Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Page 13
DV. FÖSTUÐAGUR1. JULI1983. 13 Að skilja fyrr en skellur í tönnum Ymis vlöbrögö síöustu vikur við aögeröum hinnar nýju ríkisstjómar í efnahagsmálum benda til þess aö fólk hafi ekki almennt gert sér fulla grein fyrir þvi, hve ástandiö var oröið alvarlegt i atvinnulífinu og hve brýn þörf var á því aö grípa til rót- tækra aðgeröa. Viöbrögð launþega- samtaka hafa birst í harðorðari yfir- lýsingum en menn hafa vanist í langan tima og nú á að blása til fundarhalda um allt land í haust, en slíkar fundarherferöir hafa ekki verið tíðkaðar um langt skeiö. Pólitískur grundvöllur Auðvitaö verður reynslan aö skera úr um framhaldiö, en þetta vekur óneitanlega upp spurningu um þaö, hvenær pólitískur grundvöllur sé fyrir því aö gera sársaukafullar aðgeröir i efnahagsmálum til að forða fré enn meiri vanda. Að- stæðuraar i þjóöfélaginu að undan- förau hafa veriö þannig, að hinír miklu efnahagserfiöleikar okkar Islendinga hafa ekki i raun snert daglegt lif fólks nema i litlum mæli. Aö vísu var fariö að kreppa verulega aö hjá þeim, sem ráku fyrirtæki, t.d. i sjávarútvegi og iönaði, en allur al- menningur hafði ekki enn fundiö hvar skórinn kreppti í neinum mæli. Ástæðan var auövitað sú að fullri neyslu og lífskjörum var haldiö uppi meö erlendum lántökum og í þvi efni vorum við Islendingar komnir á ystu nöf. Um þetta var talað, stjórnmála- menn og forystumenn í atvinnulífi hafa reynt að skýra vandann meö oröum, en margt bendir til aö þaö haf i ekki verið nægilegt. Bjargbrúnin Þvi vaknar sú spurning, hvort í raun þurfi aö vera svo komið, að at- vinnuleysiö hafi skolliö yfir og kreppan hafi þurft aö ná inn á hvert heimili til aö almennur skilningur myndist fyrir því að haröra aðgerða sé þörf. Er sjálfsblekkingin oröin okkur svo töm, og er orðaflóðið í þjóðfélaginu orðiö svo mikið, aö viö skiljum ekki fyrr en skellur í tönnum. Aö óreyndu vil ég ekki trúa því. Þjóð sem státar af einhverju full- komnasta skólakerfi i heimi og þar Kjallarinn Birgir ísl. Gunnarsson sem menntunarstig er hærra en víðast gerist, hlýtur að skilja aö hætta er á ferðum, þó að hún hafi ekki þegar falliö fram af bjargbrún- innL Tilraunin getur misheppnast Auðvitað má deila um aðgeröir þessarar ríkisstjórnar eins og öll mannanna verk. Meginatriöi máls- ins er þó það, aö slíkar aðgeröir voru nauösynlegar til aö foröa frá enn verra ástandi. Hér blasti við algjört hrun og atvinnuleysi. Erlendar skuldir voru komnar á þaö stig aö fjárhagslegu sjálfstæði þjóöarinnar var stefnt í hættu. Ríkisstjómin er meö aðgerðum sinum aö gera tilraun til aö snúa þessu dæmi við. Aö treysta að nýju grundvöll atvinnu- lifsins, fá hjólin til aö snúast hraðar og fá fólk til aö heröa ólina um stund í von um betri tíma framundan. Viö skulum hins vegar f ullkomlega átta okkur á þvi aö hér er um tilraun aö ræöa. Þessi tilraun getur misheppnast. Þaö sem úrslitum ræður er fyrst og fremst hvemig al- menningur bregst við. Ef reynt verður að eyðileggja þessar aögeröir m.a. með pólitísku ábyrgöarleysi, þá blasir viö aö þjóðin muni sökkva enn dýpra í fenið, það sama fen, sem