Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1983, Síða 9
DV. FÖSTUDAGUR 5. AGÚST1983.
9
Brátt verður markaðurinn fullur af nýju, íslensku grcmnetl.
DV-mynd S.
Neytendur Neytendur Neytendur
íslenska grænmetið er að koma:
Verðið ennþá nokkuð hátt
Islenska grænmetið er farið að koma
á markaöinn. Við erum reyndar búin
að njóta tómata og gúrkna í nokkurn
tíma og ögn fengum við af gróðurhúsa-
gulrótum. Nú er hins vegar farið að
koma hvítkál, toppkál, blómkál og gul-
rætur ræktaðar úti. Gulrætur og gul-
rófur eru óvenju seinar á markaði
þetta árið. Níels Marteinsson hjá sölu-
félagi garðyrkjumanna sagði að róf-
urnar væru til dæmis alveg þrem
vikum eða mánuöi ó eftir því sem
vanalegt er.
Verðið á nýja grænmetinu er hátt
enn sem komiö er. En búast má við því
að það lækki þegar meira fer að koma.
Þannig má nefna sem dæmi að blóm-
kólið kostar í heildsölu 88 krónur. Þaö
gerir í smásölu með hámarksálagn-
ingu 121,45 krónur. Toppkálið er á 57,96
krónur sé hámarksálagning notuð og
hvítkálið á 48,30. Toppkáliö er mjög
svipað hvítkálinu að öllu leyti nema
því að það er strýtulaga en ekki hnatt-
laga.
Núna er rabarbarinn allsráðandi ó
grænmetismarkaönum eins og kom
fram á siðunni um daginn. En tómatar
og gúrkur seljast einnig vel. Hámarks-
framleiðslan er nú seld og ekki má sal-
an aukast til að þessa gómsætu ávexti
fari að skorta. Tómatar kosta 69
krónur og gúrkur 76,45 sé hámarks-
álagning notuð. Búast má við því að
það verö eigi eftir að hækka eitthvað
innan tíöar.
Paprikan hefur verið það vinsæl að
ekki hefur enn tekist að rækta nóg af
henni hér á landi. Því var flutt nokkuð
inn til viðbótar um daginn. Sú íslenska
er ennþá dýr, kostar 149 krónur kilóiö.
Auk þessara tegunda sem hér hafa
verið taldar upp fást hér púrrur eða
blaðlaukur á 123 krónur kílóið, kinakál
á 89,70 og steinselja á 12,40 krónur
búntið. ísbergsalat fæst ennþá og
spergilkál er farið að koma. Það kost-
arl38krónurkílóið.
Um miöjan mánuðinn má búast við
því að allar grænmetistegundir verði
komnar á markaðinn, ferskar upp úr
görðum landsmanna. Þá verður
gamanaðlifa.
-DS.
Heimilisbókhaldið:
Meðaltalið stendur í stað
íbiliad minnsta kosti
Meðaltal heimiliskostnaðar sam-
kvæmt tókhaldi því sem lesendur
halda með neytendasiðunni hefur
sáralítið hækkað ó milli mánaöa.
Meðaltalið í júní var 1.856 krónur á
mann í mat og hreinlætisvörur. I mai
var þaö 1.837 krónur á mann, aöeins
l%hækkun.
Þetta kann einhverjum að þykja
furðulegt á tímum þegar allt virðist
hækka stöðugt nema launin. En það
er ekki furðulegt þegar litið er til
þess að gífurlegt stökk varð á milli
mónaðanna april og maí. Þá hækk-
aöi meðaltaliö um hvorki meira né
minna en 17,06%. Það tekur fóikið
sem sendir seðlana líklega einhvem
tíma að jafna sig á því.
Það er þungur tónn í bréfunum
sem fylgdu upplýsingaseðlunum að
þessu sinní. Kvartað er yfir því að
allt hækki stöðugt í verði og æ erfið-
ara sé að ná endum saman. Til
dæmis segir í bréfi frá konu úti ó
landi:
„Seðillinn fyrir júni-mónuð er svo
hór að það liggur við að ég skammist
min fýrir að senda hann. Já þetta var
dýr mánuður og nú verður að
„redda” hlutunum. A mínum fyrstu
búskaparárum var auðvelt að
bjarga svona dýrum mánuðum. Þá
voru bara teknir víxlar til skamms
tíma. Nú er þetta ekki mögulegt
heldur verður að viðhafa aðrar að-
ferðir, það er að segja að spara fyrir
því sem á að framkvæma. Það er
býsna erfitt aö breyta um aðferð við
að eyða því sem aflað er. Viö erum
orðin svo vön því að fá bara fyrir-
fram af næstu launum ef lifað er um
efni fram eða þá að taka lán þegar
allt er komið í óefni. Á Islandi
hljótum við mörg að vera á þessum
vandræðabós.”
Við sjáum ekki betur hér á blaðinu
en aö þetta sé vandamál þjóðarinnar
í hnotskum. A þeim góðu tímum sem
þjóðin upplifði um árabil var ekki
verið að spara til vondu áranna.
Heldur eyddi hver því sem hann
komst yfir. Það var heldur ekki
skynsamlegt að spara þegar verð-
bólgan brenndi öllu upp jaf n óðum.
Nú eru hins vegar, eins og marg ift
hefur verið bent á, breyttir timar og
fé til að eyða er hreinlega ekki til. En
eins og bréfritari benti á er erfitt að
venja sig á breyttar aðferöir.
Tveir seðlar sem bárust vom
miklu lægri en allir aðrir. A öðrum
var meðaltalið 859 krónur á mann og
á hinum 948. Skýringar í bréfi fylgdu
með þeim lægri. Þar var sagt að
færri hefðu að jafnaöi verið í mat en
oftast óður og heila viku voru allir að
heiman. Með hinum seðlinum fylgdu
engar skýringar. En á seölinum stóð
aö rúmlega 29 þúsund krónur hefðu
fariö í annað en mat. Það hefur lík-
lega ekki verið mikið afgangs af
mánaöarkaupinu þegar búiö var að
borga annað en matinn.
Þegar litið er á kostnaðinn miðað
við fjölskyldustærð kemur í ljós að
f jögurra manna fjölskyldur koma aö
þessu sinni hagstæðast út. Ohag-
stæðast virðist hins vegar fyrir
tveggja manna fjölskyldur aö draga
fram lífið. I heild líta tölumar svona
út:
2 manna f jölskyldur 2098
3 manna f jöiskyldur 2027
4 manna f jölskyldur 1640
5mannafjölskyldur 2036
6 manna f jölskyldur 1895
7 manna f jölskyldur 1659
-DS.
Savett toalett eru sótthreinsandi þurrkur, ætlaðar til
notkunar á eftir salernispappír. Savett toalett er í hentug-
um umbúðum til notkunar heima og í ferðalagið.
Savett Toalett.
SAVETT f æst í apótekinu.
Stærðir: 80x80 — 90x90—70x 90
Auðveft í uppsetningu, aðeins þarf að
tengja vatn og frárennsli.
PÓSTSENDUM
B099ÍO9AVÓruvir«la0
Trffggva Hooosftooor
SIDUMOLA 37 -SIMAR 83290-83360
FRISTANDI
STURTUKLEFAR
BAHCO
með sjálfsti/ian/egum b/öndunartækj-
um. Hentar alls siaðar fyrir heimili og
vinnustaði.
OP|£LarDAg
Vörumarkaðurinn hl.