Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1983, Síða 10
10
DV. FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
ÓÖLDIN Á SRILANKA
A eyjunni Sri Lanka minnir
ástandið um sumt á Kýpur, þar sem
Kýpur-Tyrkir og Kýpur-Grikkir hafa
aldrei getað setiö á sárshöfði eða
búið í samlyndi.
Síðasta áratuginn hafa veriö
skærur milli sinhalesa og tamila á
Sri Lanka sem jafnharðan hafa þó
fjarað út, en eftir atburði síöustu
viku, þykir einsýnt að aldrei geti
gróið um heilt aftur.
I meir en þrjú ár hefur herinn á Sri
Lanka ólmast í taumhaldinu á
meðan félagar þeirra og lögreglu-
menn hafa verið myrtir af hryðju-
verkamönnum tamila og á meðan
Junius Jayawardene (76 ára) forseti
Sri Lanka reyndi samningaleiðina til
pólitískrar lausnar á vandanum.
Embættisgjörðir hans sýna, aö hann
hafði einlægan vilja til þess að bæta
úr umk vörtunaref num tamila.
Góður grunnur
en dugði ekki
Jayawardene var í sterkri aðstöðu
til þess að láta gott af sér leiöa fyrir
tamila, þótt hann væri sjálfur sin-
halesi. öll hin löngu ár, sem hann
var í andstööu við stjóm Bandar-
anaike-ættarinnar, hafði hann deilt
smán, útskúfun og ofsóknum með
Appapillai Amritalingam, sem er
leiötogi hinnar sameinuðu frelsis-
hreyfingar tamila. Þolandi súrt
saman bundust þeir vináttuböndum.
Þegar Jayawardene komst til
embættis með yfirburðasigri í þing-
kosningunum 1977, varð Amritaling-
am leiðtogi næststærsta þingflokks-
ins og stjórnarandstæðinga. I
samræmi við stefnu sína um „dhar-
mishta” — réttlátt þjóðfélag — hóf
Jayawardene viðræður við Amrita-
ingam og flokksbræöur hans um
umbætur fyrir tamila. Hann gerði
málýsku tamila aö öðru ríkismálinu
á Sri Lanka. Hann dró úr mismunun í
skólakerfinu, sem fyrri stjóm hafði
komið í kring fyrir sinhalesa. Og sitt
hvað fleira var undirbúið.
öfgarnar
hlusta illa
En þetta reyndist Jayawardene
vonlaust verk. Aðskilnaðarsinna
tamilar höfðu notað sömu kosning-
amar og fleytt höfðu Jayawardene
til valda sem þjóðaratkvæði um
kröfu þeirra til stofnunar á Ellm,
sjálfstæðu ríki tamila á eyjunni.
Aðskilnaðarsinnar unnu í öllum 20
kjördæmum tamifa í grennd við
Jaffna á norðurhluta eyjarinnar þar
sem byggð tamila er þéttust. Töldu
þeir sig þar meö hafa hlotið þaö
umboð sem þeir sóttust eftir.
Við þessar aðstæður var sama
hvað Jayawardene gaf tamilum
eftir. Hann gat aldrei fullnægt
kröfum hinna forstokkuðu aðskiln-
aöarsinna sem engu vildu una öðm
en klofningi ríkisins. Og hinir, eins
og Amritalingam sem semja vildu
um pólitíska málamiðlun innan sam-
einaðs ríkis, einangruöust smám
saman og kölluðust „stjómar-
sleikjur”.
Óöld og óeirðir
Forsetakosningamar í október í
vetur þar sem flokkur Amrítaling-
ams bauð ekki fram á móti Jaya-
wardene, breyttust í átök milli öfga-
aflanna meðal tamila og hinna hóf-
samari. Þeir fyrrnefndu vildu að
tamilar skiluðu ekki atkvæði í
kosningunum og sætu heima. 1 auka-
þingkosningum í maí og sveitar-
stjórnarkosningum í Jaffna brutust
út óeirðir þegar ofstækismenn réöust
á frambjóðendur samningasinna.
