voru nokkrir samlandar
sem stunda nám i Kaupmannahöfn
að skoða blöðin. Gulli var á þönum og
veitti óneitanlega persónulegri þjón-
ustu heldur en Islendingum býðst
annars staðar í Kaupmannahöfn.
Þegar hann kom meö rjómapönnu-
kökuna horfði hann til dæmis rann-
sakandi á diskinn sem hann hélt á og
sagði: „Þettaernúlíkaraflatköku.”
r
Rósinborgarhöll. Hún er i ná
grenni Jónshúss.
Þróun Ijóðs á vegg
Gulli var nýbúinn að setja upp sýn-
ingu á ljóðum eftir ýmis íslensk
skáld. Hann hafði sent beiðni í gegn-
um Rithöfundasambandið til nokk-
urra skálda og fengið þau til aö
senda sér afrit af ljóði eftir sig og
ljósrit af uppkasti eða uppköstum að
ljóðinu sem þau höföu gert. 1 gegnum
þetta varö til skemmtilegt sambland
af myndlist og ljóðlist.
Fyrir utan veitingasalinn á fyrstu
hæð er í Jónshúsi, á annarri hæð,
fræðimannsibúð. Á þriðju hæð, þar
sem Jón Sigurðsson og Ingibjörg
bjuggu, er minningarsafn um Jón
Sigurðsson og bókasafn Islendinga i
Kaupmannahöfn. A fjórðu hæð húss-
ins er sendiráðsprestur sem jafn-
framt er safnvörður minningar-
safnsins og umsjónarmaður hússins.
Safnið er að vísu ekki opið nema milli
13 og 16.
Aðalstarfsemi Jónshúss er yfir
vetrarmánuðina. Húsið er félags-
heimili Islendingafélagsins og Fé-
lags íslenskra námsmanna í Kaup-
mannahöfn. Þar eru haldin þorra-
blót, spilakvöld og fleira.
Rósinborgarhöll
Botanisk have
Ef fólk hefur áhuga er ýmislegt
sem skoða má i nágrenni Jónshúss. I
næsta nágrenni er Rósinborgarhöil
þar sem gersemar konungsættarinn-
ar eru varðveittar í konunglegu
minjasafni. I næsta nágrenni við
húsið er einnig Botanisk have. Þar er
að finna trjárunna og grasategundir
frá öllum heimshlutum. Þar í
nágrenninu er einnig Listasafn
ríkisins. Marmarakirkja er þama
ekki langt undan heldur og einnig
Listiðnaðarsafnið.
Jón Sigurðsson tekur ekki lengur á
móti Islendingum í húsinu en þar
getur þó ennþá verið notalegt fyrir
landann að staldra við ef timi vinnst
til einhvers meira í Kaupmannahöfn
en að rölta um Strikið og skoða þaö
sem miðborgin hefur upp á að bjóða í
varningi, mat, víni og menningu.
SGV.
Einar Már og Þórunn. Þau búa i Kaupmannahöfn. Á borðinu liggja isiensk biöð sem þau voru að lesa.
&
'VIDEO'
OPIÐ ÚLL KVÖLD TIL KL. 23
Kvikmyndamarkaðurinn
Skólavörðustig 19. Rvk. Simi 15480.
Videoklúbburinn
Stórho/ti 1. Sími 35450.
.VIDEO.
SELJUM NÝJA
OG NOTAÐA
BÍLA í DAG,
LAUGARDAG, 1-5
Komið, skoðið og reynsluakið nýjum BMW 518.
KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633
KÆRLEIKUR
og
SUBSTRAL
er allt sem
blómin þín þurfa.
SUBSTRAL og BLOMIN
GEFA BLÓMUNUM ÞÍNUM
.LENGRA OG BETRA LÍF.
UMBOÐS- a HEILDVER2LUN
ÁRMÚLA 24- P.O. BOX 1391
SÍMI19943
105 REYKJAVÍK