Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1983, Qupperneq 16
16
DV. FÖSTUDAGUR 5. AGUST1983.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
19 heimsmet
í frjálsíþróttum
— hafa verið sett á árinu
Nítján heimsmet í frjálsum íþróttum hafa
verlö sett á árinu og búast má við að fleiri sjái
dagsins ljós á heimsmeistaramótinu í
Helsinki. Metin eru.
Langstökk kvenna. Anisoara Cusmir,
Rúmeníu, 7,21 m, og síðan bætti hún árangur-
inní 7,27 og 7,43 m.
Spjót karla. Tom Petranoff, USA, 99,72 m.
Kringla karla. Juri Dumtsjev, Sovét, 71,86 m.
Kúla karla, Udo Beyer, A-Þýskalandi, 22,22 m.
Sleggjukast. Sergei Litvinov, Sovét, 84,14 m.
Tugþraut. Jiirgen Hingsen, V-Þýskalandi,
8777 stig. Hástökk karla. Zhu Jian Hua, Kína,
2,37 m. Sjöþraut kvenna. Ramona Neubert, A-
Þýskalandi, 6838.
100 m hlaup kvenna. Marlies Göhr, A-Þýska-
landi, 10,81 sek. Evelyn Ashford, USA, 10,79
sek. 100 m karla. Calvin Smith, USA, 9,93 sek.
800 m hlaup kvenna. Jarmila Kratochilova,
Tékkóslóvakíu, 1:53,28 min. 10000 m hlaup
kvenna. Ludmila Bragina, Sovét, 31:35,01
min. 400 m grindahlaup kvenna. Anna
Ambrosine, Sovét, 54,02 sek.
Spjótkast kvenna. Tiina Lillak, Finnlandi,
74,76 m. 4X100 m boðhlaup kvcnna. Sveit
Austur-Þýskalands 41,53 sek. Kringlukast
kvenna. Galina Savinkov, Sovét, 73,26 m.
-hsim.
Fá ekkiað
setja inn mann
fyrir Coe
Stjórn alþjóða frjálsíþróttasambandsins
hefur neitað Bretum um að setja inn nýjan
mann fyrir Sebastian Coe í 800 m hlaupið í
heimsmeistarakeppnina sem hefst í Helsinki
á sunnudag. Coe varð að hætta við þátttöku
vegna veikinda, var bannað að æfa og keppa
af læknum. Bretar eru mjög óhressir með
þessa ákvörðun frjálsíþróttasambandsins og
benda á aö önnur lönd fái að setja inn kepp-
endur að vild þó þau hafi ekki tilkynnt
ákveðna menn í greinar.
Þeir Elliott og Cook munu hlaupa 800 m fyrir
Bretland. Bretar vildu fá að setja annaðhvort
Steve Cram eða Steve Ovett í hlaupið. Undan-
rásir 800 m hlaupsins verða á sunnudag,
undanúrslit á mánudag og úrslitin á þriðju-
dag, 9. ágúst. Cram og Ovett keppa í 1500 m
ásamt Williamson. Riðlakeppni í 1500 m
hlaupinu hefst föstudaginn 12. ágúst.
-hsím.
Þrjár stúlkur
hafa stokkið
yfirtvometra
— hástökkskeppnin á HM
íHelsinki hefst á sunnudag
Þórdís Gísladóttir, tR, keppir í hástökki í
heimsmeistarakeppninni í Helsinki. For-
keppnin verður á fyrsta keppnlsdeginum,
sunnudag, en úrslit á þriðjudag. Þrjár stúlkur
hafa stokkið yfir tvo metrana í ár. Bykova,
Sovétríkjunum, setti heimsmet innanhúss,
þegar hún stökk 2,03 m. Ulrike Meyfart, V-
Þýskalandi, ólympíumeistarinn á leikunum í
Miinchen 1972, og Ritter, USA, hafa stokkið
tvo metra slétta.
Síðan fylgja margar fast á eftir. Huntley,
USA, er með 1,99 m — Kositsyna, Sovétríkj-
unum, og Costa, Kúbu, hafa stokkið 1,98
metra. Þá eru þær Vesile, Rúmeníu, og Helm,
Austur-Þýskalandi, með 1,97 m og Sommer,
USA, og Bjelkova, Sovétrikjunum, með 1,96
metra. Það verður því við ramman reip að
draga hjá Þórdisi í hástökkskeppninni.
Hópferð Vals-
manna á Skaga
Á morgun, laugardag, leika Akumesingar
viö Valsmenn á Skipaskaga og hefst leikurinn
kl. 14.30. Samkvæmt fréttatilkynningu frá
Knattspymudeild Vals, verður efnt til hóp-
ferðar á leikinn. Farið verður með Akraborg-
inni frá Reykjavík kl. 13.00 á morgun og til
baka að leik loknum. -AA.
heimsmeistarakeppninni. Einar er í áttunda sæti í spjótkasti á af rekaskránni.
