Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1983, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1983, Síða 10
10 DV. LAUGARDAGUR 27. AGÚST1983. Hélt að \Ufdis væri eins og Honald Reagan — segir Rebecca Shuster sem vinnur ad littekt á þætti Vigdísar Finnboga- dóttur og Mar grétar Thatcher í f ramgangi kvenréttindabaráttunnar Hvaöa aöstæöur þurftu að vera fyrir hendi á Islandi til þess aö kona næöi kjöri til embættis forseta? Hefur kosn- ing Vigdísar Finnbogadóttur haft ein- hver áhrif á viöhorf almennings gagn- vart konum eöa hefur kosning hennar haft einhverja þýöingu fyrir konur á Islandi? Þurfti hún aö framkvæma eitthvað í kosningabaráttunni á annan hátt vegna þess aö hún var kona? Hvaöa áhrif hefur kosning hennar haft á möguleika annarra kvenna til aö komast í áhrifastöður á Islandi? Hvernig líkar Islendingum viö að hafa konu í forsetaembætti? Hefur kosning hennar haft einhver alþjóöleg áhrif á réttindabaráttu kvenna? Bandarisk stúlka, Rebecca Shuster, dvaldi hér á landi í rúma fjóra mánuöi til aö leita svara viö þessum og fleiri spurningum. Aö loknu BA-prófi sínu í félagsfræði viö Wesleyan University í Connecticut fékk hún styrk frá Thomas J. Watson Foundation til aö kanna breytta stöðu kvenna í alþjóölegu samhengi. „Eg ákvað að taka fyrir konur sem kosnar höföu veriö í áhrifastööur þar sem nú eru þess nokkur dæmi í fyrsta sinn í sögu mannkynsins. Meö því að einbeita mér aö því er auövelt aö sjá þessar breytingar á afmörkuðu sviöi,” sagöi Rebecca Shuster í samtali viö DV skömmu áöur en hún hélt aftur til Bandaríkjanna til aö vinna úr rann- sókninni. „Þegar ég byrjaði aö velta þessu fýrir mér haföi ég aldrei heyrt um, Vigdísi. Þaö var ári eftir kosningu hennar. En kennarinn minn benti mér á hana og þá reyndi ég að kynna mér allt um hana sem ég gat. Á endanum ákvað ég aö einbeita mér aö Vigdísi og Margréti Thatcher, forsætisráðherra Bretlands.” Rebecca Shuster dvaldi sex mánuöi í Bretlandi áður en hún kom hingað til lands. Þar kynnti hún sér stjómmála- skrif Thatcher frá upphafi, tók ítarleg viötöl við tugi manna, en þrátt fyrir viðleitni tókst henni ekki aö fá viðtal viö forsætisráöherrann sjálfan. „Eftir aö ég kom tii Islands byrjaði ég aö safna saman öllu sem skrifað hafði veriö um forsetakosningarnar og Vigdisi Finnbogadóttur á ensku því aö hér var auðveldast aö ná því saman. Síöan ræddi ég viö nokkra blaðamenn því að ég bjóst viö aö þeir gætu gefið mér besta yfirlitiö yfir málin. Það reyndist líka ágætur undirbúningur undir viöræöur mínar við Vigdísi Finn- bogadóttur. Vigdís var mjög hjálpleg og alúöleg. Eg hitti hana fyrst á skrifstofu hennar þar sem ég átti viö hana formlegt viö- tal. Ég óskaði þá eftir því aö fá aö líta í úrklippubækurnar hennar úr kosn- ingabaráttunni og frá tíð hennar í emb- ætti. Hún veitti mér leyfi til þess og bauö mér í te á heimili sínu viö Ara- götu. Þar ræddum viö saman í klukku- stund og það var mikil upplifun fyrir mig eftir að hafa lesið svo mikiö um forsetann og hlakkaö lengi tii aö koma til Islands til aö hitta hana. Eg hafði þá á orði við hana aö ég vildi fylgja henni í ferðalagi hennar um Vestfirði. Þar sem ég