Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1983, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR17. SEPTEMBER1983. 21 Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál Christopher Geraghty þurfti, eins og hinir, aO greiOa hátt irerO fyrir yfirsjón sína og mistök. En málþeirra kom afstaO miklum umræOum um afnám dauOarefsingar. Fingraför Harry fundust á annarri byssunni.... Litli bróðir tekinn við Tveimur árum áöur en þetta átti sér staö var eldri bróöir Harry, Tómas, dæmdur fyrir manndráp í tengslum við rán semsvo mjög svipaði til þessa. Þaö var 8. desember 1944. Þeir voru tveir félagarnir og ætluðu að ræna skartgripaverslun. Einhver styggð kom að þeim og þeir flýðu. Vegfarandi reyndi að stöðva þá þegar þeir komu á fleygiferð akandi í bíl. Hann stökk fyrir bilinn og baðaði út öllum öngum en félagi Tómasar, sem sat við stýriö, skeytti því engu og ók manninn niður. Sá lést á staðnum. Bílstjórinn var dæmdur til dauöa en Tómas fékk átta ára fengelsisdóm. Þessir tveir afbrotamenn höfðu verið aðalmenn í alræmdum glæpa- flokki í Suður-Lundúnum er gekk undir nafninu „Flílamennimir”. Tómas hafði meira að segja verið forsprakki hópsins. En nú var þaö litli bróðir sem var tekinn við Fílamönnunum. Dæmt til að mistakast En Harry slapp ekki eins vel og stóri bróðir. Hann tók á það ráð að vera samvinnuþýður og sleppa þá kannski betur fyrir vikið. Hann sagði til félaga sinna tveggja, Christopher James Geraghty, 20 ára, og Terence John Peter Rolt, 17 ára. Eftir langar og strangar vitnaleiðslur voru þeir allir fundnir sekir um morðið á Alec de Antiquis. Rolt sagði frá því að nokkrum dög- um fyrir ránið hefðu þeir brotist inn til vopnasala og stolið þaöan byssunum þrem. Það var laugardaginn 26. apríl. Þann 28. hittust þeir allir snemma morguns á Whitechapel jámbrautarstöð- inni og tóku lestina til Goodge Street. Þá voru þeir ákveðnir í að brjótast inn í skartgripaverslun. Þeir ráfuðu um göturnar og skoöuöu sig um þar til þeir ákváöu hvert fórnarlambið skyldi vera. Þeir skoðuðu allar kringumstæð- ur. Verslunin virtist liggja vel við höggi. í glugganum einum voru til sýn- is skartgripir fyrir að minnsta kosti fimm þúsund pund. Þá vantaði bíl til að flytja góssið. Hann fundu þeir í götu rétt hjá, h'tinn sendiferðabíl sem þeir tóku trausta- taki. Rolt settist undir stýri með Geraghty sér viö hhð. Þeir óku af staö. og lögðu bílnum rétt viö skartgripa- verslunina. Harry Jenkins var kom- inn á undan þeim. Meiningin var að þeir skyldu allir þrír hittast fyrir utan verslunina og fara allir inn í einu þegar færi gæfist, það er að segja þegar fáir væru á ferh fyrir utan og enginn inni í versluninni. En þetta var dæmt til að mistakast. Hinn ungi Rolt var alltof æstur. Þegar hann hafði lagt bílnum, geystist hann inn í verslunina með byssuna á lofti. Geraghty og Harry neyddust til að fylgja honum. Og með klúta fyrir andUtunum stormuðu þeir inn í skart- gripaverslunina. Ringulreiðin og óðagotið á þremenningunum varð þó algert þegar þeir sáu hversu rólegir afgreiðslu- mennimir tveir voru. Þeirlétu greini- lega ekki hræða sig. Og þegar skotið hljóp í vegginn — alveg óvart — gátu þremenningarnir ekki meira. Þeir tóku á rás, tómhentir. Ekki tókst flótt- inn betur, stór vörubíll vamaöi þeim vegar svo að þeir urðu að notast við tvo jafnfljóta áflóttanum. Þaö var svo Geraghty sem tók í gikkinn þegar Alec de Antiquis ætlaði að stöðva flótta þeirra. Dómur kveðinn upp Þremenningamir komu fyrir rétt- inn í Old Bailey. Dómur var kveðinn upp 21. júní 1947. Þeir voru alUor dæmdir sekir um morðið á Alec de Antiquis. Harry Jenkins og Geraghty voru dæmdir til dauða en Rolt til fimm ára fangelsisvistar. Hann slapp við dauðarefsinguna vegna aldurs. Ekkjan fékk orðu Þegar dómurinn hafði verið kveðinn upp, kváðu við mikil ramakvein tU að fá dauöadómum þessum hnekkt. Það var einkum bent á hversu ungir saka- mennimir væm. ÖUu sUku var vísað á bug og þann 19. september 1947 vom Harry Jenkins og Geraghty hengdir í PentonvUle-fangelsinu. En raddir andstæðinga dauðarefs- inga þögnuðu ekki með dauða tvímenn- inganna. Síður en svo, þær tvíefldust. Og til vom þeir menn sem strengdu þess heit að þeir myndu ekki linna Iát- um fyrr en afnám dauðarefsinga væri i höfn.. . Sami áhugi var ekki fyrir afkomu eftirlifandi eiginkonu Alec de Antiquis og bömunum sex sem misst höfðu fyrirvinnuna. I sárabætur fékk ekkjan lögregluorðu fyrir hugdirfsku eigin- manns sins. Terence RoH var aOeins sautján ára þegar hann tók þátt i atburOunum á Chariotte Street. Hár er hann leiddur út úr róttarsalnum. BREIÐHOLTI ; SÍMI76225 i Fersk blóm daglega. \ MIKLATORGli SÍMI22822 OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 23 & Kvikmyndamarkaðurinn SkólavörOustíg 19. Videoklúbburinn Stórholtí 1. Simi 35450. Aukahlutir fyrir Range Rover bíla: ★ Stafír á vélar- og kistulok. ★ Svartar grindur fyrir fram- og afturijós. ★ Listar á hliðar með Range Rover stöfum á 2ja og 4ra dyra. ★ Hjólskálalistar, svart- ir, úrplasti. it Felgur og margt fí. ★ ★ ★ Glærar plasthlífar m/hitara f. framljós. Svört Ijós m/netum ofan og neðan á á framstuðara. Toppgr. og bogar, vandaðir og sterkir. ★ Svartar hlífar á vólar- lokslamir. ★ Mottusett úr taui. ★ Tvöföld þurrkublöð. ★ Stuðaraklossar úr gúmmíi, framan og i aftan. • original kassar milli framsæta. • original sætacover. • original hauspúðar. • original álfelgur fnýja gerðin). • original stýri (nýja Sendum ípóstkröfu hvert á land sem er. HÖLDUR varahlutaverslun, Fjölnisgötu 1b. Sími21365.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.