Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1983, Side 3
DV. FÖSTUDAGUR 5. AGUST1983.
3
Reyðarfjörðun
„BARA STRÁKAR”
— bræðurnir Atli og Guðjón f viðtali
á„stéttinniheima”
Jæja, strákar, hvaö segiö þið gott?
spuröum við þessa tvo hressu og ljós-
hærðu bræður er við ókum í gegnum
Reyðarfjörð nýlega. „Allt gott,” svör-
uðu þeir að bragði. En hvað heitið þiö?
„Bara strákar,” muldraði annar
þeirra, svona meira fyrir sjálfan sig.
Eftir að faðir þeirra var kominn á
vettvang komumst við að því að þeir
heita Atli Sigmar, 3 ára og Guðjón
Rúnar, 2 ára, og þeir eru Þorgrímssyn-
ir.
Eitthvað fannst þeim við nú vera
skrítnir fuglar og það verður að segj-
ast eins og er að þeir höfðu meiri
áhuga á nýja strandferðaskipinu
Esjunni þar sem hún öslaði inn
Reyðarf jörð í fyrsta skiptið.
Utsýnið „af stéttinni heima” var líka
stórkostlegt og þeim þykir báðum
gaman að horfa yfir fjörðinn og skoöa
skipin þegar þau sigla inn. Og það er
heldur ekki verra að vera á hjólunum
sínum til að geta þeyst eftir stéttinni
þegar skipin hafa siglt framhjá. Við
biðjumaðheilsaykkur. strákar.
-JGH.
Þeir taka sig vel út bræðurnir Atli Sigmar og Guðjón Rúnar Þorgrímssynir þar
sem þeir horfa á nýju Esjuna ösla inn Reyðarfjörðinn. Svo er ekki verra að vera á
sokkaleistunum á hlaupahjólinu sínu úti á stétt. DV-mynd: Bjarnleifur.
Karlmaöurá Akureyri:
Kærdur fyrír kynferðis-
afbrot á 4 ára dreng
Móðir á Akureyri kærði kynferðis-
afbrot karimanns á f jögurra ára syni
sínum á Akureyri síðastiiðið mánu-
dagskvöld, samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar á Akureyri í gær.
Afbrotið mun hafa verið framiö í
Brekkuhverfinu svokallaða á milli
klukkan átta og níu á mánudags-
kvöldið. Kom drengurinn til móður
sinnar og sagði henni hvað hefði
gerst. Hún fór samstundis til lögregl-
unnar og kæröi manninn.
Ekki er vitað hver maðurinn er og
enginn hefur verið handtekinn vegna
þessa máls. Rannsóknarlögreglan á
Akureyri vildi ekki tjá sig um hversu
alvariegs eðlis brotið væri, enda væri
máliðennírannsókn. -JGH.
VOLVO TURBO '82
ekínn 25.000, beínsk.
Verðkr. 520.000.-
VOLVO 244 GL '82
ekinn 5.000, sjálfsk.
Verð kr. 425.000.-
VOLVO 244 GL '81
ekinn 28.000, sjálfsk.
Verðkr. 375.000.-
VOLVO 244 GL '80
ekinn 46.000, beinsk.
Verð kr. 300.000.-
VOLVO 244 GL '79
ekinn 60.000, sjálfsk.
Verð kr. 305.000.-
VOLVO 244 DL '78
ekinn 76.000, beinsk.
Verðkr. 210.000.-
VOLVO 345 DL '80
ekinn 23.000, beinsk.
Verðkr. 200.000.-
F-12 Á GRIND '80
ekinn 170.000.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
FRÁ KL. 10-16.
VOLVOSALURINN
Suðurlandsbraut 16 • Sími 35200
Aðalfundur
Norræna áhuga-
leiklistarráðsins:
Leiklistar-
starf eldri
borgara og
fatlaðsfólks
Menntunarmál, leiklistarstarf eldri
borgara og fatlaðra og samstarf við
IATA, Alþjóða áhugaleiklistarsam-
bandið, voru helstu mál aðalfundar
Norræna áhugaleiklistarráösins á
Húsavík í júnibyrjun.
Á fundinum var ályktaö um
menntunarmálin og talið að ekki þyrfti
aðeins að opna námskeið landssam-
bandanna fyrir fólki frá Norðurlöndum
heldur líka gera áætlun til lengri tíma
þar sem landssamböndin tækju að sér
undirstöðunámskeiö hvert í sínu landi,
framhaldið og lokanámskeiðin yrðu
síðan sameiginleg og á vegum NAR,
Norræna áhugaleikiistarráðsins.
Aðalfundurinn áréttaði einnig mikil-
vægi þess að gefa eldri borgurum og
fötluðum tækifæri á leiklistarstarfi í
anda eigin hugmynda þeirra og óska.
Einnig segir í ályktun fundarins á
Húsavík að Norræna áhugaleiklistar-
ráðið líti á það sem skyldu sína að
veita eftir getu erlendum straumum og
stefnum inn i norrænt leikhús og á
sama hátt gegnum leiklistarstarf sitt
kynna umheiminum norræna menn-
ingu og norræn lífsviðhorf.
ARFELLSSKILRUM
Henta allsstaðar — sérhönnuð fyrir yður — gerum verðtilboð
Ármúla 20 — Sími 84635
JBH.