Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1983, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1983, Síða 4
Teiknimyndaseríur — f ramhald — myndaserían þrifist á síðum dag- blaöanna og skipað sér fastan sess meðal lesenda. En fjórði áratugur- inn var ekki einasta blómaskeið dag- blaöanna, því um 1933 kemur út blað sem eingöngu er helgaö teikni- myndasögum. Fyrstu heftin voru venjulega 32 síður og í þeim voru 4— 5 s jálfstæðar sögur. Blöðin voru aðal- lega ætluö börnum og af því aö böm hafa lítinn skilning eða áhuga á siö- fræði eða rök-samhengi var heildar- svipur blaðanna æsikenndur og hroð- virknislegur. Með tilkomu hasablaösins „Super- man” 1938 festist þetta fjölmiðla- form endanlega í sessi. Til að gefa einhverja hugmynd um útþenslu hasablaða næstu ár, þá lýs- ir eftirfarandi tafla e.t.v. þeirri þró- un sem átti sér stað á aðeins 12 ára tímabili. Ár Fjöldi titla Upplagáárí 1940 100 213.000.000 1943 150-180 1946 200 1947 250 1948 325 1949 400 600.000.000 1952 900.000.000 Þar sem erfitt reyndist að komast yfir þessar tölur, geta þær aðeins gefið vísbendingu inn þessa þróun. Um og eftir síðari heimsstyrjöld- ina urðu breytingar á teiknimynda- sögumarkaðinum. Vestrar, frum- skógasögur, hrollvekjur og ennfrem- ur stríðsmyndasögur urðu meira áberandi og samtímis ágerðist of- beldið e.t.v. vegna áhrifa frá stríð- inu. Þessi útbreiösla gekk ekki mót- mælalaust fyrir sig og olli miklum deilum á næstu árum. Siðgæðisdeilurnar (1950— 1960) Utþensla teiknimyndasagnanna vakti kvíða og ugg hjá mörgum; einkum og sér í lagi þóttu of beldis- og hryllingssenumar varhugaverðar ungum og óreyndum sálum. I lok fjórða áratugarins og í byrjun hins fimmta komu út mörg rit, sem fjöll- uðu um áhrif teiknimynda á börn. Var þar sérstaklega fjallað um þau áhrif, sem sögurnar gætu haft á sið- gæðisvitund þeirra. Blöðin voru gerð að samnefnara, fyrir alit það sem miður fór í amer- ísku samfélagi. Haldnir voru ótelj- andi nefndarfundir og ráðstefnur, opinberar blaðabrennur tíökuöust og læröir sem lei' ir þóttust eitthvað hafa tii málanna að legg ja. Teiknimyndaiðnin var fordæmd í heild sinni án tillits til efnisinnihalds einstakra flokka. Að hluta til var baráttan gegn teiknimyndasögum, fyrir hina hefð- bundnu menningu. Hins vegar þótti andstaðan einnig beinast gegn ósvífnum spákaupmönnum, fyrir heilbrigöum þroska barnanna. Reynt var að virkja foreldrakynslóð- ina í baráttu fyrir uppeldi barnanna á menningarlegu sviði, óháð teikni- myndasögum. Hinar ýmsu hreyfing- ar, sem í þessari baráttu stóöu, sam- einuðust, þegar bókin „The Sed- cution of the Innocent” eftir Dr. Fredrick Wertham, sem var starf- andi geðlæknir í New York, kom út árið 1954. Meginþema bókarinnar var, að teiknimyndaseríumar heföu glæpsamleg áhrif, þ.e. þær stuðluðu að aukningu glæpa. Þannig var hluti samfélagsvandamálanna skýrður, sem afleiðing teiknimyndasagna. I bókinni sýnir Wertham með rögg- semi fagmannsins, fram á skaðsemi þeirra og studdist \ ið uggvekjandi sjúkrasögur, sem hann hafði kynnst í gegnum störf sín. Bókin varð met- sölubók í Bandaríkjunum og hafði mikil áhrif á meðvitund fólks varð- andi þessi mál. Síðar þróuöust þess- ar skoðanir í heilsteypta áhrifskenn- ingu, en meginefni þessarar kenn- ingar er að raunveruleikatúlkun teiknimyndanna brengli tilfinninga- Uf og hugsun einstaklingsins. I