Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Blaðsíða 16
vr 16 .EBWíKÖECTEDSQEJR 9í3BE3IB5®ERÍ«3. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Mikill markaskorari íherbúðum Aberdeen: Eric Black — leikmaðurinn snjalli hjá Aberdeen. „Aberdeen eitt lið Evrópu” Aberdeen leikur sinn 50. Evrópuleik gegn Akranesi — Aberdeen er eitt af bestu knattspymuliðum Evrópu. Leik- menn liðsins ieika mjög vel og jafnvægið á milli varaar og sókn- ar er mikíð, sagði Alfredo di Stefano, fyrrum leikmaður Real Madrid og núverandi þjálfari spánska liðsins, sem mátti þola tap fyrir Aberdeen 1—2 í úrslita- leik Evrópukeppni bikarhafa í Gautaborg. Abcrdeen leikur sinn 50. Evrópuleik, „Frábær mannskapur erhjá Aberdeen” — segir John Greig, framkvæmdastjóri Glasgow Rangers þegar félagið mætir Skagamönnum á Laugardalsveilinum 14. september og er árangur félagsins þessi í þeim Evrópuleikjum, sem þaft hefur leikiö: 49 24 10 15 90:61 58 lindir stjóm Alex Ferguson hefur Aberdeen leikift 27 leiki 1 Evrópukeppn- inni og hefur árangur liftsins undir bans stjóm orðið þessi: 27 14 6 7 47:27 34 Það vill svo skemmtilega til ai i sift- ustu sjö Evrópukeppnum sem Aberdeen hefur teklð þátt i, þá hafa öll þau félög, nema Molenbeek, sem iagt hafa Aberdeen aft velli, leikift tfl ársltta i Evrópukeppni. -SOS. fslensku liðin í Evrópu- keppninni — þegar hann skoraði þrjú mðrk gegn Celtic í Glasgow Strákarair bjá Aberdeen — lið- inu frá austurströnd Skotlands, sem hafa skotið stórveldum Celtic og Glasgow Rangers ref fyrir rass, eru taldlr leika bestu knattspyrnuna sem Skotar bjóða upp á. Það er vallnn maður í hverju rúmi hjá Aberdeen og í llðhiu er hhin ungi og stórefnilegi mlðherji Eric Black sem er einn mesti markvarðahrellir Skota. Black vann það frækilega afrek sl. vetur að skora þrjú mörk í leik á heimavelli Celtic — Celtic Park í Glasgow. Hann var þar með fyrsti leikmaöurinn sem skoraði þrjú mörk hjá Celtic á Celtic Park siöan að Willie Johnston vann það afrek 1969 þegar hann lék meö Glasgow Rangers. — Það var engin heppni yfir þessu hjá Black því að hann gat skorað fleiri mörk í leiknum, sagði Gordon Strachan, miðvall- arspilarinn snjalli hjá Aberdeen. Black er nú talinn framtíðar- maður i skoska iandsliðinu og skoraði hann glæsilegt mark gegn Real Madrid í Gautaborg — kom Aberdeen á bragðið þegar félagiö vann Evrópukeppni bikarhafa. Þessi ungi og smávaxni leik- maður minnir menn oft á Dennis Law, fyrrum leikmann Man- chester United og skoska lands- liðsins. Hann hefur yfir þeim eig- inleikum að ráða semLawhafði — þ.e.a.s. að hann getur hangið lengi í loftinu og skallaboltar hans eru stórhættulegir. Frábært lið Aberdeen er besta félagsliö Skotlands sem sést á því að sex landsliðsmenn leika með félaginu — þeir Gordon Strachan, Jim Leighton, Willie Miller, Alex McLeish, Peter Weir og Stuart Kennedy. Þá leika fjórir leikmenn meö liðinu sem leika með skoska landsliðinu skipað leikmönnum 21 árs og yngri. Það eru þeir Neil Simpson, Neale Cooper, John Hewitt og Eric Black. Alex Ferguson, framkvæmda- stjóri Aberdeen, hefur náð að byggja upp lið skipað ungum og stórefnilegum leikmönnum og reynslumiklum mönnum. Einn af þeim leikmönnum sem hefur vakið mikla athygli að und- anförnu, er vinstri útherjinn Peter Weir, sem Ferguson keypti fyrir tveimur árum á 330 þús. pund, sem er mesta upphæð sem Aberdeen hefur greitt fyrir leik- mann. Weir byrjaði rólega með félaginu en fljótlega fór hann heldur betur að láta að sér kveða og er nú orðinn lykilmaður í sókn- arleik liðsins — og það kom eng- um á óvart, þegar Jock Stein, landsliðseinvaldur Skotlands, valdi hann í landslið sitt. Annar leikmaður Aberdeen, sem Stein hefur nú augastað á, er hinn snjalli og baráttuglaði mið- vallarspilari Neil Simpson. Mark McGhee er spáö miklum frama og er hann talinn lands- liðsmaöur framtíöarinnar. Ferguson keypti hann frá New- castle á 65 þús. pund. Hann er stórhættulegur sóknarleikmaður sem hefur blómstrað hjá Aberdeen. Þaö verður gaman að sjá þessa ungu leikmenn í sviðsljósinu á