Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Blaðsíða 10
1U DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983. I fyrstu greininni var sagt frá þvíi hvemig sólir og plánetur mynda sólkerfi, sólkerfin litlar þyrpingar, þyrpingarnar og annað efni mynda vetrarbrautir og vetrarbrautir stóra hópa. Einnig var sagt frá órafjar- lægðum í geimnum og lítillega rætt um hugsanlega lögun rúmsins. Rannsóknir, sem hafa eðli alheimsins að markmiði, beinast mest að útgeimnum og fyrirbærun- um þar. Þá er strax ljón á veginum. Er allt sem sýnist? Auövelt er að koma auga á vandkvæði. Ef við tökum mynd í gegnum stjörnusjá af fyrirbæri í eins milljarða ljósára fjarlægð, sjáum viö þaö á myndinni eins og það var fyrir einum milljarði ára ... En önnur vand- kvæði eru erfiðari viðfangs. Lykiloröin aö þeim eru: Afstæði og rauövik. Þessi grein mun fjalla um þau hugtök og lýsa fjarlægum furðufyrirbærum: Svartholum og kvösum. Allt er afstætt 1 daglegu lífi erum við vön þvi að hugtök eins og tími (t.d. i sekúndum), massi (t.d. í kg) og lengd (t.d. í metrum) séu óbreyt- anlegar mælistæröir. Ein minúta er jafnlöng fyrir okkur hvort sem viö sitjum í flughöfn með úr á hand- leggnum eða feröumst með sama úr í flugvél. A þessum grunni byggðu Newton og fleiri upp venjulega afl- og hreyfifræði. Þar segir td. að vega- lengd megi finna með því aö marg- falda sama hraða hlutar og tímann sem hreyfingin tekur. Nú er ljóst að klassísk hreyfifræði gildir ekki þegar hraði fyrirbæra er orðinn mjög mikill, og eins, að taka verður tillit til hvort athugandinn er „samferða” fyrirbærinu eða situr í fjarlægu við- miðunarkerfi. Nýrri hreyfifræðin er hluti svonefndrar afstæðiskenningar (kennd viöEinstein). Hún hefur ekki ógilt hin eldri fræði; aðeins gert okkur kleift að komast lengra. Sam- kvæmt henni er tími, massi og lengd afstæðar stærðir (breytilegar), — tíminn líður hægar í einu kerfi, sem hreyfist hratt, en í öðru hægfara kerfi. Lengdir styttast um leið og massi hluta eykst. Aukning massans táknar um leið aukningu orkunnar. öll atburöarásin í einu kerfinu verður allt önnur en í hinu. Allt þetta hafði víðtæk áhrif á skilning manna á alheiminum. Verður ekki farið nánar út í þá sálma hér. En um leiö stóöu menn frammi fyrir nýjum vandamálum, sbr. orðin í inngangi greinarinnar. Til dæmis er erfitt að gera sér grein fyrir því hvemig líta beri á alheiminn í heild' þegar þess er gætt að fjarlægar vetrarbrautir (sem reyndar líta út öðru vísi en vetrarbrautir) fjar- lægjast okkur með hálfum ljós- hraðanum. Það er, með öðrum orðum, harla flókið að skynja heild- armyndina út frá einu viðmiðunar- kerfi þar sem tími og aðrar eðlis- fræðistærðir eru ólíkar því sem gerist innan margra annarra sjá- anlegra fyrirbæra. Nú eru þekkt stór fyrirbæri sem viröast fjarlægjast okkur með 80-90% ljóshraða. Hin nýrri eðlisfræði er líka tak- mörkunum háð. Hún tekur t.d. mið af að ljóshraöinn sé mesti mögulegi hraði í veröldinni. Auðvitað þarf ekki svo að vera í raun og vísbendingar eru til um að ljóshraöinn sé ekki hinn endanlegi hraði. En heim handan ljóshraðans þekkjum við ekki né skiljum. Eru fyrirbæri þar „raunveruleg”, þ.e. innan okkar skynvíddar? Líöur tími þar afturá- bak? Erþartilefnisheimur? Nú mega menn ekki halda að ekki verði hægt að yfirstíga takmörk núverandi eðlisfræöiþekkingar. Okkur líður nú eins og mönnum á 19. öld sem dreymdi vart um af- h júpanir Einsteins og fleiri. Breytir Ijós um lit? Samkvæmt heimsmynd stjörnu- fræðinnar fjarlægjast vetrarbrautir og önnur fyrirbæri alheimsins af þeirri stærðargráðu hvert annað. Sagt er að alheimurinn sé aö þenjast út í rúminu og hraðinn aukist eftir því sem lengra er milli viðmiðunar- kerfisins (okkar vetrarbrautar) og fyrirbærisins sem athugaö er, sbr. áðurgreind 80-90% af ljóshraðanum. efnisstrókur, nærri á Ijóshraða. ofsaheitt efni sem fellur inn að miðju. ytri efnisflötur. innri efnisflötur. svarthol með 10 milljörðum sólmassa. efnisstrókur, nærri á Ijóshraða. Þverskurdur af kvasa, samkvœmt einni hugmyndinni um eöli þeirra. (Astronomy, nóv. 1982) HVAÐ VITOIVIB UM ALHEINIM? FURÐULiEG FYRIRBÆRI — önnur grein Ara Trausta Guðmundssonar um vitneskju manna og hugmyndlr um himlngeiminn En hvernig er þetta fengiö og hve á- reiðanleg er túlkunin? Vitneskjan byggir á svonefndu rauðviki. Allir kannast við hvað gerist ef bíll ekur framhjá manni á miklum hraða og bílflautan er þeytt á meðan. Tónninn heyrist hár meðan bíllinn æðir að en snögglækkar um leið og hann skýst framhjá. Bylgjulengd hljóðsins minnkar við aökomuna en lengist síðan. Menn vita að ljósgjafar (á rannsóknarstofu) haga sér eins: Ljós verður blárra en af kyrrstæðum ljós- gjafa ef hann er hreyfður hratt til athugandans, og aftur rauðara og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.