Kosningamar í Jaffna fóru hörmu-
lega og ofstækisöflin fóru með sigur
afhólmi.
Ofbeldisverk og óeirðir færðust í
aukana og beindust aðallega gegn
hermönnum, opinberum stofnunum,
bönkum og öðm því, sem hryðju-
verkaöfl gera venjulegast að skot-
spónum sínum. Herinn virtist ekki
vita sitt rjúkandi ráð. Ráðamenn
vildu ekki leyfa honum aö beita sér
gegn borgurum og upplýsingaöflun
leyniþjónustunnar virtist í molum.
Þessu síðasta mátti að nokkru kenna
forsetanum sjálfum.
T amil-tígrisdýrin
Eins og fyrirrennarar hans haföi
Jayawardene við embættistökuna
haft mannaskipti í flestum trúnaðar-
störfum hjá því opinbera. Þar á
meðal í leynilögreglunni þar sem
fyrir voru menn er þjálfun höfðu
hlotiö hjá leyniþjónustu Breta og
Israela. I staðinn voru settir til
starfa menn sem Jayawardene og
flokkur hans treysti betur, þótt
óreyndari væm. Ein afleiðing þess
varð að tamil-tígrisdýrin, eins og
hryðjuverkasamtök ofstækismanna
em kölluö ó Sri Lanka, óðu uppi
viöspymulitiö.
Kort af Srl Lanka. Skáletruðu svæðin
sýna aðalbyggðir tamila en það
hvíta er byggt sinhalesum. — efst í
horninu er kort sem sýnir stöðu eyj-
arinnar Sri Lanka suður og austur
af Indlandsskaga.
Sunnudaginn í hinni vikunni drápu
tígrisdýrin þrettán hermenn í laun-
sátri í Jaffna. Blóðið ólgaöi i
sinhalesum, og svo klaufalega var
staðið að greftrun hinna föllnu, að af
því kviknaði heljarbáliö sem verður
varla slökkt um fyrirsjáanlega
framtíð. Múgurinn, sem beið
athafnarinnar, trylltist þegar henni
var aflýst í Colombo vegna ein-
hverrar seinkunar á flutningi lík-
anna frá Jaffna. Ofsóknunum sem
síðan hófust á hendur tamilum hefur
veriö lýst í fréttum. Það hefur gengiö
á með moröum og íkveikjum, grip-
deildum og óspektum. Yfirvöld settu
á útgöngubann til þess að geta betur
haldið uppi lögum og reglu en þaö
viröist koma fyrir lítið. Enda bera
fréttir keim af því að herflokkar,
sem sendir hafa verið lögreglu til
halds og trausts, láti sér ósárt um
það, þótt tamilar hljóti bágt af hálfu
sinhalesa.
Mánudaginn eftir þessa blóðhelgi
voru 35 tamilar fangar í Welikada-
fangelsinu, sem er aðal öryggisfang-
elsi Sri Lanka, baröir til bana. Sumir
voru dæmdir menn fyrir hryðju-
verkastarfsemi, en aðrir einungis í
varðhaldi. — Yfirvöld sögðu að upp-
þot hefði orðiö í fangelsinu og
meðfangarnir hefðu drepið tamil-
ana, en kvittur er á kreiki um að
verðimir, allt hermenn, hefðu sjálfir
veriðaðverki.
Alla vikuna fram yfir verslunar-
mannahelgina hefur gengið á með
óspektum í Colombo og víðar á Sri
Lanka þar sem æfir sinhalesar hafa
leitaö uppi tamila. Nýrri olíu hafði
verið skvett á eldinn þegar tilraun
var gerð til þess aö sprengja upp
aöalgasstööina í höfuðborginni, og
var hryðjuverkaöflum tamila kennt
um.
Indira Gandhi
áhyggjufull
Álengdar situr Indlandsstjóm og
fylgist áhyggjufull með framvindu
mála þessa eyríkis við bæjardymar.
