Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Side 14
14
DV. FÖSTUDAGUR1. JOU 1983.
Spurningin
Ertu búin(n) aö fara
(Tívolf?
Þorbergur Pétur Slgurjónsson, 8 ára: |
Já, og mér fannst gaman. Eg var ekk-
ert hræddur og ég fer aftur á morgun.!
Kolkrabbinn er skemmtUegastur.
Ása Blrglsdóttir nemi: Nei. Eg er að
fara út úr bænum og hef ekki haft
áhugaáaðfara.
Flosl Olafsson leikarl: Nei. Og ætla |
ekki. Heilbrigð skemmtun? Það er svo
heilbrígð skemmtun að það er varla
við því að búast að þetta sé skemmti-!
legt.
Gunnlaugur Pálsson, í bæjarleyfi úr
svelt: Nei, ég hugsa að ég fari ekki. Eg
held að þetta sé ágætt.
Snorri Þór Slgurðsson nemi: Nei, ég i
hef ekki komist sökum tímaskorts. j
Mér finnst þetta mjög jákvætt og góð j
tilbreyting.
Sigrún Hansen starfsstúlka: Nei, ég er |
ekki búin að fara. Ég fer kannski. Mér ; i
finnst þetta allt í lagi, en það mætti'
vera stærra.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
„Suðræn eru blóm en þó sprottin
í íslenskri mold,” segir Bryn-
leifur í bréfi sínu þar sem hann
vekur athygli á sýnlngu Blóma-
miðstövarinnar í menningar-
miðstöðinni við Gerðuberg.
reist ylræktarhús á íslandi árið 1924:
Síðan hefur þróunin orðið örari en
flesta grunar.
I bændastéttinni islensku eru nú ekki
aðeins þeir sem erja engjar og tún
heldur og þeir sem garðyrkjubændur
heita eða hreinlega blómabændur.
Þessi nýja bændastétt býr bæði í
kauptúni og sveit en hún þarf
nokkurt landrými og umfram allt
heitar uppsprettur j arðar.
Blómabændur einir hafa nú 600 hekt-
ara lands eða 60 þús. fermetra undir
gleri.
Þegar umsvif blómaræktar voru
orðin svo mikil sem raun ber vitni
mynduðu blómabændur með sér sam-
tök. Vísir að Blómamiðstöðinni varö til
1961 en 1971 er Blómamiöstöðin stofnuð
sem hlutafélag. Félag þetta er fyrst og
fremst sölufélag sem sér um dreifingu
á blómum um land allt.
Fjölbreytni þeirrar sýningar sem nú
stendur yfir í menningarmiðstöðinni er
furðuleg og ræki margan ókunnugan i
rogastans sem sæi.
Suðræn eru blómin en þó sprottin í is-
lenskrí mold. Þeir sem á síðustu öld
holuðu fyrstir niður jarðávöxtum á Is-
landi vissu að landiö bjó yfir frjómagni
sem leysa þyrfti úr læðingi en að þá
hafi grunað að aldingarðar ættu eftir
að spretta vítt og breitt um landið er
næsta ótrúlegt.
Blómabændunum íslensku er óhætt
að vera stoltir. Þeir eru gildir bændur
sem sýnt hafa áræði og þor en allra
best þó kunnáttu og hæfni hins hyggna
manns.
„Á Islandi vaxa
rauðar rósir”
Brynleifur H. Steingrimsson læknlr,
Selfossi, skrifar:
Blómamiðstööin opnaði í
menningarmiðstöðinni við Gerðu-
berg í Reykjavík sýningu á 400
blómategundum sem ræktaðar eru í
gróðurhúsum á svæði félagsins. Það
er ótrúlegt en satt er það samt, aö
nær hálft þúsund tegunda skraut-
blóma skuli nú vera ræktað á Islandi
og selt landslýðnum í búð og á torgi.
Saga ylræktarinnar íslensku er ekki
löng. Það er raunar heldur ekki langt
síðan jarðepli voru fyrst ræktuð í landi
okkar.
Hinn mikli landbúnaðarfrömuður
Bjami Asgeirsson að Reykjum í Mos-
felissveit mun fyrstur manna hafa
Tvær úr boltanum eru óánægðar með skríf um iþróttir kvenna iikt
og 9627—4297en eru þó ekki alveg sammála.
Lítið skrifað
um konur í DV
— en hvað um hin blöðin?
Tvær úr boltanum skrifa: spymu og biöjum við þig að vera
Tvær illar stúlkur lásu það í DV í ekki að ana út i svona skriffinnsku að
i gær aö lítið væri skrifað um kvenna- óathuguðu máli.
íþróttir í blöðunum. Hvað er þetta Skrifaö hefur veríð um hvem ein-
eiginlega.eraðeinseitt blaðtil? asta leik í Islandsmótinu í 1. deild
Viljum við svara 9627—4297 hér. kvenna og einnig um alla leiki I bik-
með. Það er rétt hjá þér að það er arkeppninni, þaö sem af er sumri, og
bara skrifað um konur ef þær eru af- eitthvað hefur veríð minnst á 2. deild
reksmenn í sinum greinum. En hitt kvenna, í hinum blööunum, Þjóð-
erum við svo engan veginn sammála viljanum, Morgunblaðinu og Tíman-
þér um. Mikið er skrifað í hin blöðin um sem þú hefur sýnilega ekki
um Islandsmótiö í kvennaknatt- gluggaðí.
Brófritari er ekkiánægður með þáttAuðar Haralds og Valdísar Óskarsdótt-
ur, B6 einn.
BÉ EINN ER BULL
7241-8473 skrifar:
Bé einn heitir þáttur sem fluttur er í
útvarpi á fimmtudagskvöldum kl. 20.
Með fullri virðingu fyrir stjómendum
þess þáttar spyr ég: á þetta að vera
grinþáttur eða eru stjórnendur þáttar-
ins að reyna að fá andlega útrás í
bulli?
Ég hef hlustaö á þrjá af þessum
þáttum (ég held þeir hafi ekki verið
fleiri) og mér finnst að ég hafi aldrei
heyrt annað eins bull, og það næstum í
heilar 30 mínútur. Hvemig vaai aö fá
aftur Fimmtudagsstúdió eða eitthvaö
álíka fyrir unglinga og fullorðið fólk
því yngstu hlustendumir em velflestir
famir að sofa um þetta leyti.
OGLEYMANLEG
VARÐARFERÐ
Sigríður Ragnars, Hátúnl 10 A,
hringdi:
Þakkir til Landsmálafélagsins
Varðar fyrir að gefa ungum sem
öldnum tækifæri á mjög ánægjulegu
ferðalagi á viöráðanlegu verði með
ms. Eddu. Sérstakar þakkir vil ég
færa þeim Kristni Hallssyni og
Gunnarí Haukssyni sem gerðu allt
sem i þeirra valdi stóö til að gera
þessa ferð ógleymanlega.
Sömuleiðis þakkir til alira sam-
ferðafélaga með þökk fyrir góða við-
kynningu og samverustundir. Oska
ég svo að lokum Landsmálafélaginu
Veröi gæfu og gengis í nútíö og fram-
tíð.