bókinni „Swisch! Pow! Sock!”, ritar Sture Hegerfors: „Fáar deilur hafa einkennst af jafnlélegum rök- um, hvort sem þau hafa verið með eða á móti, eins og deilurnar um teiknimyndasögur. Andstæðingar teiknimyndanna höföu hvaö hæst og hluti þeirra gaf út rit, meö fáránleg- v< Superman, aftír þá Slffoi og Shustar, svoimar hér yfir skýja- kljúfunum í leitinni að óvinum hinnar vastrmnu manningar. innar leiddu m.a. í ljós, að ungir les- endur blaðanna fengu oft fordóma- fullar hugmyndir um útlendinga með lestri stríðsmyndasögublaða. 1 skýrslu sinni lýstu þeir áhyggjum sinum yfir skoðanamyndandi áhrif- um þessa sagna síöar i lífi barnanna. Kraay Kat aftir G. Harriman. Vagna sérstööu sariunnar traysti anginn taiknari sér til að viðhalda hanni aftir fréfaU hðfundarins. DonaU Duck aftir Waft Disnay. i Finnlandi þótti öndin svo svæsin að barnavarndarráð iagði til að útgáfa biaðanna yrði bönnuð. Tantan, oftir B. Hogarth, fjaiiar um apabróðurinn sem sleit barns- skónum i villtum gróðurfiækjum frumskógarins og saug loðin brjóst. um og staðlausum fullyrðingum, um hvernig börn hefðu myrt foreldra sína, skaöað sig eða framið sjálfs- morð eftir lestur myndablaða. Einskisnýtar alhæfingar og persónu- legar mótsagnir með vafasamt gildi voru í hávegum hafðar. Dæmi um framsetningu , þegar ókunnir tjáðu sig, varðar dagblað nokkurt, sem réðst heiftarlega gegn „The Phantom” (Skuggi í ísl. þýð.) í leið- ara sínum, en samtímis gekk myndasagan aftar í blaöinu undir öðrunafni.” Margar kannanir hafa verið gerö- ar, til þess að athuga afleiðingar og áhrif myndasögulesturs bama. Arið 1967 gerðu félagsfræðingar við Ox- ford háskólann rannsókn á 40 myndasögublöðum, sem gefin voru út í Englandi. Niðurstöður könnunar- Margar þessara kannana hafa hlotið mikla gagnrýni. I þessari gagniýni hefur einkum verið bent á að möguieikar svara, bjóöi oft ekki upp á önnur svör, en þau, sem verka neikvætt á teiknimyndasögur. Ein slík könnun, semsænska „Seriekom- itten” notaðist við, fellur eflaust und- ir þennan flokk kannana. Þessi nefnd er enn að gera kannanir í skól- um, meö spurningum eins og t.d. eft- irfarandi dæmi sýnir: Hvað er það, sem fær þig til að kaupa og lesa myndasögublað? □ Þaðerauöveltaðlesaþau. □ Teikningamar eru vel gerðar. □ Hræðileguatburðimir íþeim. □ Fyndnuatburðimiríþeim. Hverju á bamið að svara, lesi það blööin spennunnar vegna? (en það ætti ekki að vera óalgengt). Hinir coat ron ftutOftiM mattís fithé'éi i'ééáa'áf I'<td t HsMftti SlítntiaitSt COMICS MAGAZINE ASSC I* k k k k k APPftOVID BY TME COMICS CODE XÉÍ ir k AUTHOftlTrj The Comic Code. Roglugarðin sem áttiað tryggja að teiknbnynfhmeri urnar færu hvergi yfir hin elmonnu slðgmðismðrk og kmaégfið sem skyldi staðfesta það. þröngu svarmöguleikar gefa eigin- lega engan annan kost, en aö setja krossinn við þriðju fullyrðinguna um „hræðilegu atburðina”. Að könnunin fái hugsanlega á sig slagsíðu ætti öll- umaðvera ljóst. Svipaðar deilur áttu sér stað í Evrópu og í sumum löndum voru sett lög, sem áttu að tryggja aö siðgæðis- vitund borgarans væri ekki misboð- ið. Engin slik lög vora samþykkt í Bandaríkjunum þrátt fyrir mikla andstöðu í garð teiknimyndasagna og umræður í þingdeildum um þau mál þarlendis. Afleiðingar þessarar umfjöllunar létu ekki á sér standa. A nokkrum áram féll salan um þriðj- ung og kom skellurinn hvað harðast niður á