Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1983, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1983, Blaðsíða 33
DV. ÞRIÐ JUDAGUR19. JOLl 1963. Rooald þnrrkar hneyksla&ur burt' svitann. Faðir minn forset inn Þaö eru margar raunimar sem dembast yfir forseta voldugasta ríkis heims. Nægir þar að nefna stríð hér og þar, óróa, uppþot, bylt- ingar og diplómatisk glímubrögð við risann í austri. Allt þetta er nóg til þess að trylla bestu menn og er vart ó bætandi. En það bættist ein- mitt við hjó Ronald Reagan fyrir skömmu og var þaö rýtingsstunga i bakið þvi þar var engin önnur að verki en dóttir hans, hún Patti, sem kallar sig Davis. Ronald er annálaöur siðprýðismaður og er mikill fylgismaður „Siðprúöa meirihlutans”, sem er félagsskap- ur fólks í Ameríku sem ekkert bert mó sjó án þess að brjólast. Patti varð nefnilega ber að því aö láta birta af sér klúra og í hæsta máta ósiðlega mynd í því ill- ræmda glennublaöi „High Society”. Á þeirri mynd sést hún í stuttermabol, sem í sjólfu sér er ekkert sérstakt, nema fyrir það að umræddur bolur er gegnblautur. Oþarfi er að tíunda hvað sést, enda er Sviösljósið vant að virðingu sinni. Fleira hefur hvekkt gamla mannlnn þessa dagana, en látið verður staðar numið með rauna- sögur af Ronald að sinni. 33 Stuðmenn l fullum skrúða, fri vlnstrl Ásgeir Óskarsson, Tómas' Tómasson, Valgeir Guðjónsson, Egill Ólafsson, Jakob F. Magnússon og að lokum Þórður Ámason. Stuðmenn fara með Gráa fiðringinn um allt land Nýlega bárust Sviösljósinu í hend- ur nýjustu Stuðmannatiöindi. Þar er ekkert verið að einskor&a sig við eitt eða tvö atriöi, heldur er dagskráin reifuð fram í byrjun næsta árs. Fyrst er að nefna að Grái fiðringurinn er væntanlegur frá þeim þann 20. þessa mánaðar og er þar ekki átt við tiltekið sólaróstand, heldur 6 laga hljómplötu. Fyrstu hljómleikar hljómsveitarinnar fró áramótum verða í Atlavik um verslunarmanna- helgina, og auk þeirra munu Grýlumar kæta þar Austfirðinga. Leiðin fró Atlavík liggur síðan í hvem landsfjórðung, og mun visitasía þessi taka allan ógústmán- uð og er áætlunin að taka upp hljómleikaplötu í þeirri ferð sem sið- an litur dagsljósiö um áramótin. Þeir félagar munu síðan setjast við skriftir og er væntanleg jólabók þar sem kennir ýmissa grasa, svo sem nótna allra laga hljómsveitarinnar, ljóð, myndir, mataruppskriftir og margt fleira. Síðast ó dagskránni eru svo þau tíðindi að Stuðmenn munu hefja undirbúning næstu myndar sinnar eftir óramót og verður hún jólamyndin 1984. SLS Matarmenning á isiandi Eins og borgarbúar hafa sjálfsagt tekið eftir hefur matsölustöðum f jölg- að mikið undanfarin ár, reyndar svo mikið að liggur nærri að þá sé að finna á hverju homi. En það flýgur hver eins og hann er f iöraður og menn geta valið um hvort þeir fara á fokdýra staði þar sem vikukaupið flögrar burt eins og ekkert sé eða gripa sér skyndibita í gogginn séu þeir á hraðferð. Reyndar er nú sagt að það sé óhollt að borða mikinn skyndimat, sér í lagi sé hann gleyptur án þess aö tyggja en sumir eru nú bara einu sinni þannig gerðir aö þeir éta aQtaf eins og þelr búist við aö einhver sæki matinn ofan í þó. Sem til- legg til þeirrar umræðu sem nú er mik- ið tiðkuð um mataræði þeirra er land þetta byggja birtum við þessa matar- legu syrpu bví gera mó róð fyrir aö margir þekki það bragð sem sælkerinn upplifiraf bitanum. SLS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.