Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Blaðsíða 7
DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983. 7 grasiö fyrir utan fyrirtæki sitt. Hann segist vilja segja okkur sitt lítiö af þessu koppabrambolti sínu sem hann hefur staðið í síöastliðin f jórtán ár, eöa frá því hann var um fermingu. , Já, ég byrjaöi nú smátt, eins og allir gera sem eru í bisness. Fyrstu koppamir mínir voru nú eiginlega bara leikföng sem ég hafði gaman af aö láta svífa hérna um túnin. Eg hef alla mina tíð búiö hérna á bænum Hólmi, sem liggur við þjóðveginn, og þaö hefur jafnan veriö nokkuö mikið um að bílar misstu kopppana sína á þessum slóðum. Sérstaklega áöur en þeir fóru aö malbika veginn. En þá var fulltafþessu. Svo bara datt mér til hugar einn daginn aö ekki væri vitlaust að byrja bisness með koppa. % vissi að menn þurftu aö bíöa nokkuð lengi til aö fá koppa hjá umboðunum ef þeir misstu af felgunum. Og þar sem svo margir misstu koppana sína einmitt héma viö bæinn heima fannst mér bráösniöugt aö fara aö safna þessu saman af ein- hverri alvöm, laga það til og koma í verð. Þannig varð nú hjólkoppasalan mín til á sínum tíma. Og það er búiö aö vera fínt aö standa í þessu. Þetta er góð vinna.” Vörutalning ruglaði mig bara — Hvaö heldurðu aö þú hafir hirt marga koppa á ferli þinum sem hjól- koppasali? „Eg hef aldrei talið þetta, því er nú andskotans verr. Það tæki líka óra- tíma að telja þetta, sérstaklega ef ég teldi allt ruslið með. Þetta er ne&ulega ekki allt koppar hérna. Líkarusl.” — Þannig aö þú ert ekki með árlega vöratalningu eins og tíökast almennt hjá sölufyrirtækjum? „Nei, nei, ég þarf þess ekki. Eg veit alltaf hvað ég á af koppum þegar ein- hvem vanhagar um, og get alltaf gengiö aö hinum ýmsu tegundum á vísum stööum. Vörutalning myndi bara ragla fyrir mér, held ég. ” Þorvaldur segir að mest sé aö gera hjá sér um helgar. Þá komi allt að nokkrir tugir viðskiptavina til hans. „Eg þyki nú ofsalega ódýr á þessu. Þaö er að segja miðað við gæði. Dýrastu koppamir hjá mér eru svona sirka á sjö hundruð kalla, en þeir ódýr- ustu eins og til dæmis koppar af þessum rússnesku bílum fara á svona hundrað kall stykkið. Það er svo lélegt efni i þeim hvort eð er. Heyrðu, ég ætla að segja þér eitt. Það kom hingað maöur til mín um daginn og þegar hann komst að því aö ég vildi ekki prútta við hann um verð á koppi, sem hann vildi kaupa, sagði hann mig svindlara. Það var nú meiri dóninn. Eg sagði honum bara að fara ef hann vildi ekki borga rétt verð fyrir þessa ágætu og vönduðu vöru sem ég bauöhonum. Þetta var koppur sem ég hafði lagt fjögurra tíma vinnu i við aö rétta hann. Og hann kallaöi mig svindlara fyrir að vilja þrjú hundruð kall fyrir vöruna, vildi fá hana á hundrað kall, bölvaður. Nei, ég prútta aldrei. Þaö er óheiðar- legt. Og ég lét þennan ekki gabba mig aðþvíleyti.” Valdi heldur hér á aldurhnlgnum hjólkoppum sam hann soglr vara antik sitt: „Þetta ar mitt uppáhaids- stáss." : i ■'«. '•'Ss'5 v. ~ HJ'OLKOPPAR TÍL SÖLU HER Innl I húsakynnum hfólkoppasöl- unnar fyrirfínnst akkl sá staður sam akki ar þakinn alla vaga hfól- koppum: „Ég hef nú aldrei talið þatta, þvl ar nú andskotans varr. . ." Á eitt kínverskt með góðum bögglabera Þorvaldur er sá maður sem af mörgum væri kallaður dálítið skrítinn. Hann er „á eftir” eins og það heitir og hefur af þeim sökum farið á mis við margt i samfélaginu, svo sem eins og skólagöngu. En hann kann ágætlega að koma fyrir sig orði, þó hann eigi nokkuð tregt um að tala, hann stamar nefnilega. Samt veður á honum og fljótur er hann að skipta um umræðu- efni, fer úr einu i annað. Þannig er hann allt í einu farinn að tala um veðrið. „Það er nú búið að vera rosalega blautt hérna i sumar. Það hefur komið illa niður á mér því að húsið sem ég er Valdi á kínverska reiðfákinum sin- um sem hann ferðast um á í leit að hjóikoppum. Fyrir framan hann sást eitt auglýsingaskiltanna sem visa vaginn að hjólkoppasölu hans við