bjó í Reykjavík allan tímann hafði ég áhuga á að sjá viðmót fólks úti á landsbyggðinni, bænda og fiski- manna, ga gn va rt f orseta num. ’ ’ Meðan á dvöl Rebeccu Shuster stóö ræddi hún viö um 40 manns, stjómmálamenn, fólk sem starfað hafði fyrir kvenréttindasamtök, fólk úr flestum atvinnugreinum og fólk sem þekkti Vigdísi Finnbogadóttur per- sónulega. Hún leitaöi einkum eftir því hvernig Vigdís kæmi viðmælendum sínum fyrir sjónir, hvemig þeir litu á aödraganda þess aö kona var kjörin í embætti forseta og ein spurningin var hvort viömælendumir álitu Vigdísi vera kvenlega eöa karlmannlega. Auk þess bar hún upp viö þá þær spurning- ar sem getið var hér í upphafi. „Þaö er erfitt að draga saman ein- hverja heildamiöurstöðu úr þessum svörum, því aö í stað þess aö heyra 40 mismunandi útgáfur á sömu skoðun- inni þá fékk ég 40 mismunandi skoöan- ir. Þessi fjölbreytni kom mér á óvart. I Bretlandi fékk ég sömu svörin aftur og aftur viö þessum sömu spumingum varöandi Thatcher. Þaö eru ýmis sér- kenni í íslenskri menningu sem hafa stuölaö aö kjöri Vigdísar í forsetaemb- ætti. Til þess að koma þessum breyti- legu svörum, sem ég hef fengið, saman á skiljanlegan hátt verð ég að tengja þau viö þessi sérkenni. Á annan hátt fæ ég enga heildarmynd út úr þessu. Eg varö vör viö eitt þessara sér- kenna strax viö komu mína hingað til lands en fékk enn betri staðfestingu á því er ég fylgdi Vigdísi á ferö hennar um Vestfirði, en þaö er hversu sterkar tilfinningar Islendingar hafa til lands sins og þjóðar. Þetta er nokkuð sem maður verður ekki var við í Bandaríkj- unum. Þar eyöir fólk miklum tíma í aö ræöa hversu Bandaríkin séu hræöilegt þjóöfélag. Auðvitað telja Islendingar ekki aö hér sé allt fullkomiö, en þeir bera mikla viröingu fyrir landi sínu. Móttökumar sem Vigdís hlaut vom mjög áhrifamiklar og fólkinu var aug- ljóslega hlýtt til forseta síns. Þegar ég sá hana ganga um í þessum litlu þorp- um þá geröi ég mér ljóst aö fólk lítur á hana sem tákn fyrir allt þaö sem þaö elskar svo mikiö í þessu landi. Af framkomu hennar mátti einnig marka aö hún leggur mikiö upp úr því aö vera kvenleg og móöurleg. Hún sinnti bömum mikið í þessari ferð og vísaöi til þeirra í ræðum sínum. A þann hátt kemur hún fram á annan hátt en karlmaöur myndi gera. Svo viröist sem hún geri sér far um að vera tákn kvenlegrar feguröar og kvenlegrar ástar. Nær allir sem ég hef talað viö hafa sagt aö Vigdís sé mjög kvenleg. Þetta er andstætt því sem fólk svaraði í Bretlandi er ég spuröi þaö um Thatcher. Stór hluti þess sagðist telja forsætisráöherra sinn hafa karlmann- lega framkomu. Þetta er vegna þess aö Vigdís hefur ekki hafnað hinni hefö- bundnu kvenímynd. Hún hefur aö vísu gert þaö aö hluta meö því aö taka að sér svo virðulegt starf, en á hinn bóginn leggur hún mikið upp úr móður- hlutverkinu, sinnir börnunum mikiö, klæöist kvenlegum og fallegum fötum og leggur mikla rækt við persónulegar þarfir fólks í staö hins heildræna viö- horfs. Sjáðu til, Vigdís er þannig manneskja aö ég gæti búist viö aö hún myndi eftir afmælisdeginum mínum. En staöreyndin er sú að starf Margrétar Thatcher er allt annars eöl- is en starf Vigdísar