litlum fyrirtækjum sem leit- uðust við að halda háum gæðaflokki, þar sem flest þeirra höfðu ekki f jár- hagslegt bolmagn til að mæta þess- um þrengingum. Framleiðendurnir sáu sér ekki fært annað en að blíðka neytenduma og sameinuöust um reglugerð þar sem gerð er grein fyrir þeim atriðum sem bæri að forðast við gerð teiknimyndasería. Enn- fremur var sett innsigli á „hasablöð- in” en á þessu innsigli stóð „Approved by the Comics Code Authority” og átti það aö tryggja les- endum skaðleysi viðkomandi rits og að það væri samkvæmt ritskoðunar- reglum. Margir teiknarar töldu svo nærri sínu tjáningarfrelsi höggvið, með setningu þessarar sjálf-ritskoðunar aö þeir treystu sér ekki til að halda áfram gerö sinna teiknimyndasería. Það er staðreynd að teiknimynda- sögur hafa afar mikil áhrif, en þaö má endalaust deila um hvort þessi áhrif séu jákvæð eða neikvæð. I Bandaríkjunum hafa áhrif teikni- myndasögunnar verið einna mest á menningu þjóðarinnar, en hér á landi hafa teiknimyndasögur ekki unnið sér þann sess, sem þær skipa í Bandaríkjunum. Allar þessar deilur áttu eftir að hafa mikil áhrif á framvindu mála og upp úr 1960 tók að bera á nýrri grein á þessum stofni. Endurreisnin (1950—) Eftir svo hatrammar umræöur og alla þá athygli sem þær vöktu þótti ljóst að einhvern veginn þyrfti að breyta um stefnu. Um 1950 kemur fram á s jónarsviðið ný tegund teikni- mynda, svonefndar „intellektúal” seríur. Reyndar má rekja tilurð þeirra aftur til Krazy Kat, en líkt og i þeirri seríu eru þjóðfélags- og heim- spekileg vandamál túlkuð út frá húmanisku sjónarhorni og bornu upp af húmor, sem nær allt frá föðurlegri hjartagæsku, kaldhæðnum tilsvörum tU gáfulegrar bjartsýni í stað hins af- skræmda og blaðskellandi húmors sem áður tíðkaðist. Þemaö í þessari gerð samanstendur aðallega af smá- smugu hversdagsleikans, sálfræði- legum athugunum og pólitískum greiningum, þó innan kristUegra tak- marka. Hin fyrsta þessarar tegundar er líkast til Poga eftir Walt Kelly (1948). Kelly hafði starfað hjá Walt Disney og báru myndir hans þess greinUeg merki. Serían fjaUaði um hóp dýra, sem Ufðu einhvers staðar í „The Deep South”. Hvert dýr hafði sterkan afmarkaðan persónuleika, og tóku oft til samtiðavandamála í bandarísku þ jóðfélagi. Pogo öðlaöist strax gífurlegar vin- sældir og tveimur áram síðar koma fram afkvæmi teiknarans Charles M. Shulz; Peanuts (Smáfólk í ísl. þýð.). I stað dýra eru það böm sem eru aöalpersónur, en fuUorðnir sjást aldrei þó aö návist þeirra sé stundum staðfest. Þetta er ákaflega skiljan- tegt þegar tekið er tUUt tU þess að persónur i Smáfólki tjá sig einatt um lífið og tUverana eins og fuUorðið fóUc, en í því felst aðlöðun seríunnar. A næstu áram jókst mjög gerð sUkra sería og má þar nefna The Wizard og Id (1964) B.C. (1958) og BroomhUda (1969). Einkenni þessara sería er að húm- orinn og ádeUa er tvíþætt í gerð slnni, annars vegar er það raunvera- teiki lesanda og teUcnara sem er við- fangsefni, eUegar uppdiktuð og skrumskæld veröld fáránleikans. MIIU þessara tveggja þátta tvístíga teiknimyndaseríumar. Þetta greinir seríumar frá forföð- DV. FÖSTUDAGUR 29. JULI1983. ur þeirra Krazy Kat, en þar er ver- öldin ætíð hin sama og persónurnar skýrt afmarkaöar í hlutverka- tengslum sínum við umhverfið. Neðanjarðarteiknimynda- seríur Hinum ameríska teiknimynda- markaði hafði verið og er skorinn