Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1983, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1983, Page 6
6 DV. FÖSTUDAGUR 29. JULI1983. HAMAR. SÚG... \okkrar ráðleggfngar til hinna bjargarlausu Ert þú ein af þessum stúlkum eöa mönnum sem eru ósjálfbjarga þegar kemur aö því að nota handverkfæri? Eða getur þú framkvæmt smáviðgerö- ir á heimilinu jafnauðveldlega og hver karlmaður. Þessi grein er sér- staklega fyrir hina bjargarlausu en aörir geta einnig sótt ráð í hana. Verkfærin bera þig háifa leið Þú átt áreiöanlega gamlan ryðgaðan naglbít einhvers staðar inni í dimmum skáp. Hver veit nema þú eigir einnig einhvers staðar fomlegan hamar og sög. En það er ekki nóg. Héma eru nokkur ráð um hvemig þú kemur þér upp viðeigandi verkfæra- setti. Þegar þú kaupir þér ný verkefni gildir aulareglan að verö og gæði fylgj- ast að. Notir þú hins vegar t.d. sögina sjaldan þarf hún auövitað ekki aö vera af bestu gerö. Ef þú ferð vel meö verkfærin endast þau lengur. Tæmdu neðstu skúffuna í eldhúsinu eða kræktu þér í níðsterkan pappakassa. Hægt eraðskipta kassan- um/skúffunni með hjálp annarra smá- kassa og skurðarverkfæri eins og sög og bor verður að vemda þannig að slitni ekki ónauðsynlega. Ef verkfærin eru alltaf á sinum stað og tilbúin til að flytja á staðinn þar sem vinna á em meiri líkur á því að þú komir þér að verki heldur en ef þú þarft aö byrja á því að finna allt þaö sem til þarf. Æfðuþig efþú ert byrjandi Það er heldur seint að reyna nýju verkfærin daginn sem hillumar eiga að fara upp. Æfðu þig fyrst á afgangs- timbri. Búöu til eitthvað einfalt eins og til dæmis skip fyrir afkvæmið. Hamar Hamar er nauðsynlegur. Veldu klaufhamar með stálskafti og gúmmí- handfangi og í stærð sem fer vel í hendi. Klaufina notar þú til aö draga nagla út en hún er einnig nothæf sem dvergkúbein. Ef þú ætlar að setja nagla í setur þú smámerki þar sem naglinn á aö koma. Haltu um naglann með annarri hendi og sláðu nokkur létt högg með hamrin- um. Þegar naglinn er fastur getur þú sleppt honum á meðan þú neglir hann inn. Sláðu laust síðast til þess að gera ekkiförítréð. Þú getur neglt venjulegan nagla í gips, tré og áþekk mjúk efni. Ef þú ætl- ar að negla í múr skaltu nota stál- nagla. Sög Sögin er skurðarverkfæri. Mundu að þú ræður ferðinni og aö sögin vinnur verkið. Það sem saga á verður að vera fast. Festu það með þvingu. Mundu að merkja alltaf fyrir þar sem á að saga. Stjórnaðu söginni með léttum hreyf- ingum og án þess að þvinga. Venjuleg sög vinnur í hreyfingunni fram. Mælt er með 40—50 cm langri sög. Skiptilykill Hægt er að losa og festa rær með skiptilykli sem stilla má i fjölda stærða. Það er líka hægt að kaupa fastalykla sem hver um sig passar á ákveðna ró eða skrúfustærð. Lyklun- um er hægt að koma við í þröngri að- stöðu en 15 cm langur skiptilykill dugir samt langt. Skrúfjárn Ödýrast er að kaupa skrúf jám í sett- um. Þú þarft stærðirnar 3, 5, 7 mm og stjörnuskrúf jám númer 1 og 2. Það er nefnilega mikilvægt að skrúfjámiö sé jafnbreitt og raufin í skrúfuhausn- um. Annars eyðileggst raufin. Stjörnu- skrúfjám er notað við skrúfur með krossraufum. Naglbitur Ef þú ætlar að rífa boginn eða illa ( séðan nagla út úr vegg er oft gott að nota naglbítinn. Best er þá að hafa töng sem er með langt skaft og lítinn kjaft því þannig reynir þaö minnst á þig líkamlega. Gríptu meö kjafti tangarinnar um hausinn á naglanum þétt upp viö vegg og haltu trébút eða krossviði undir kjaftinum til þess að gera ekki far. Tré skaddast minnst ef tönginni er haldið þvert á æðamar í því. Töngina má einnig nota til að klippa stálþráð í sundur. Einnig er hægt að nota hana til að afeinangra leiöslu. Passið bara að skera leiðsluna ekki í sundur. Ef það gerist verður að byrja Skerstokkur er góður þegar þarf að skera lista eða þvíumlíkt af nákvæmni. Þeir eru oft úr tré og með mismunandi rifum sem passa viö homrétta skuröi eða skáskurði. Til þess að ráða við efnið þegar þú ert að vinna er mikilvægt að festa kassann með hliöina nær þér eftir borðröndinni þannig að hann hreyfist ekki. Listinn er lagöur á þá hlið kass- ans sem fjær er og hægt er að halda honum föstum með fingrunum einum. Síll Síll er auövitað ekki til að skrúfa skrúfur en er góður þegar þarf að bora fyrir litlum skrúfum og til þess að merkja fyrir holum. Töng af þessari gerð er til að halda Oll smiðum vlð eltthvað sem börn. En það er misjafnt hvert framhaldlð verður. i0'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.