DV-mynd EJ.
Mtg svitnaði <
einu sinni í leil
— sagði Þorsteinn Ólaf sson, markvörð
Akureyrarliðið hafði sigrað Keflavík
a
Frá Guðmundi Svanssyni, f réttamanni
DV á Akureyri.
„Þórsarar börðust sem einn maður í
leiknum. Ég er mjög ánægður með leik
þeirra. Þeir léku sinn besta leik í
sumar,” sagði Björa Ámason, þjálfari
Þórs, eftir að lið hans hafði sigrað
Keflvíkinga 2—0 í 1. deild í blíðskapar-
veðri á Akureyri í gær. Við sigurinn
komst Þór í annað sætið í 1. deild. „Ég
svitnaði ekki einu sinni í leiknum,”
sagði Þorsteinn Ólafsson markvörður
Þórs, eftir leikinn og segir það nokkra
sögu um yfirburði Akureyrarliðsins í
leiknum. Sigurinn var mjög verðskuld-
aður.
„Dómgæslan var hrikaleg þegar við
fengum á okkur fyrsta markiö. Þar
var um brot að ræða og það er bág-
borið að bjóða upp á slíka dómgæslu í
1. deild eins og verið hefur í sumar,”
sagði Guðni Kjartansson, þjálfari
Keflvíkinga, eftir leikinn og bætti því
við að sigur Þórs hefði verið sanngjarn
og verðskuldaður.
Þórsarar náðu fljótt undirtökunum í
leiknum, vel studdir af fjölmennum
hóp áhorfenda. 881 greiddi aögangs-
eyri. Strax á 5. mín. átti Þór hættulega
Akureyri f gærkvöld
sókn, Halldór Áskelsson skaut hörku-
skoti rétt framhjá, og rétt eftir miöjan
hálfleikinn vom Þórsarar nærri að
skora á ný. Þorsteinn Bjamason varði
glæsilega frá Sigurjóni Rannverssyni.
Sókn Þórsara var þung. A 30. mín. lék
Bjarni Sveinbjörnsson upp og átti skot
að marki Keflvíkinga utan vítateigs.
Þorsteinn Bjarnason varði en hélt ekki
knettinum, sem barst til Helga Bents-
sonar. Þorsteinn var kominn á fæturna
aftur og varði vel frá Helga.
Á 41. mín. kom fyrsta mark leiksins.
Halldór var með knöttinn úti á kanti og
tveir Keflvíkingar sóttu að honum.
Hann lék á báða út undir hornfánanum
og gaf háan bolta fyrir markið úr
þröngu færi. Þorsteinn markvörður og
Helgi stukku báðir upp, misstu af
knettinum og féllu niður á völlinn.
Helga tókst beinlínis aö skríða aö
knettinum og skalla hann í markið. 1—
0 og Keflvíkingar vom óánægðir með
dómgæsluna. Töldu að brotið hefði
verið á Þorsteini og hann sjálfur mót-
mælti. Baldur Scheving dómari var á
annarri skoðun. Dæmdi mark og bók-
aði Þorstein fyrir mótmælin. Hann
bókaöi einnig síðar annan Keflvíking,
Kára Gunnlaugsson.
ÞEIR KASTA LENGST
— af rekaskráin í köstum og tugþraut
70,72 — I. Bugar, Tékkósló.
70,36 - MacWilkins,USA
70,00 — Juan Martinez, Kúbu
69,88 — Arthur Brans, USA
68,30 — John Powell, USA
68,12 — JosefNagy,Rúmeníu
67,26 — Geza Valent, Tékkó.
Sleggjukast
84,14 — Sergei Litvinov, Sovét
82,92 — IgorNikulin,Sovét.
81.18 — Juri Tarasjuk, Sovét
81,12 — Grieg. Sjevtsov, Sovét
81,42 — Juri Sedykh, Sovét
80,04 — K. Ploghaus, V-Þýskal.
80,04 - K.H. Riehm, V-Þýskal.
80,00 — A. Tsjuzhas,Sovét
79.18 — Juri Tamm, Sovét
79,06 — Anatoly Jefimov, Sovét
Tugþraut
8777 — J. Hingsen, V-Þýskal.
8714 - S. Wentz, V-Þýskal.
8538 — G. Degtjarev, Sovét
8509 — Daley Thompson, Bretl.
8456 — G. Kratschmer, V-Þýskal.
8418 — K. Akhapkin.Sovét
8412 — A. Nevsky.Sovét
8367 — Andreas Rizzi, V-Þ.
8362 — UweFreimuth, A-Þýsk.
8337 — Torsten Voss, A-Þýsk.
8337 — Stefan Niklaus, Sviss.
-hsím.
