Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1983, Blaðsíða 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 5. AGUST1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Reyndu að
kaffæra kaf-
bát undir
timbri
Svíar gripu til gamals bragðs til þess
að reyna aö veiöa kafbát sem grunur
lék á að hefði læðst inn í Törfjörð, nyrst
í Svíþjóð. Fylltu þeir fjörðinn af
timbri, trjábolum sem fleytt er með-
fram ströndinni í sögunarmyllumar á
sumrin.
Fjörðurinn er aðeins 8 metra djúpur
og náöu timburhlaðamir niður á sex
metra dýpi þegar þrír dráttarbátar
voru búnir að draga timburflotana inn
áfjörðinn.
Ekki hefur kafbátsins orðið vart eftir
það og virðist hann, eins og aðrir
óboönir kafbátar í landhelgi Svía, hafa
gengið þeim úr greipum.
Sænskir flotasérf ræðingar skoða þessa mynd gaumgæfilega, en hana tók sænskur
ríkisborgari við hersýningu í Murmansk. Þetta er talinn vera dvergkafbátur af
því tagi sem taldir eru hafa valsað út og inn um sænska skerjagarðinn.
Hótaði að
myrða
Bretaprins
29 ára gamall maður mætti fyrir
rétt í Aylesbury í Englandi í gær
sakaður um að hafa hótað að drepa
breska ríkisarfann, Charles Breta-
prins.
Maðurinn, sem er atvinnulaus og
beiskur út i samfélagið, hafði
skrifaö ritstjóra héraðsblaðsins
nafnlaust bréf þar sem hann hótaöi
að drepa prinsinn þegar Charles
og Diana kona hans heimsóttu
sjúkrahús við Stoke Mardeville
(um 60 km norövestur af London).
Lögreglan rakti bréfið til hans.
<■-------------------«
Lafði Diönu og Charles Bretaprins
var hótað lifláti af manni í Ayles-
bury.
Sökktu njósna-
skipi frá
Norður-Kóreu
Her Suöur-Kóreu sökkti í morgun
vopnuöu norður-kórönsku njósnaskipi
sem statt var suður af strönd landsins.
I frétt þess opinbera segir að þrír N-
Kóreumenn hafi verið f elldir.
Eitt af flotaskipum S-Kóreu lask-
aðist í orrustunni, en engan mann sak-
aðiþarumborð.
Menn tóku eftir njósnaskipinu þar
sem það var statt um 5 km út af
bænum Wolsong í suðausturhluta
landsins. Þar er kjarnorkuver í
smíðum. Beittu S-Kóreumenn
varðskipum, herflugvélum og flota-
skipum til þess að sökkva njósna-
skipinu.
Níundu flugvél-
inni rænt í USA
— Flugræninginn vildi heimsækja bömin sín sex í Havana
Bandarískri farþegaþotu með 248
farþegum og 10 manna áhöfn innan-
borðs var rænt í gær af spönskumæl-
andi manni sem sagðist langa til að
heimsækja bömin sín sex í Havana og
neyddi flugstjórann til að fljúga til
Kúbu.
Þetta er níunda farþegaþotan sem
rænt er í Bandaríkjunum síðan 1. maí í
vor. Þar til viðbótar hafa tvær flug-
ránstilraunir veriö geröar, en þær mis-
heppnuðust.
Vélin, sem er af gerðinni DC-8, var í
flugi á milli San Juan í Puerto Rico til
Miami, en endaði sem sé flugið á Jose
Marti-flugvellinum í Havana. Hennar
er aö vænta til Miami í kvöld.
Flugræninginn hafði sent miða fram
til flugstjórans þar sem hann sagðist
vopnaöur skammbyssu og sprengiefni.
Hann hafði einnig hellt einhverjum
vökva, líkast til bensíni, á auðu sætin
aftast í vélinni. Hann hafði veifað
skammbyssunni en hvort hann hafði
nokkurt sprengiefnið vissu menn ekki.
Havanastjómin hefur fullvissað
Bandaríkjastjórn um að strangt sé
tekið á flugræningjum og þeir dæmdir
til þungra refsinga á Kúbu. Sérstak-
lega þeir, sem stofna lífi farþega í
hættu með bensínsulli.
Flestir flugræningjanna í
Bandaríkjunum em aðfluttir Kúbu-
menn sem ekki una Bandaríkjavistinni
eða höfðu verið reknir nauðugir frá
Kúbu. Yfirvöld Kúbu og Bandaríkj-
anna viðurkenna að margir þeirra 125
þúsund Kúbumanna sem fengu að fara
frá Mariel 1980 hafi komiö beint úr
fangelsum. Kúba hefur ekki viljað
leyfa neinum þeirra að snúa aftur til
heimalandsins.
Chad berst
aðstoð um leið
og árásimar
aukast
Stjórninni í Chad barst í gær fyrsta
hergagnasendingin frá Frökkum eftir
að Líbýumenn hafa hert loftárásir til
stuðnings uppreisnarmönnum. Voru
þetta aðallega vopn til landvama.
Loftáfásir Líbýumanna eru ekki
lengur einskorðaöar við bæinn Faya-
Largeau. Beinast þær nú einnig að
bæjunum Oum-Chalouba og Kalait í
norðausturhluta landsins. Allir þessir
þrír bæir eiga þaö sameiginlegt aö
uppreisnarmenn höfðu náð þeim á sitt
vald fyrir þrem vikum en stjómarher-
inn endurheimti þær aftur.
Bandaríkjastjórn hefur lýst sig mjög
áhyggjufulla vegna harðnandi átaka í
Chad og afskiptum Líbýu af þeim.
Hefur Reaganstjórnin tvöfaldað þá
fjárhæð sem ætlunin var aö verja til
aðstoðar við stjóm Hissene Habre, for-
seta Chad.
I Washington var sagt að það bráð-
lægi á hergagnaaðstoð vegna
spreng juárása líbýskra herflugvéla.
Reagan forseti lauk í gær miklu lofs-
orði á drengskap Mobutu, forseta
Zaire, fyrir að senda 1600 manna herlið
og sex flugvélar til Chad til liðs við
stjómarherinn í baráttunni gegn
uppreisnarmönnum og Líbýu.
Fékk báða
fætur ágrædda
Tveggja ára gamall júgóslav-
neskur drengur, sem missti báða
fætur sína í sláttuvél í sumar, mun
senn geta gengið á nýjan leik, sam-
kvæmt því sem læknar hans í Bel-
grad segja.
Sláttuvél föður drengsins hafði
tekiö báöa fætur af rétt ofan við
ökkla (11. júlí) á garöflötinni heima
hjá þeim í Ljubljana. Hann var flutt-
ur með hraði á sjúkrahús þar sem
læknar gerðu á honum flókna aðgerö
til þess að græöa báða fætur á hann
aftur. Er það sagt í fyrsta skipti sem
siíkt er reynt.
Hann hefur gróiö vel og verður
honum sleppt af spítalanum eftir
vikutíma eða svo en áður verða
fjarlægðir stálnaglar sem til bráða-
birgða votu hafðir til stuðnings
leggjunum meðan beinin greru.