af- ar þröngur stakkur hvað varðar meðhöndlun á viðkvæmum málum og þá sérstaklega varðandi kynlíf, stjórnmálogtrú. Nýrri kynslóð lesenda sem fæddir vora um 1940 þótti hin kynlausa og gelda póUtiska afstaða óþolandi og afleiðingar þessara viðbragða voru m.a. að ýmsir teiknarar létu öU „tabú” sem vind um eyru þjóta og tóku til við að fullnægja nýrri eftir- spum. Þessi nýja tegund „hasablaöa” bar eðUiega sterkan keim af forver- um sínum en aðgreindu sig frá þeim með algjöru viröingarleysi sínu fyrir hinualmenna siögæði. Einkenni þeirra var róttæk afstaða og að teiknararnir höfðu fuUt frelsi tU aö tjá sig um öll málefni þjóðfé- lagsins. I byrjun þótti helsti ókosturinn vera hroðvirknisleg vinnubrögð og lélegar teikningar, en einstaka teikn- arar s.s. Robert Cramb, Gilbert Shelthon og Spain þóttu skera sig úr hvaðgæðivarðaði. Þegar Robert Crumb gaf út sitt fyrsta blað: Zap, árið 1967, má segja að hið eiginlega neðanjarðar-hasa- blað hafi fæðst. I kjölfar þess fylgdi fjöldi annarra, en það sem stóð dreif- ingu þeirra fyrir þrifum, var að í flestum fylkjum Bandarik janna voru lög, sem bönnuðu þessa og viðUka framleiöslu. Robert Cramb er liklega einn sá hvassasti ádeilupenni innan þessar- ar greinar. Einkennandi fyrir hann (og marga kumpána af hans tagi) er að hæðni hans og ádeUa beinist ekki aðeins aö kerfinu heldur einnig að honum og lesendunum. Slík sjálf- skoðun hlýtur að teljast af hinu góða þar sem hún vekur menn til um- hugsunar um eigin veikleika og dregur úr beiskju einstaklingsins gagnvart þjóðfélaginu. Erfiðleikar neðanjarðarblaðanna vegna dreifmgar minnkuðu með af- slappaðri afstööu hins opinbera, en fjöldi titla jókst stöðugt. Nú á tímum er nafngiftin ,,neðanjaröar” tæplega réttlætanleg. Þegar litið er yfir þróun þessarar greinar, er ljóst að margt er um hismið en kjarninn litill ef miðað er við gæði. Upphaflega var mest um kynlífs-seríur, sumar hverjar afar svæsnar, en félagsfræðingar myndu e.t.v. túlka það sem lið í baráttunni fýrir frjálsu kynlifi. Pólitísku-seríurnar fjölluöu gjarn- an um einstaka pólitíska hópa og baráttuaðferðir þeirra gegn kúgandi þjóðfélagi. I seinni tíð hafa sprottið upp ýmsar nýjar tegundir s.s. vestrar, galdra- sögur, hrollvekjur, þar ber hæst sál- fræði- og vísindaskáldsögur. Þó að hinn hefðbundni teiknimyndaiðnaöur hafi áður tileinkað sér allar þessar greinar þá er það áðumefnt virðing- arleysi fyrir almennu siðgæði, sem aðgreinir þessar „neöanjarðar-ser- íur” frá hinum. Neðanjarðar-seríurnar voru kær- komin nýjung á markaðinum, en ekki er margt sem bendir til að þær hafi hleypt nýju blóði í kalkaðar æð- ar hins hef ðbundna blaðaiðnaðar. Niðurlag Hér að framan hefur verið stiklað á stóra í sögu teiknimyndaseríunnar og eflaust finnst mörgum vanta í grein þessa þátt evrópskra teikni- mynda, en þar sem þróun þeirra er ákaflega hliöstæð hinni amerisku þótti ekki nauðsynlegt að taka hana meö að sinni, þó að sá hugmynda- heimur standi e.t.v. Islendingum nær. Sé hugað að stöðu teiknimyndaser- íunnar nú á timum er líklega óhætt að fullyrða að aldrei hafi vinsældirn- ar verið meiri, stöðugt bætast fleiri og fleiri teiknimyndaseríur viö þann aragrúa sem fyrir er og það er fátt sem bendir tU að þetta tjáningar- form mannskepnunnar muni hverfa af síðum dagblaðanna í nánustu framtíð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.