Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1983, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1983, Síða 2
2 DV. LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST1983. MIJRIM TALAR „Múrinn mikli átti aö vernda Kin- verja fyrir barbörum steppunnar. Bygging hans er ein af fjölmörgum til- raunum til að vinna gegn gangi tím- ans. Vér vitum nú að það tókst ekki. Tímanum verður ekki haldið í skefjum.” Max Frisch, formálsorð að Kín- verska múrnum. 13. ágúst síðastliðinn voru 22 ár liðin frá því að austur-þýsk yfirvöld hófu að reisa Berlínarmúrinn illræmda. Frá stríðslokum hafði Þýskaland verið klofið í tvennt. Á áhrifasvæði Banda- ríkjamanna, Breta og Frakka var Sambandslýðveldiö Þýskaland stofnað 1949.1 hinu gamla Prússlandi og eystri helmingi Þýskalands sem var á her- námssvæði Sovétmanna var stofnaö Alþýöulýðveldið Þýskaland. Höfuðborg þess var sá hluti Berlinar sem var hernuminn af Rússum. Landamæri ríkjanna tveggja lágu í gegnum höfuöborgina þvera og endi- langa. I eystri hluta landsins hafði land- búnaöur löngum verið í hávegum hafð- ur enda þótt iðnaöur væri þar nokkur. I vesturhéruðum Þýskalands var iðn- væðing aftur á móti á hærra stigi. Sov- étmenn fóru ránshendi um verk- smiðjur á hemámssvæði sínu á sama tíma og Marshall-aðstoð kom vestan- mönnum til góða er uppbygging lands- ins hófst. Efnahagur Austur-Þýska- lands var því mjög slæmur fyrstu 15 árin eftir stríðslok. Á hverju ári flúðu hundruð þúsunda manna vestur þar sem efnahagur var betri og stjórnarfarfrjálslyndara. Áriö 1961 störfuðu um 60 þúsundir manna í Vestur-Berlín en áttu þó heima í Austur-Berlín. I júní 1961 hélt Ulbricht, formaöur Kommúnista- flokksins, ræöu þar sem hann hótaði því að Austur-Berlín yrði einangruö frá Vestur-Berlín „með öllum tiltæk- um” ráðum. Hafði þetta í för meö sér mikla aukningu flóttamannastraums því að enn var tiltölulega létt að fara milli borgarhluta. Aðra vikuna í ágúst flúðu tíu þúsundir frá eystri hluta Berlínar til vestursins. Þriðjudaginn 9. ágúst flúðu 2000 manns yfir. Miðvikudaginn 10. ágúst var 4 dálka fyrirsögn í Vísi : „Hættuástand í Þýskalandi — Otti viðaðUIbrichtloki undankomuleiöinni.” Næstu daga er svo Berlínarmálið í brennidepii á Það var augljóst er fyrstu gaddavírsgiróingarnar voru reistar hinn 13. júlí 1961 að þær dygðu ekki og að ekkert minna en múr myndi duga. Það var einnig augljóst að hann yrði sífelltað hækka og verða rammgerðari. síðum blaðsins sem annarra stórblaða á Vesturlöndum. Og hinn 14. ágúst er fyrirsögnyfirþverasíðuna: „GADDA- VlRSGIRÐING 1 BERLIN - Hætta á uppreisn eftir að undankomuleið er lokaö.” I fréttinni segir blaðið: „Á sunnudagsmorgun (þ.e. 13. ágúst — innskot — ás) lokuðu austur-þýskir kommúnistar markalínunni milli Aust- ur- og Vestur-Berlínar en daginn áður hafði straumurinn náö hámarki er 2400 flóttamenn komu vestur á bóginn á ein- um sólarhring. Aðgerðir þessar hófust meö því aö fjölmennt austur-þýskt lögreglu- og herliö safnaðist saman við markalín- una og stöðvaði alla umferð á milli borgarhluta. Jafnframt voru ferðir neðanjarðarbrauta stöðvaðar. Síðan hófust kommúnistar handa um að leggja þéttriðna gaddavírsgirðingu alls staðar eftir markalínunni, þvert yfir götur og stræti. Bak viö hermenn- ina sem lögðu gaddavírinn sáust aust- ur-þýskir eða rússneskir skriödrekar og brynvarðar bifreiðir á ferii.” Blaöið skýrir frá viðbrögöum Berlín- arbúa við lagningu gaddavírsgiröing- arinnar og segir að ætíö muni finnast hugdjarfir og frumlegir menn sem kæmust yfir. Austur-Þjóðverjar hafa verið á sama máli því að innan skamms hófst bygging múrs þvert yfir götur og stræti. Gleymum því ekki að í augum aust- ur-þýskra stjórnvalda er múrinn og af- gangur f ullkomnasta landamæravirkis í heimi, grundvallaratriði í stjórn rík- isins. I þeirra augum er múrinn átt- unda undur veraldar. Þaö er honum að þakka að fátæku landbúnaðarhéraði var breytt í 10 mesta iðnveldi heims. Hér er ekki ætlunin að rifja upp í smáatriðum aödragandann að því að Berlínarmúrinn var reistur, né að setja byggingu hans í víðara sam- hengi. Viö ætlum að láta múrinn tala og birtum því myndir og mál úr bókinni ,,Die Mauer spricht” Múrinn talar. -ás. Múrararnir unnu verk sltt mf kostgæfnl ende undlr vökulu eugnaráði stóre bróður. Múrinn gegnir ekki aðeins þvi hlutverki að koma i veg fyrir að landi sjái landa. Aðeins fuglinn fíjúgandi má komast yfir. Ekki einu sinni skriðdrekiá að komast i gegn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.