Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1983, Síða 32
TÚNÞÖKUR
FYRIRALLA
Aratuga reynsla
tryggirgæðin
LANDVINNSLAN S/F.
Pöntunarsímar:
78155-17216(99)5127..
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ1983.
Það eru fleiri en geimskutlan sem hreiðra um sig á bakl málmfugla.
Sveinn Þormóðsson ljósmyndari rakst á þennan vigalega karlstarra
á leið heim með björg í bú. Töltir eftir flugvéiarvtengnum...
..Beygir sig létt....
....Hæ, elskan, ég er kominn heim, er DV komið?
Stórverslun á
höfuðborgarsvæðinu:
KONA HAND-
TEKINVIÐ
AFGREIÐSLU
— grunuð um að hafa
dregiðsérféúr
afgreiðslukassa
Kona, rúmlega fimmtug, var
handtekin á föstudag fyrir viku við
afgreiðslu í stórverslun á höfuð-
borgarsvæðinu, grunuð um að hafa
dregiö sér fé úr afgreiöslukassa.
Yfirmenn verslunarinnar voru
skömmu áður farnir að gruna
konuna um fjárdrátt og kölluðu á
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Þegar lögreglan kom var konan
með 7000 krónur á sér og hefur hún
viðurkennt að hafa dregið sér það
fé. Mun hún aöeins hafa stimplaö
inn hluta heildarvöruverös. Til
skýringar á aðferðinni má nefna <
eftirfarandi, tilbúið dæmi: Vara
kostar 1200 krónur. Konan stimplar
inn 200 krónur. Viðskiptavinurinn
borgar rétta upphæð en konan
tekur 1000 krónumar. Það er þvi
verslunin sem tapar en ekki við-
skiptavinurinn.
Konan var dæmd í gæsluvarðhald
um síðustu helgi en dvelur á
sjúkrahúsi. Hún haföi unnið í eitt
og hálft ár hjá versluninni.
JBH/JGH.
LOKI
Það er ekki oft sem
menn eru faðmaðír fyrir
* að fara upp á háe c-ið. \
íbúðalán lífeyrissjóða:
Skuldbreyting
í næstu viku
Lífeyrissjóöimir eru nú með í at-
hugun hvernig standa skuli að skuld-'
breytingu ibúöarlána, sem kveðið var1
á um í bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar.
Að sögn Hrafns Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra Sambands almennra
lífeyríssjóða, standa nú yfir viðræður
milli sambandsins annars vegar og
hins vegar Seðlabankans og Reikni-
stofnunar bankanna um hvemig staðið
skuli að málinu. Sagði Hrafn að verið
væri að leysa ýmis tæknileg vandamál
auk þess sem málið hefði dregist'
vegna þess að skuldbreytingin þyrfti
að samþykkjast af stjóm hvers líf-
eyrissjóðs fýrir sig. Hann taldi að
máliö myndi skýrast um miöja næstu
viku.
Samkvæmt bráðabirgðalögunum
var ríkisstjóminni heimilað að semja
við lánastofnanir um aö fresta allt að
25% af þeirri upphæð lána til húsa-
kaupa eða húsbygginga sem koma
eiga til greiðslu á þessu ári. Hrafn taldi
að lítil eftirspum yrði eftir slíkum
skuldbreytingiun hjé lífeyrissjóðunum
þar sem lánin eru til langs tima og
lágar greiðslur á hverju ári. Þó væri
ætlunin að veita lántakendum slíka
skuldbreytingu með því að gefa út ný
skuldabréf.
ÖEF.
Alafoss-
HUGLEIÐIR FRÁMLEIÐSLU
UR KANÍNUHÁRUM
„Við höfum hugað að framleiðslu
úr angóraull en málið er á tilrauna-
stigi,” sagði Gunnlaugur Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri hjá Álafossi,
i samtali við DV. Angóraull er unnin
úr kanínuhárum en kanínuræktun
er ný búgrein hérlendis.
„Þetta eru óhemju dýrar afurðir
og við þyrftum að gera ýmsar breyt-
ingar, t.d. í vélakosti ef af fram-
leíðslu yrði. Það er erfitt að segja
hvað þetta geti gert en þetta er
áhugavert ef við komumst yflr nægi-
lega mikið magn. Angóraullin er
mjög gott hráefni 1 ýmsan innri fatn-
að og er sérstaklega hlý. En ég
árétta að engin ákvörðun hefur verið
tekin um framleiðslu úr angóraull.
Mállð er á könnunar- og tilrauna-
stigi.”
-ás.
FANFANIFAÐMAÐI
KRISTJÁN AÐ SÉR
—á f rumsýningu Madame Butterfly í Spoleto
Kristján Jóhannsson tenórsöngvari
hefur undanfarna daga fengiö afar
lofsamlega dóma i nokkrum stærstu
dagblöðum Italíu og hafa gagnrýn-
endur nefiit hann í sömu andrá og
jöfrana Pavarotti, Domingo og
Carreras. Kristján fer með hlutverk
Pinkertons í óperunni Madame Butter-
Ðy á óperuhátíöinni í Spoleto. A frum-
sýningunni í Teatro Nuovo í síðustu
viku þusti Amintore Fanfani forsætis-
ráðherra upp á sviðið eftir fyrsta þátt
og f aðmaði Krist ján að sér.
Samkvæmt upplýsingum Leifs
Þórarinssonar í Spoleto, fær uppsetn-
ingin í heild fremur slæma dóma. Leik-
stjórinn, Ken Russell, þykir ekki fara
troðnar slóðir í túlkun þessarar klass-
ísku óperu. Sérstaklega hefur
uppsetningin farið i taugarnar á
gömlum og íhaldssömum óperuunn-
endum.
Flestir söngvaranna fá samt mjög
góða dóma, þó þeim sé, að mati
gagnrýnenda, gert erfitt fyrir með
hinni nýstárlegu sviðssetningu.
Kristján þarf t.d. aö halda á einni söng-
konunni er hann f er upp á háa C-ið!
Leifur Þórarinsson kvaðst hafa séð
Madame Butterfly 10—20 sinnum viða
um heim, en þessi sýning væri sú allra
magnaðasta. Sagði hann Kristján
hreint stórkostlegan en bætti því við að
hann væri náttúrulega alls ekki hlut-
lausiþessumáli.
-pa.
Mynd úr ítölsku uppfærslunni á
Madame Butterfly hefur ekki borist en
hér sést Kristján ásamt Elizabeth
Vaughan i sýnlngu Englisb National
Opera North fyrr á þessu ári.
Hesturinn Kristall fékk hæstu
einkunn, 8,77, í B-flokkl
Hér sltur eigandinn Gylfi Gunnars-
son, Kristal. DV mynd Eiríkur
Jónsson.
urLéttis-
dagur
— á Melgerðismelum
Félagar í hestamannafélaginu
Létti mega vera ánægðir eftir gær-
daginn. Þá komust hestar þriggja
félaga úr Létti i 3 efstu sætin í úr-
slitum í B-flokki gæöinga á hesta-
mannamótinu á Melgerðismelum.
Þetta voru þeir Kristall, Aron og
Léttir. Auk þelrra komust fimm
aðrir hestar í úrslit i þessum flokki.
Endanleg röð verður síðan ákveðin
ásunnudag.
. Hestamönnum þykir mikil hag-
ræðing af tölvum sem notaðar eru á
þessu móti. tJrslit koma þá strax í
ljós og hægt er að færa skrá jafiióð-
um.
Keppni unglinga lauk í gær. Sig-
urvegari varð Einar Hjörleifsson á
hestinum Tvisti.
-DS/EJ, Melgerðismelum.