Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Side 8
8
DV. FÖSTUDAGUR1. JULI1983.
KENNARAR ATH.
Kennarastööur lausar við grunnskólann Bíldudal. Æskilegar
kennslugreinar tungumálakennsla, tónmenntakennsla, gæti
fylgt með því starfi staöa kirkjuorganista o.fl.
Nánari upplýsingar gefur Jón Ingimarsson skólastjóri í síma
94-2194.
HAFNARFJÖRÐUR - HAFNARFJÖRÐUR
Bladbera vantar á Holtið í Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma
50641
SUMARSKÓR
í TÍSKUUTUM
Teg.: 2410.
Litir: hvítur, svartur og grár,
ieður.
Stærðir: 4-7 1/2.
VerO kr.: 1.26S.
Teg.: 530.
Litur: hvitur, leOur.
StærOir: 3 1/2—8.
VerO kr.: 1.260.
Teg.: 323-52503.
Litir: hvHur og milliblár.
StærOir: 36-41.
VerO kr.: 952.
Teg.: 25012.
Litir: hvHur og rauOur.
StærOir: 37-40.
Verð kr. 998.
Teg.: 33114.
Litir: hvHur, reuður, dökkbiár
og blágrænn, leður.
Stærðir: 36—41.
Verð kr.: 997.
Teg.: 48060.
Litir: hvHur, reuOur og dökk-
biár, leður.
Stærðir: 36—41.
VerO kr.: 999.
Teg.: 114.
Litir: hvHur, reuOur, milliblár,
turkis og gulur, leður
nubukk.
StærOir: 36—41.
Verð kr.: 765.
Teg.: 43201756.
Utir: hvHur, rauOur og milli-
biár, strigi. Stærðir: 36—41.
VerO kr.: 313.
fp"stffðf“ Skósel
Laugavegi 60 Sími 21270
Neytendur Neytendur Neytendur
Wasadiskó geta
skert heymina
Víða erlendis er vasadiskóið svokall-
aða orðið mjög algengt og hérlendis
hafa tæki þessi einnig notið vinsælda. I
Bandaríkjunum jókst t.d. sala á tækj-j
unum um 300% árið 1982. Vasadiskóið
hefur marga kosti, hægt er að hlusta á
tónlist án þess aö trufla aðra í kringum
sig, tækið er einfalt og þægilegt í með-
förum og svona mætti lengi telja.
En vasadiskóið hefur einnig stóran
ókost. Þar sem tónlistin glymur sífellt
fast við eyra notandans hafa læknar
haft áhygg jur af því að notkun tækisins
geti skert heym. Sérstaklega hafa heil-
brigðisyfirvöld erlendis bent á að hægt
sé að hækka tónlistina þar til hávaðinn
er kominn yfir hættumörk. Framleið-
endur tækjanna hafa hins vegar ekki
fengist til að minnka tónstyrkinn, en
bent á að notendum sé í sjálfsvald sett
hvernig þeir stilla tækin.
1 nýlegri þýskri könnun á vasadiskó-
um kom í ljós að flest tækin var hægt
að hækka það mikið að hávaðinn fór
vel yfir hættumörk. Af 27 tegundum
sem athugaöar voru reyndist tón-
styrkur 25 geta fariö upp í 100—115
desibil. Það er jafnmikill hávaði og í
loftbor eöa í þotuhreyfli við flugtak ef
staðiö er í 100 metra fjarlægð frá
þotunni.
Enski læknirinn, Dr. William Lund,
sem starfar við Radcliffe sjúkrahúsiö í
Oxford, hefur sterklega mælt með því
að tónstyrkur tækjanna verði tak-
markaöur til að fýrirbyggja skemmdir
á heym. Þá telur hann að vara eigi not-
endur við og benda þeim á að stilla
tónstyrknum í hóf.
Hér kann þó að vera við ramman
reip að draga þar eð flestir notendanna
eru ungir að árum og gera sér e.t.v.
ekki ljósa hættuna sem þeir eru aö
bjóða heim. Ekki er heldur hægt að
segja nákvæmlega til um hversu mikla
notkun þarf til að skemma heyrnina
varanlega. öruggt merki um að heyrn-
in sé að minnka mun vera ef heym not-
andans dofnar verulega í 12—14
klukkustundir en batnar síðan aftur.
Þá er rétt að f ara í læknisskoðun.
Þýtt/SA.
íeldhúsinu:
Amensk-
ar kjöt-
bollur
Fleira er hægt að gera við kjöt-
hakk en að búa til úr því kjötbollur
sem steiktar era á pönnu. Hér er til
dæmis uppskríft að amerískum
kjötbollum.
400 g blandað kjöthakk
llaukur
1 eggjarauða
salt, pipar, mild paprika
hvelti
4 rúnnstykki
2msk. sinnep
plparrót
4tómatar
21aukar
Brytjið laukinn og hrærið honum
saman við kjöthakkíð og eggja-
rauðuna. Bragöbætið með salti,
pipar og papriku. Búið til 4 stórar
bollur. Veltið þeim upp úr hveiti.
Penslið grindina og glóðið á hvorri
hlið í um þaö bil 5 mínútur.
Hitið rúnnstykkin á meðan.
Skerið í helminga. Smyrjið meö
sinnepi og piparrót. Leggið kjöt-
bollurnar á milli. Afhýðið laukinn
og sneiðið hann og tómatana. Berið
frammeðkjötinu.
Þessi uppskrift er úr bókmni
Glóöaðgóðmeti.
-DS.