Finnbogadóttur. Eg held aö þaö muni líða langur tími þar til kona tekur við starfi forsætis- ráöherra á Islandi. Ef til vill skjátlast mér, en í dag virðist mér ekkert gefa til kynna aö svo verði á næstunni. En þegar þaö gerist þá býst ég viö aö meirihluti fólks muni telja hana karl- mannlega. Einn viömælenda minná benti, aö því er ég held réttilega, á aö á verksviöi forseta Islands eru mörg störf sem venjulega falla í hlut kvenna. Eitt aöalstarf forsetans er aö vera gestgjafi og þaö hafa konur alltaf ver- ið. Það er því auðveldara fyrir Vigdísi aö gegna sínu starfi en fyrir Margréti Thatcher aö gegna sínu, þar sem Vig- dís gegnir að mörgu leyti heföbundn- um kvennahlutverkum en svo er varla hægt að segja um Thatcher. Hlutverk Vigdisar Finnbogadóttur er aö mörgu leyti líkt hlutverki drottn- ingar því aö hún er frekar tákn fyrir þjóöina en valdaaðili. Og ef tilgangur þess aö hafa forseta er að vera þjóöinni fyrirmynd alls þess sem hún lítur upp til þá er greinilegt aö Vigdis stendur sig vel í starfi. Eg vona aö hún sé þjóö- inni einnig fyrirmynd þess að konur séu aö öölast nýtt hlutverk á Islandi. Ef tengja má þetta tvennt saman, aödáun Islendinga á landi sínu og aödáun á þeirri konu sem gegnir þessu sérstæða hlutverki meðal þjóöarinnar, þá er mikilvæg breyting að eiga sér staö. Eg hef fengið mjög ólik svör viö spumingu minni um hvort einhverjar breytingar á stööu kvenna á Islandi ó síöustu árum hafi stuölaö aö kosn- ingu Vigdísar Finnbogadóttur í emb- ætti forseta Islands. Sumir hafa sagt aö aukin virkni kvennahreyfingarinn- ar, Kvennalistinn og Kvennaframboð- iö, hafi stuölaö að þessum úrslitum og talið þau vísbendingu um meirihátt- ar breytingar á stööu kvenna. Aörir sögðu aö þetta heföi eins getaö gerst fyrir mörgum áratugum þar sem kon- ur heföu ávallt gegnt mikilvægum hlut- verkum í íslensku þjóðfélagi og verið metnar aö verðleikum. Þeir síöar- nefndu benda á aö í sveitum og í sjáv- arplássum hafi störf kvenna ailtaf ver- ið álitin mjög mikilvæg og faliö í sér stjómun aö einhverju marki þannig aö kosning Vigdísar hafi ekki borið vott um sérstaka viðhorfsbreytingu. Mitt álit er samt að þetta hefði ekki getað gerst fyrir 20 árum svo aö dæmi sé tekið. Þaö er aö vísu rétt aö konur hér á landi hafa haft aöra stööu en ger- ist meöal annarra þjóöa. En þrátt fyrir að framboö Vigdísar væri ekki boriö uppi af kvennahreyfingunni þá heföi hún ekki náð þessum árangri fyrir tveimur áratugum. Kosning hennar er tengd breytingu á stöðu íslenskra kvenna eöa öllu heldur breytingu á hlutverkum þeirra í þjóðfélaginu. Mér virðist aö það sé ekki langt síöan það þótti almennt viðurkennd hegðun að konur fómuðu heimili og barnauppeldi fyrir starfsframa. ” Þaö dregur enginn í efa aö gestsaug- aö er glöggt. En hversu mikla mögu- leika hefur útlendingur, sem ekki skilur íslensku og dvelur aðeins i landinu í ársþriöjung, til aö gera sér raunhæfa mynd af baksviði þeirra atburöa og þeirrar manneskju sem hún er komin til aö rannsaka. Rebecca Shuster viöurkennir aö hún hafi komiö hingaö til lands með upplýsingar sem síöar kom í ljós aö voru mjög villandi. Hún las erlendar bækur og blaðagreinar