þeir komu okkur í, sem nú gagnrýna haröast. Þaö er því verulegt umhugsunar- efni fyrir alla Islendinga, hvort þeir vilji ekki gefa ríkisstjórainni friö og tækifæri til að drífa okkur upp úr óldu- dalnum. Rikisstjórnin verður hins vegar aö skýra á glöggan og skil- merkilegan hátt fyrir fólki eðli og nauðsyn aögeröa sinna og einnig hvað við hefði tekið, ef ekki hefði verið gert það, sem gert var. I þvi efni hefur rikisstjórninni mistekist, en úr því má bæta. Birgir tsl. Gunnarsson alþingismaður. „Það sem úrslitum ræður er fyrst og fremst hvemig almenningur bregst við.” Valdmörk forseta íslands I fyrirsögn Tímans sl. þríöjudag er sagt frá því, aö iagaheimiid skorti til þess aö veita væntanlegum verö- launahöfum úr ríthöfundasjóði, kenndum viö Jón forseta Sigurösson, skattfrelsi. I DV sama dag er sagt frá því, að Alþingi hafi ekki samþykkt fjárveit- ingu til sama sjóðs og aö ríkisstjórn hafi ekki fjallað um máliö. Hins vegar mun einn ráðherra hafa lýst veivilja sinum. IDV er ennfremur frá því skýrt, aö rangt hafi verið skýrt frá flutningi á málverki, sem forsetinn afhenti til geymslu á Hrafnseyri. Þar var ekki verið aö gefa málverkið, en það var upphaflega gjöf til Sveins Bjömsson- ar forseta þegar hann heimsótti Baröastrandarsýslu. Forsetinn var einungis að tilkynna þá ákvöröun rikisstjóraarinnar, aö þessi tiltekna g jöf skyldi geymd á Hrafnseyri. Þessar frásagnir af ferö forseta Islands um Vestfirði eru mér tilefni til þess að f jalla örlítið um valdsvið forsetans í hvers dags málum. Aldrei á eigin ábyrgð 111. gr. stjómarskrárinnar segir, aö forseti lýöveldisins sé ábyrgöar- laus á stjómarathöfnum. 113. gr. segir, að forsetinn láti ráð- herra framkvæma vald sitt. I þessu felst það, að allt sem forset- inn gerir er á ábyrgð annarra. Fjárveitingar í hans nafni úr rikis- sjóöi eru á ábyrgö fjármálaráð- herra. Skoöanir hans á utanrikis- málum eru á ábyrgð utanríkisráð- herra. Áhugi hans á velferð gamai- menna er á ábyrgö heilbrigðismála- ráðherra og athafnir í mennta- málum á ábyrgð menntamálaráð- herra. Það hefur verið talið, að forseti gæti verið í stjóraum félaga, en þar starfar hann aðeins sem prívat- maöur, aldrei í krafti síns veraldlega valds. En vitanlega má forsetinn koma aö hugmyndum sinum um landsmál. Forsetar hafa gert slíkt og er hiö frægasta dæmi, þegar Sveinn Bjömsson, þáv. ríkisstjóri, kom fram meö hugmyndir sínar um þjóð- fund í byrjun árs 1943. Þeim af- skiptum ríkisstjóra var tekið afar illa af Alþingi og hefur líklega orðið til þess, að forsetar hafa ekki síðan lagt fram opinberlega tiilögur um þjóðfélagsmál. Hins vegar er vitað til þess, að for- setar hafa lagt fram í ríkisráði hug- myndir, sem ríkisstjórn hefur síðan framkvæmt á embættisábyrgö við- komandi ráöherra, og má þar t.d. nefna hugmynd um sérstaka mynt- sláttu vegna 150 ára afmælis Jóns Sigurðssonar, ef mig brestur ekki minni. Rétt er þó að geta þess, að forset- inn getur persónulega veitt mönnum fálkaorðuna, þ.e. án atbeina ráð- herra, en það er of sjaldgæft. Yfir- leitt er alfarið farið eftir tillögum orðunefndar. Náðanir á ábyrgð ráðherra Kunn er frásögn af þvL