„Bíð eftir góðu
boði frá Ítalíu”
— segir Pétur Guðmundsson. Lið Portland vinnur
stórt um þessar mundir
Heimsmet hafa verið sett í öllum
kastgreinum karla í frjálsum íþróttum
það sem af er árinu. Mesta athygU
vakti heimsmet Bandarikjamannsins
Tom Petranoff í spjótkastinu þegar
hann kastaöi 99,72 m í vor. Hér á eftir
fer afrekaskráin í ár í köstunum og
tugþraut. Einar Vilhjálmsson er eini
tslendingurinn á skránni. Er í 8. sæti í
spjótkastinu með 90,66 m. Þeim
árangri náði hann í Stokkhólmi í
keppnínni við USA á dögunum þegar
hann sigraði heimsmethafann með
miklum yfirburðum.
Einar keppir í heimsmeistarakeppn-
inni í Helsinki sem hefst á sunnudag.
Forkeppni í spjótkastinu veröur kl. sjö
að íslenskum tíma miðvikudagsmorg-
uninn 10. ágúst. ÚrsUtakeppnin hefst
kl. 14.30 að ísl. tíma á föstudag 12.
ágúst. Og þá er það afrekaskráin.
Kúluvarp
22.22 — Udo Beyer, A-Þýskal.
21,94 — David Laut, USA
21,61 — KenAkins.USA
21.43 — Mike Lehman, USA
21,40 — Janis Bojars, Sovét
21,40 — EdwardSarul, PóU.
21,36 — Ulf Timmermann, A-Þ.
21.35 — Machura, Tékkósló.
21,27 — S. Kasnaukas, Sovét
21.22 — Brian Oidfield,USA
Spjótkast
99.72 — Tom Petranoff, USA
96.72 — Detlef Michel, A-Þýsk.
94,20 — Kheino Puuste, Sovét
91,88 — Danis Kuia, Sovét
91.44 — K.Tafelmeier,V-Þýsk.
91,24 — K. Merwe, S-Afríku
90,90 — P. Sinersaari, Finnl.
90,66 — EinarVilhjálmsson,Isl.
90,58 - M. O’Rourke, N-Sjálandi
90.35 - Mike Barnett, USA
90,30 — Per E. Olsen, Noregi
Kringlukast
71,86 — Juri Dumtsjev, Sovét
71,32 — Ben Plucknett, USA
71,06 — Luis Delis, Kúbu
„Hér er allt morandi af ítölum sem
em að leita að leikmönnum fyrir
keppnistímabilið en það byrjar á ítalíu
um miöjan þennan mánuð. Ég veit að
nokkur ítölsk félög era æst í að fá mig
til liðs við sig og það getur alveg eins
verið að maður slái tll,” sagði Pétur
Guðmundsson körfuknattleiksmaður
er vlð ræddum við hann en hann er nú á
keppnisferðalagi með liði Portland
Trailbiazers í Bandaríkjunum.
Sem kunnugt er hefur Pétur veriö aö
berjast fyrir sæti í liði Portland og
hefur honum gengið vel það sem af er.
Nýjar reglur hafa hins vegar verið
settar varðandi launagreiðslur liðanna
í NBA-deildinni þannig að hvert lið má
ekki greiða leikmönnum meira en
þrjár milljónir dollara yfir keppnis-
tímabilið. Það hefur í för með sér
launalækkun fyrir minni spámenn
deildarinnar því þeir bestu hirða
bróðurpartinn af þessum þremur
milljónum.
„Ég veit að hjá þessum ítölsku félög-
um era miklir peningar í boði og ef ég
fengi gott tilboð myndi ég eflaust slá
til. Ég hefði meira upp úr því en að
leika hér með Portland ef mér tekst að
komast í liðið. Þá myndi ég einnig öðl-
ast meiri leikreynslu og yrði þá vel
undirbúinn fyrir NBA-slag að dvölinni
á Italiu lokinni,” sagði Pétur.
Hann hefur undanfarið leikið með
Portland en iiöið hefur nær eingöngu
verið skipað nýliðum, mönnum sem
era að reyna að komast í aðalliöið.
Liðinu hefur gengið vel, tekur um
þessar mundir þátt í æfingamóti og
sigraði Portland í þremur fyrstu leikj-
unum sem búnir eru. Fyrst sigraði
Portland liö Indiana með 122 stigum
gegn 97. Pétur skoraði 3 stig í leiknum
og hirti 10 fráköst og var þjálfari
liðsins ánægður meö hans frammi-
stöðu í leiknum. Næst vann Portland
lið Los Angeles Lakers 130—105. Pétur
skoraði 8 stig og tók jafnmörg fráköst.
Loks sigraði Portland lið Golden State
116—109. Pétur fékk þrjár villur á
fyrstu þremur minútunum og gat iítið
leikið eftir það.
-SK.
íþróttir
íþróttir
íþróttir^
íþróttir