Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Síða 5
DV. FÖSTUDAGUR1. JULI1983. 5 Athugasemd frá forsætisráðherra Eftirfarandi athugasemd hefur borist frá Steingrimi Hermannssyni forsætisráðherra: ,,Ég óska leiðréttingar á villandi um- mælum í forsíðufrétt DV 29. þ.m. Þar segir: „I Morgunblaðinu i morgun og Timanum í gær er haft eftir forsætis- ráðherra að hann hafi ekkert vitað um máliö (bókmenntaverðlaun forseta Is- lands) fyrr en fjðlmlðlar skýrðu frá því.” (Leturbreytingmín). Þetta er rangt. Tíminn hefur ekkert eftir mér haft um þetta atriði málsins og í Morgunblaðinu segir: „Morgunblaðið spurði Steingrím Hermannsson, forsætisráðherra, hvort hann hefði ekkert frétt af þessu máli, fyrr en fjölmiðiar skýrðu frá þvi, eins og nokkrir samráðherrar munu hafa kvartað yfir á rikisstjórnarfundinum i gærmorgun, samkvæmt heimildum Mbl. Hann sagði þá: „Ja, fjármálaráö- herra hringdi í mig og skýrði mér frá þessu, en sem sagt þarna uröu nokkur mistök, því er ekki að neita’ Samtal okkar fjármálaráöherra fór fram 21. júni, en fréttir af málinu i fjöl- miðlum birtust tveim dögum síðar. Af þessu er ljóst að ummæii DV um þetta atriði eru úr lausu lofti gripin.” Athugasemd DV: Ljóst er að Stein- grímur Hermannsson vissi ekki um verðlaunin fyrr en Albert Guömunds- son ræddi málið við hann 21. júní en til- kynnt var um stofnun verðlaunanna á Hrafnseyri 23. júní. Ummæli Stein- grims í Tímanum 28. júní og Morgun- blaðinu 29. júní styðja þetta. Það er hins vegar ekki rétt í frétt DV að Steingrímur hafi látið hafa það eftir sér í Tímanum að hann vissi ekkert um verðlaunin. Ákvörðun um verðlaunin virðist hafa verði tekin að einhverju leyti af forseta og fjármálaráðherra, sbr. ummæli Steingríms i DV 29. júní: ,Albert hringdi í mig eftir að forseti hafði haft samband við hann og það er rétt að ég samþykkti þetta þá.” „Fólk núþegarsýnt versluninni áhuga" — segir Gylfi Ármannsson, verslunarstjóri nýju Hagkaups- verslunarinnar á Suðurnesjum Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttaritara DV i Keflavik: „Eg er bjartsýnn á að þetta gangi vel. Nú þegar hefur fólk sýnt verslun- inni mikinn áhuga,” sagði Gylfi Ár- mannsson, verslunarstjóri nýju Hag- kaups-verslunarinnar á Suðurnesjum, sem er við Flugvallarveginn, en hún verður opnuöídag. Húsið er 1154 fermetrar og var byr jað á því í september síöastliðnum. Starfsfólk verður um fjörutiu. „Við munum veita eins góöa þjónustu og mögulegt er. Verðum með svokölluð „pokadýr” við hvem kassa sem munu aöstoðafólk. Bílastæði eru fyrir um 150 bíla við verslunina og er ætlunin að hjálpa við- skiptavinunum við að aka vörunum að bílunum.” Áuk Hagkaups verður Skeljungur með eldsneytissölu og bílavörur ásamt gasáfyllingu, bílaryksugu og þvotta- plani á svæðinu. Þá munu Tomma- borgarar verða í sama húsnæði og Skeljungur. -JGH. Gylfi Armannsson í nýju Hagkaupsversluninni á Suðumesjum. „Eg er bjartsýnn á að þetta gangi vel.” DV-mynd: Heiðar. Landsbanki íslands hefur opnað nýtt útibú á Patreksfirði, Aðalstræti 75, sími: 94-1314. Útibúið veitir alla almenna bankaþjónustu, innlenda og erlenda. Afgreiðslutími: Mánudaga til föstudaga kl. 9.15 til 12.30 og kl. 13.30 til 16.00. LANDSBANKtNN Banki allra landsmanna SUMARSKÓR FRÁ Ítalíu - Austurríki - Brasilíu - Englandi - Þýskalandi póstsendum LAUGAVEGI 1- SÍMI 1-65-84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.