þegar Charles de Gaulle var boðin forseta- tign á tímum f jórða franska lýðveld- isins. Hann afþakkaöi með þeim orðum, að hann hefði ekki hug á aö sækjast eftir þvi að mega náöa menn og ekkert annaö. Forseti Islands náðar ekki einu sinni menn án at- beina og á ábyrgð dómsmálaráð- herrans. Hitt er annað mál, aö þar hefur for- setinn veruleg áhrif og getur beitt sér persónulega. Hins vegar ræður Háraldur Blöndal ráðherrann, og þegar 28.000 manns höföu skrifað undir náðunarbeiðni til forsetans vegna þeirra, sem geröu aðsúg að Alþingi 1949, þá var því lýst yfir af dómsmálaráðherranum, að þessar undirskriftir réðu engu um náðaniraar. Hér væri um pólitiskt mál að ræða og utan valds forsetans. Og rithöfundasjóður einnig I 20. gr. stjórnarskrárinnar segir, að forsetinn veiti þau embætti, sem lög mæla. I mörgum lögum er talað um, að forseti veiti embætti, eða áður konungur. Konungur veitti lyf- söluleyfi. Lyfsalinn á Siglufirði var skipaður í embætti af konungi. Hann var sviptur embætti af ráðherra. Lyfsalinn fór í skaðabótamál og vann það mál með þeirri röksemd, að þar sem þjóðhöfðinginn hefði skipað hann í embætti þyrfti at- beina hans til að leysa hann frá störf- um. I þessu felst, aö ráðherra ræöur stefnunni, en hugsanlegt er, að þjóö- höfðinginn geti neitað að skrífa undir tillögu ráðherra. Um það er þó deilt. Eftir því sem næst verður komist, mun hugmyndin sú um rithöfunda- sjóð, kenndan við Jón Sigurðsson, að sjóðsstjórn sé tilnefnd af ýmsum aðilum. Er frá því skýrt að einn þeirra aðila sé Rithöfundasamband Islands (sem er þó vafasamt, þar sem þau samtök fara aðeins með um- boð fyrir hluta af rithöfundum lands- ins), einn séu samtök gagnrýnenda (leikarar afsögðu verðlaunaveiting- ar frá þeim fyrir nokkrum árum) og forsetinn. Hugmyndina með forset- ann hlýtur að verða að skilja með hliðsjón af 20. gr. stjórnarskrárinnar sbr. 13. gr. Það er forsetinn sem skip- ar í stjórnina, en ákvörðunin um, hver verði hans fuiltrúi, er á ábyrgð menntamálaráðherra og þess vegna er það ráðherrann sem ræður. Sú ákvörðun yrði hins vegar tilkynnt í ríkisráði sbr. 16. gr., og gæti forseti hugsanlega neitað tillögu ráöherra, en þó er það vafasamt, ef litið er til islenskrar stjórnskipunarhefðar. Vantar umfjöllun Alþingis Kjami máisins er hins vegar sá, að það er Alþingi, sem hefur úrslitavöld um málefni ríkisins. Þaö er Alþingi, sem ákveður, hvort eignir forseta- embættisins, aðrar en þær, sem eru til daglegra nota, eru seldar eöa gefnar. Það er Alþingi, sem ákveður, hvort og að hve miklu leyti rikið styrkir listamenn eða aðra vinnandi menn í landinu og hefur þá hliðsjón af 78. gr. stjórnarskrárínnar um að sérréttindi bundin við aðal, nafn- bætur eða lögtign megi aldrei í lög leiða. Þetta eiga islenskir blaðamenn að vita og haga fréttaflutningi sínum í samræmivið það. Haraldur Blöndal. • Allt sem forsetinn gerir er á ábyrgð ann- arra... Skoðanir hans á utanríkismálum eru á ábyrgð utanríkisráðherra. Áhugi hans á velferð gamalmenna er á ábyrgð heilbrigðis- ráðherra og athafnir í menntamálum á ábyrgð menntamálaráðherra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.