bæinn Hólm austan Rauðhóia. með koppana mína í lekur talsvert, og það hefur því viljað bregða við að ryð hafi hlaupið í nokkra koppa. Það er agalegt. En viltu ekki vita hvernig ég safna koppunum?” segir Valdi svo. Ég jánka og hann fer að tala um koppasöfnunina sina. „Sko, ég fer alltaf um á hjóli. Eg á eitt kínverskt sem er með góðum bögglabera sem ég smiöaði svo til sjálfur. Svo hjóla ég bara meðfram vegum, og er til dæmis mikið á þeim slóðum þar sem malbik og malarvegur mætast. Þar vill mikið af koppum fara á bílum. Það er nú misj afnt hvenær ég leita. Eg fer bara á stjá hvenær sem mér hentar. Þess vegna seint á kvöldin eða ária morgna.” Hvar leitarðu helst? ,,Ég vil nú ekki segja nákvæmlega hvar. Eg segi ekki þjóðinni hvar mínir koppastaðir eru, þá gæti hún haft þá af mér.” Ferðu í langf erðir til að leita ? „Já, stundum aila leiðtilKeflavíkur. Það er töluvert um koppa meðfram veginum þangaö út eftir. Svo er líka bara svo gaman aö hjóla þá leið.” — Svo kemurðu heim að Hólmi og ferð að dyita að koppunum sem þú finnur. Hvemig fer það fram? „Ja, fyrst rétti ég koppana ef þeir eru eitthvað beyglaðir. Til þess nota ég hamar og stundum gúmmí líka til að höggin merji ekki krómið. Svo þríf ég þá með spritti eða krómhreinsilegi. Og ég nota stálull á þá verst útlítandi. Ég reyni nú alltaf að vanda mig og er svona frá klukkutíma upp í fimm tíma með hvem kopp, allt eftir hversu vel þeirlítaút.” — Hvemig gengur svo þetta einka- fyrirtæki þitt? „Dável. Það sagði við mig maður um daginn að sennilega væri ég ríkasti maðurinn í öllu landinu. En ég trúi því nú ekki. Eg hef samt gott upp úr þessu.” — Ertu að sinna hjólkoppafyrirtæk- inu allan daginn eöa tekurðu þér ekki hvíldir af og til? „Flesta daga vinn ég nú frá morgni fram á kvöld. En svo kemur líka fyrir að ég er latur, eða kannski veikur. Og þá vinn ég lítið, dútla í mesta lagi. En fríin mín tek ég mér bara þegar mér hentar. Eg spyr engan að því hvort ég megi bregða mér frá. Ég á þetta allt nefnilega.” Valdi segir að afgreiðslutími koppa- sölu sinnar sé frá tíu á morgnana fram til tíu á kvöldin. Alia daga. „Og svo er ég með viðtalstíma milli klukkan tíu og tólf á morgnana ef einhver vill hringja til mín á skrifstofuna og leita upplýs- inga. Já, á... ég er með skrifstofu. En aö visu ekkert skrifborð enn sem komið er. Skrifstofan er nefnilega svo h'til hjá mér. Eg og síminn er nú eiginlega það eina sem kemst fyrir þar innandyra”, segir Valdi, slær á lær sér og segir þetta hafa nú verið ágætan brandara hjá sér. Enda hlæjum við allir þrir. Valdi er spurður hvernig hann verji þeim fáu frístundum sem hann gefur sér frá koppasölunni. ,,Eg fer nú af og til á ball. Sérstak- lega í Glæsibæ. Þar leyfa þeir mér eiginlega alltaf að fara inn. Svo horfi ég þónokkuð á Dallasþættina og hlusta líka á Herb Alpert sem mér finnst rosalega góður. En ég get sagt þér að ég gerði einu sinni alveg hræðileg mistök. Eg fór inn í plötubúð og ætlaði að kaupa mér nýja plötu með honum Herb Alpert. En svo þegar ég fór að hlusta á plötuna kemur upp úr dúrnum að þetta er eitthvert bölvað öskur í einhverri Deep Purple- hljómsveit. Eg hafði þá sennilega lesið vitlaust á piötuumslagið, en mér gengur nefnilega dálítið ilia að lesa. Þigg líka I nefið — og hnerra Svo fæ ég mér góða vindla að reykja”, heldur Valdi áfram. „Og ég reyki pípu meira að segja stundum. En það máttu vita að ég tek aldrei ofan í mig. Eg hósta bara af því og fæ svima. Þá er nú betra að púa. Stundum, þegar koma til mín góðir kúnnar, þigg ég hka í nefið — og hnerra þessi hka ósköp. Það hressir mann rosalega,” segir þessi eini hjól- koppasali sinnar tegundar á tslandi að lokum. Og Þorvaldur Sigurður Nor- dahl, sem hann heitir fullu nafni, fylgir okkur að bæjarhliðinu að Hólmi — og svo veifar hann vinalega til okkar er við ökum rennireiðinni aftur upp á þjóðveginn og brunum inn til Reykja- víkur. -SER.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.