og ræddi viö Islendinga í Bretlandi og þaöan fékk hún að eigin sögn margar ranghugmyndir um Island, stöðu kvenna hér á landi og viðfangsefni sitt, forsetann. Hún tekur sérstaklega sem dæmi bókina Iceland, The First New Society eftir Richard F. Tomasson, prófessor í félagsfræði viö háskólann í Nýju Mexí- kó, sem kom út í Bandaríkjunum áriö 1980. Tomasson dvaldi hér á landi sam- anlagt í 12 mánuöi á nokkurra ára bili og var kennari við Háskóla Islands um tíma. Rebecca Shuster segir aö bók hans sé mjög villandi. Hann sjái hlut- ina í rómantísku ljósi og ýki stórlega hversu mikið jafnrétti ríki hér milli kynja. „Þaö er eins og hann sé að skrifa bók fyrir ferðamenn,” segir hún. „Eg var heppin aö ég kom hér fyrir alþingiskosningar, því aö þá gat ég fylgst meö því sem forsetinn geröi i kosningunum og viö stjómarmyndun- ina og hvaö hún geröi ekki. Eg hef þannig betur getaö áttaö mig á vald- sviöi hennar. Til dæmis haföi ég lesið áöur en ég kom aö forsetinn heföi neitunarvald gagnvart lögum. Samkvæmt stjórnar- skránni er þetta auðvitað rétt, Vigdís gæti neitað lögum um staöfestingu ef hún vildi. En þaö sem ég vissi ekki var aö hún myndi aldrei gera það. Þetta vald hefur aldrei verið notað. Hún hefur sjálf gert grín að þessu við er- lenda fréttamenn með því aö segja aö hún myndi beita neitunarvaldi gegn lögum sem kvæöu á um aö höggva skyldi niöur öll tré á Islandi. Meö þessu viröist hún vera aö segja aö þaö þyrftu aö vera mjög öfgafull lög sem neyddu fiana til aö beita neitunarvaldinu. Þegar ég kom hingað stóð ég í þeirri trú aö Vigdís væri eins og Ronald Reagan sem er stööugt aö beita neitun- arvaldi sínu gegn lagafmmvörpum bandaríska þingsins. Eg vissi ekki þá aö þessu valdi hefur aldrei verið beitt hér. Þetta er aöeins eitt dæmi um hvaö upplýsingar geta veriö misvísandi. Þaö hefur einnig vakiö athygli mina aö enginn spyr hana um stjómmála- skoöanir hennar. Þær viröast ekki skipta máli. Sumir viömælendur mínir hafa sagt aö þeir óski eftir því aö forsetinn láti í ljós skoöanir sínar á pólitískum deilumálum. En Vigdís Finnbogadóttir hefur gefiö þaö til kynna aö hún hafi slíkt ekki í hyggju og telji þaö ekki vera hlutverk sitt.” Kosning Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Islands vakti mikla at- hygli erlendis fyrir þær sakir aö hún var fyrsta konan sem kosin var í emb- ætti þjóöhöföingja í almennum kosn- ingum. I erlendum blööum hefur mátt lesa aö kosning hennar sé ávinn- ingur fyrir konur í sókn þeirra til auk- inna áhrifa í stjómmálum. Rebecca Shuster var spurð hver hún teldi vera áhrif þessa á erlendar kvennahreyf- ingar. „Því miöur held ég aö sú umræöa sem fram hefur fariö erlendis um kjör Vigdísar Finnbogadóttur í embætti for- seta tslands hafi veriö á margan hátt villandi. I erlendum blööum hafa verið mörg viötöl viö forsetann og greinar Margrét Thatcher og Vigdis Finnbogadóttir. Hver er þóttur þeirra í fram- gangi kvenréttindabaráttunnar? Að svari þeirrar spurningar leitar Rebecca Shuster, viömdandi okkar hér á síðunum. Rebecca Shuster ásamt Vlgdisi Finnbogadóttur, forseta Islands, á Suðureyri við

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.