Laugardalsvellinum þegar þeir leika gegn Skagamönnum í Evrópubikarkeppni bikarmeist- ara á miðvikudaginn kemur. -SOS. Víkingartil Ungverjalands Víkingar halda með alla sina sterkustu knattspyraumenn til Ungverjalands á sunnudaginn þar sem þelr leika gegn ETO Raba Göye í Evrópukeppni meistarallða á miðvikudaginn kemur. Vikingar undirbúa sig fyrir leikinn i tvo daga i Ung- verjalandl. -SOS. Tveir landsliðsmenn með Carl Zeiss Jena — gegn Eyjamönnum í UEFA-keppninni Aberdeen er það félagsUð Skot- lands sem dregur flesta áhorf- endur á vöUinn. John Greig, framkvæmdastjóri Glasgow Rangers, segir að það verði erfitt að stöðva leikmenn Aberdeen í vetur. — Aberdeen hefur stærstan hóp af snjöUum leikmönnum, af félögum hér í Skotlandi. Það sést best á því að sjö leikmenn félags- ins hafa verið í landsliðshóp Jock Stein — þeir Jim Leighton, Alex McLeish, WiUie MiUer, NeU Simpson, Peter Weir, Gordon Strachan og Mark McGhee. Þá eru ungir og stórefnilegir leik- menn í herbúðum Pittodrie, eins og Neale Cooper, John Hewitt og Eric Black, sagði Greig. -sos. Eyjamenn eru byrjaðir að und- irbúa sig af fuUum krafti fyrir leik sinn gegn Carl Zeiss Jena i UEFA-bikarkeppni Evrópu, sem verður á KópavogsveUinum á þriðjudaginn kemur. Carl Zeiss Jena er eitt af sterkustu félags- Uðum A-Þýskalands og með því Andreas Bielau—sóknarleik- maður Carl Zeiss Jena. leika tveir lelkmenn, sem eru fastamenn í a-þýska landsUðinu — þeir Rudiger Schnuphase, sem er mjög skotfastur varnarleik- maður og sóknarleikmaðurinn Andreas Bielau. Cari Zeiss Jena hefur leikið alls 77 leiki í Evrópukeppninni fram að þessu — unnið 37 leiki, gert 14 jafntefli og tapað 26 leikjum. Markatalan er 126 mörk gegn 98 mörkum. Félagið lék til úrslita í Evrópu- keppni bikarhafa 1981 — tapaði þá fyrir Dynamo Tbilisi í Diissel- dorfl-2. -SOS. Nedejko Vujinovié, þjálfari KR. DV-ljósmynd: S. Það verður hart barist á mörgum vígstöðvum í knattspyrnu um helgina Knattspyraumenn verða heldur bet- ur í sviösljósinu um helgina — það verður hart barist á mörgum vígstöðv- um um UEFA-bikarsæti, fall niður í 2. deild og sæti í 1. deild. Baráttan verður í Keflavik, Reykjavík, Vestmanna- eyjum, Njarðvík, Sandgerði og á Akur- eyri. Keflvíkingar fá Isfirðinga í heim- sókn, Valsmenn leika gegn Vikingum að Hh'ðarenda á „Wembley” þeirra Valsmanna, Þórsarar fá Blikana í STAÐAN 1. DEILD Akranes 17 10 3 4 29—11 23 KR 17 5 9 3 18—19 19 Þór 17 5 7 5 19-17 17 Víkingur 17 4 9 4 19—18 17 Þróttur 17 6 5 6 24—31 17 Breiðablik 16 5 6 5 19—16 16 Vestmey. 15 5 5 5 25-20 15 Keflavik 17 7 1 9 21—27 15 Valur 16 5 4 7 24—30 14 ísafjörður 17 2 9 6 16—25 13 2. DEILD KA 17 9 5 3 29—20 23 Fram 16 8 6 2 28—17 22 Víðir 17 7 6 4 14—11 20 FH 16 6 7 3 26—18 19 Njarðvík 17 7 3 7 17—16 17 Elnherji 17 5 7 5 16-18 17 Vöisungur 17 6 3 8 16—17 15 KS 17 4 7 6 15-18 15 Fylkir 17 3 4 10 14—24 10 Reynir 17 1 8 8 9—25 10 heimsókn og KR-ingar bregöa sér til Vestmannaeyja. Allir þessir leikir hefjast kl. 14 á morgun. KA.FramogFHberjastuml. deild- ar sæti. Njarövík fær KA i heimsókn á morgun kl. 14, Framarar leika í Sand- gerði — gegn Reyni á sunnudaginn kl. 14. FH-ingar leika gegn Fylki á Laugardalsvelhnum kl. 18 á mánudag- inn. Þess má geta að búið er að ákveöja hvenær frestaður leikur Fram og FH fer fram. Félögin leika í Reykjavík — laugardaginn 17. september. A morgun leika einnig Siglufjörður — Víðir og Einherji — Völsungur kl. 14 Í2. deildarkeppninni. Einnig verður hart barist um marka- kóngstitilinn. Ingi Bjöm Albertsson, Val, og Sigurður Grétarsson, Breiða- bliki, hafa skorað 11 mörk í 1. deildar keppninni. Fjórir leikmenn hafa skor- að níu mörk í 2. deild. Guömundur Torfason, Fram, Gunnar Gíslason, KA, Hinrik Þórhallsson, KA, og Pálmi Jónsson, FH. -sos. Ogmundur (Víkingur) Guftjón Þórðarson (Akranes) Valþór Slgþórsson (4) (Vestmannaeyjar) Úmar Jóhannsson (3) Guðbjöm Trygi (Vestmannaeyjar) (Akranes) Ingi Bjöm Albertsson (3) Sigur&ur Gréta (Vaiur) (Breiftablik) íþróttir íþrótt íþróttir fþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.