Syðst á Indlandsskaga búa indversk-
ir tamilar og leggja fast að stjóm-
inni í Nýju Delhí aö bjarga hinum
ofsóttu tamilum frá Sri Lanka. —
Tamilamir á Sri Lanka eru mest-
megnis innfæddir, en þó em þar
tugir þúsunda, sem starfa á plant-
ekrum og búgörðum, er flust hafa
yfir sundið í tímans rás.
Indlandsstjóm hefur boðist til þess
að senda hjálpargögn flugleiðis til
noröurhluta Sri Lanka þar sem
sumar tamilabyggðirnar hafa
algerlega einangrast. Jafnframt
hefur hún boðið flutninga öllum
tamilum sem flúið hafa heimili sín
og vilja flytja til Indlands. Um 50
þúsund tamilar hafa leitaö hælis i
„flóttamannabúðum” sem hróflað
hefur veriö upp í Colombo. Vafamál
þykir samt hvort þessi boð Indíru
Gandhi megni að friða íbúa suður-
fylkisins Tamil Nadu.
Eftir óeirðimar í Colombo hafa
veriö daglegar mótmælaaögerðir og
skemmdarverk unnin á eignum Sri
Lanka-manna á Indlandi. Einn Sri
Lanka-stúdent var skotinn til bana í
höfuðstaðnum Madras og annar
lagður inn á sjúkrahús særður skot-
sárum.
í bráðum háska
ef sjást á ferli
Jafnvel þótt þessi hjálparboð
Indlandsstjórnar yrðu þegin og því
em takmörk sett hvað hún getur
i r i ti
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
gengiö lengra, þá er ástandið þannig
á Sri Lanka að þaö er stórháski fyrir
tamila aö láta sjó sig á ferli. Það er
ósýnt að þeir úti í dreifbýlinu sem
boðiö vildu þiggja mundu komast lifs
áfangastaða á milli. Ekki hefur þótt
þorandi enn að verða viö óskum
tamila í Colombo um að fá að fara
norðuráeyjuna.
Tamilar sem flust hafa frá Sri
Lanka bera einstökum ráðherrum
Sri Lanka-stjórnarinnar á brýn að
ala á kynþáttahatrinu til aö efla sam-
stöðu sinhalesa með stjóm Jaya-
wardene.
Aðeins einn af hverjum 100
lögreglumönnum á Sri Lanka er
tamiLi. Þegar öryggissveitir voru
kallaðar út til að vemda tamila í
hafnarbænum Trimcomalee í síðustu
viku voru sjónarvottar að því aö
lögreglumenn tóku sjálfir þátt í
íkveikjum og gripdeildum. Ekki
hefur heyrst um eitt tilvik þar sem
lögregluþjónn eða hermaður hafi
verið tyftaður fyrir slík brot.
Dökkar
framtíðarhorfur
Jayawardene hefur svarað óöld-
inni með því að setja á útgöngubann
um nætur og hóta að banna starfsemi
stjómmálaflokks tamila, nema þeir
hætti áróðri fyrir aðskildu ríki
tamila.
Jayawardene er einlægur búddistí
og næstum meinlætamaður í mat og
háttum. (Lifir til dæmis einungis á
hnetum og mjólk.) En hann virðist
veðurglöggur mjög í pólitíkinni.
Hann efndi til þjóðaratkvæðis í des-
ember þar sem honum tókst að auka
sex árum við forsetatímabil sitt.
Stjóm hans á nú við að glíma
verstu óeirðir sem út hafa brotist
síðan landið hlaut sjálfstæöi 1948, og
verður vandaverk við að fást, án
þess að framkalla frekari óánægju
og ofbeldisviðbrögð. Á meðan býður
ferðamannaiðnaður Sri Lanka, sem
blómstraöi, ómældan skaða af. Rúm-
lega 400 þúsund erlendir feröamenn
heimsóttu landiö í fyrra.
Aöskilnaðarsinnar tamila hafa
komið sér upp skrifstofu í London
eftir að yfirvöld á Sri Lanka bönnuöu
starfssemi samtaka þeirra. Þeir
hóta skæruhernaði og segjast engin
önnur ráð hafa síðan þeir neyddust
til aö flýja land.